Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 22
Mótmœlt á áhrifaríkan hátt
allt, sem þeir höfðu áhuga á var lítill hópur
fólks, sem er í Carta-77. Þessi hópur hefur
ekki reynt að ganga í friðarhreyfinguna og
það er mjög einkennilegt á þessum hættu-
tímum, sem við lifum nú. Og ef þetta fólk í
Carta-77 telur, að mannréttindi þeirra séu
mikilvægari en allra annarra hér í heimi, þá
hlýtur hér að vera um að ræða hóp manna,
sem er með mikilmennskubrjálæði. Ég hef
séð sjálf, að fólk í þessu landi hefur það
gott. Ég hef séð, að ég get talað við hvern,
sem ég vil, og fólk getur talað við mig. Og
lygin, sem þetta fólk er að hjálpa hinni vest-
rænu pressu til að nota gegn friðarhreyfing-
unni skaðar mig mjög mikið. í raun er þetta
fólk að stofna lífi mínu í meiri hættu en
Bandaríkjamenn, vegna þess að það er að
gefa Vesturlöndum tilefni til að hætta að
leita leiða til heiðarlegra og friðsamlegra
samningaviðræðna milli austurs og vesturs.
Og ég grátbið það um að hætta því áður en
við deyjum öll sömul, vegna þess að það
deyr líka. Það hefur ekkert að vinna á þess-
ari heimsku, en öllu að tapa.
KVENNAATHVARF
Opið allan sólarhringinn
Sími
2 12 05
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem
beittar hafa verið ofbeldi í hcimahúsum
eða orðið fyrir nauðgun.
Friðarboginn
Guð gerði sáttmála við Nóa foröum daga,
í fljótræði sínu, og setti regnbogann í skýin,
til merkis um frið milli guðs og manna.
Hann hlýtur að hafa iðrast þess mörgum sinnum,
þegar mennirnir hafa verið að henda framan í hann
spútnikum, appolónum og öðru drasli.
Hví er guð ekki löngu búinn að taka niður friðarbogann,
svo hann geti hreinsað til á jörðinni.
Eru mennirnir orðnir máttugri en guð?
- Ragna Hermannsdóttir
22