Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 26

Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 26
Grænlandsferð 1983 Hans Egede gnœfir yfir byggðinni Þegar Ijóst var í vor aö ég yröi ein af sjö fulltrúum Reykja- víkurborgar, sem ætti þess kost aö fara til Nuuk í sjö daga opinbera heimsókn, var mér fyrst fyrir aö rifja upp barna- skólalandafræöi mína. Og ég komst aö því aö hún var af af- ar skornum skammti. Jú, ég vissi aö Grænland var stærsta eyja jaröar — reynd- ist viö nánari athugun vera 2,1 millj. ferkm. Óstaðfestar fréttir sögöu landiö jafnstórt og allt meginland Evrópu. Jafn- framt komst ég aö því aö strandlengjan er 40 þús. km. löng og landiö er að mestu þakið 3 km. þykkum jökli. íbúafjöldi er 51.435 og af þeim búa um 40 þús. í bæjum. Innfædda köllum viö Eskimóa en sjálfir nefna þeir sig Inuita-menn. í æsku haföi ég lesið allt sem ég komst höndum undir af frá- sögnum ferðalanga um Grænland og líf Eskimóa fyrir alda- mót. Þærfrásagnir höfðu hrifiö mig mjög og lengi haföi mig dreymt um aö komast til Grænlands og nú átti þessi draum- ur aö rætast. En hvaö var Nuuk? — Grænlensk nöfn á stööum voru mér framandi. Eftir nokkra leit komst ég aö því aö Nuuk (nes) er höfuðborg landsins, sú er danir nefna Godtháp — Vonin blíö — er Hans Egede gaf nafn þegar hann settist þar aö fyrir 250 árum til þess aö boöa ,,skrælingjunum“ kristna trú og eiga viö þá viðskipti — þeirri iðju sinnti hann í 8 ár, en snéri þá til föðurhúsanna. Synir hans héldu starfi hans áfram, bæöi andlegu og veraldlegu allt til ársins 1774, en þá tók danska ríkið formlega við völdum á Grænlandi og lagði landiö undir krúnuna. Ariö 1974, þegar viö gáfum sjálfum okkur þjóðargjöfina, opnuöum hringveginn og hlupum um landiö meö logandi kyndla í minningu 11 alda byggöar, átti K.G.H., Kongelig Grönlands Handel, 200 ára afmæli. Og í fyrra, sællar minningar, var annars afmælis minnst á Grænlandi, aö vísu aöeins af hinum hvíta kynstofni og sérlegum grænlenskum vinum hans. Þaö var þegar drottn- ingar, prinsar, forsetar og landstjórar héldu uppá aö 1000 ár voru frá því Eiríkur rauði villtist til Grænlands. Allir græn- lendingar meö sjálfsvirðingu og þjóöarstolt héldu sig fjarri þeirri hátíö aö því er mér var sagt. En Tuborg límdi hátíöar- miöa á ölflöskurnar sem fóru á Grænlandsmarkaö og á þeim stendur á grænlensku „Grænland 1000 ára”! Græn- lensk kona, kófdrukkin, gaf mér svona miöa á krá og þýddi áletrunina með stolti — Já áhrifamáttur áróöurs, áfengis og auðvalds er mikill. En nú er rétt aö víkja aö ferðasögunni. Við héldum af staö í Graenlandsferðina 29. maí s.l. Eftir 4 klst. flug lentum við í Syðra — Straumsfirði. Þar er fátt sem gleður augað — Natobase er á staðnum og virðist fylgja slíkum stöðum ömurleiki og auðn. — Jú, og bygging ein mikil sem rýmir heljarstóra flugstöð, kaffiteríu og 204 rúma hótel. Rekstur þess er í höndum K.G.H. og hefur það aldrei veriö fullnýtt. Best var nýtingin 1975 eða 75%. Frá Syðra-Straumsfirði er um klst. flug til Nuuk. Þar er einnig flugstöð væn og þar eru aðalstöðvar Grönlandsfly. Grönlandsfly er hlutafélag sem SAS, K.G.H. og einkaaðilar í Danmörku eiga. Þeir sjá um allt innanlandsflug í Grænlandi og selja dýrt — 3.600 kr. kostar flugmiði milli Nuuk og Syðra-Straumsfjarðar. í Nuuk tóku á móti okkur borgarstjóri og embættismenn tveir, annar danskur og virtist hann raunar stjórna öllu, en borgarstjór- inn vera nokkurs konar leikbrúða í höndum hans til þess að full- nægja leikreglum um heimastjórn grænlendinga. Hinn embættis- maðurinn var grænlenskur, afar bældur maður, sem læddist um og talaði lágt. Þessi þrenning var jafnan með okkur í hinum opin- bera hluta heimsóknarinnar. Það er rétt að taka fram strax að allar móttökur voru hinar bestu frá hendi þessara manna, en satt að segja fannst mér mikiö djúp vera á milli mín og þeirra og upplýs- ingar þeirra um grænlenskt samfélag eins og uppúr handbók saminni af dönum. Nuuk er sem sagt höfuðstaður og stærsti bær Grænlands. Þar búa um 9.700 manns, 1/3 þeirra danir sögðu embættismennirnir, helmingur danir sögðu grænlendingar utan bæjarskrifstofanna. Sveitarfélagið Nuuk nær yfir stærra svæði en bæinn. Alls teljast í sveitarfélaginu 10.313 íbúar. Þeir 5-600 sem ekki búa I Nuuk búa í tveimur byggðarlögum í mikilli fjjarlægð frá bænum, en flatarmál sveitarfélagsins alls er svipað og Islands, þó vegakerfi um það séu aðeins 45 km. að lengd. Já, Nuuk er höfðustaðurinn. Þar situr Landsþingið, þar er eini kennaraskóli landsins, stærsta sjúkrahús- ið, þjóðminjasafnið, eini iönskólinn, höfuðstöðvar K.G.H. og Grön- landsfly. í apríl sl. fóru fram kosningar á Grænlandi, bæði til sveitar- 26

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.