Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 30

Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 30
Stúdenta- sínuiT* rku>" hlutve BylgJa jónssou Stefau Schevir1g 1 I sumar hefur verið trimmað í Félags- stofnun Stúdenta við Hringbraut. Það er Stúdentaleikhúsið sem rekið hefur Lista- trimm, Reykvíkingum til mikillar ánœgju. Stúdentaleikhúsið hóf Listatrimmið með því að sýna dagskrá úr verkum Brecht, sýndi síðan „Aðeins eitt skref“ þar sem m.a. var flutt músíkleikverkið „Solo un paso" sem hlaut afar góðar undirtektir. Síðan þá hefur hver dagskráin rekið aðra, — leiklist, tónlist, vinnugleði og kraftur ungs fólks hafa bland- ast saman í sýningar sem eru hver annarri betri. Leikritahöfundar hafa verið kynntir; Jökull Jakobsson, Samuel Beckett, Garcia Lorca og nú síðast franski höfundurinn Jean Tardieu. Verk hans „Elskendurnir í Metró“ var frumsýnt 15. ágúst. Andrés Sigurvinsson, annar framkvœmdastjóra Stúdentaleikhúss-Listatrimms, er leikstjóri hópsins en alls eru yfir fjörutíu manns sem að sýningunni standa. Á annað hundrað eru þeir sem starfað hafa með Stúdentaleikhús- inuísumar—áhugaleikarar, háskólanemar, atvinnuleikarar og annað áhugafólk um leiklist hefur þarna fengið tækifœri til að starfa að hugðarefnum sínum, en einnig hefur það fengið tækifæri til að létta okkur hér á höfuðborgarsvæðinu þetta frámuna- lega blauta sumar. Hvar værum við stödd, segja fastagestirnir, ef við gætum ekki farið uppí Félagsstofnun eins og einu sinni í viku, fengið okkur l létt glas og horft á enn eina ferska, skemmtilega sýningu á Listatrimmi? Heyrst hefur að einn af meiriháttar dómur- um íslenskrar leiklistar hafi látið þau orð falla, að nú þyrfti hann ekki lengur að sœkja leiklistarhátíðir erlendis á sumrin þar sem Stúdentaleikhúsið kæmi í stað þeirra. Dag- blöðin og aðrir fjölmiðlar hafa sýnt Lista- trimminu mikinn áhuga svo óþarft er að rekja allt það sem á boðstólum hefur verið, umsagnir blaðanna segja sína sögu, en reyndar hefurþetta allt gengið eins og í lyga- sögu segja þeir sem til þekkja, þar sem sýn- ingarnar hafa verið framleiddar á mettíma, flestar á 2-3 vikum, enda oftast unnið langt fram á nætur. En nú er haustar eru margir farnir að velta því fyrir sér hvað verði um Listatrimmið, Stúdentaleikhúsið og alltþað, þvíþað breytistsvo margt að vetrinum þegar skólarnir byrja, Félagsstofnun verður aftur mötuneyti o.sfrv. Vitað er að Stúdentaleik- húsið hefur ýmislegt á prjónunum, áfram verður haldið með leiklistar- og tónlistar- dagskrár fram í september á svipuðu formi og verið hefur, en einnig er fyrirhugað að setja upp stórt leikverk í Tjarnarbíó í vetur. Við munum frétta af þessu öllu þegar þar að kemur. Pirkko Kurikka og Pirkko Jaakola Stúdentaleikhúsið hefur ekki aðeins boð- ið upp á innlendar sýningar, heldur einnig 30

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.