Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 36

Vera - 01.10.1983, Blaðsíða 36
Skipt um dekk er mælt með steini aftan við dekk ef einhver halli er ú veginum. Farið síðan út og náið í græjurnar, þ.e. varahjól, tjakk ogfelgulykil. Komið tjakknum fyrir ásínum stað en áður en þið byrjið að tjakka upp bílinn verður að losa um rœrnar á hinu sprungna dekki, því annars snýst dekkið bara við átökin. Þegar losað hefur verið um rærnar er bíllinn tjakk- aður upp og rœrnar losaðar alveg af. Þá er dekkið tekið af og varadekkið sett á, rærnar skrúfaðar eins fast og hœgt er, bíllinn tjakk- aður niður og hert á rónum vel og vandlega, sumir stíga örlítið á arm felgulykilsins til að vera öruggir. Eflosa þarf hjólkopp þá er það gert með flötu járni sem er eins og stórt skrúfjárn og er oftast á öðrum enda felgu- lykilsins. Flati endinn er settur undir brún hjólkoppsins og þrýst eða slegið á hinn endann og auðvelt er að setja koppinn á aft- ur það er þá alltaf hægt að slá eða sparka á hann ef stendur á haki. Þið sjáið að þetta er ekki mikið mál, en þegar þið hafið gengið frá hinu sprungna dekki og græjunum þá akið hið fyrsta til nœsta dekkjaverksfœðis til að láta gera við sprungna hjólbarðann, því það er ekki að vita nema að springi aftur eftir nokkra kíló- metra, og betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Ég ráðlegg þeim sem aldrei hafa skipt um dekk aðfara beint út á stæði og æfa sig einu sinni á bílnum sínum þar og þá eru ykkur allir vegir færir hvað þetta snertir. Gangi ykkur vel. Kristjana Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það hversu nauðsynlegt það er fyrir hvern bílstjóra að vera fær um að skipta um dekk. En það eins og annað varðandi bíla hefur verið svið karla hingað til þó auðvitað fylgi breytingar á því í kjölfar þess að konur aka og eiga bíla í auknum mæli. Þar við bœtist að konur vilja ekki reiða sig á riddara- mennsku karlanna ásama tíma ogþær berj- ast fyrir sjálfstæði og jafnrétti. Því er það konur góðar að við skulum fara I nokkrum orðum yfir helstu atriðin í dekkjaskiptingu: Öllum bílum á að fylgja tjakkur ogfelgu- lykill. Tjakkarnir eru mismunandi og hannaðir fyrir hinar mismunandi bíla- tegundir. Það ætti því að vera fyrsta atriðið að kynna sér meðferð þess tjakks er fylgir bílnum og sömuleiðis hvar á að setja hann undir bílinn. í flestum litlum bílum eru hulstur fyrir tjakk undir sílsum, aftan við framhjól og framan við afturhjól, til_ að skorða hann af. Á stœrri bílum getur þurft meiri viðhafnar við og fleiri grœjur, en allt slíkt verður ökumaður að sjálfsögðu að kynna sér, annaðhvort í bæklingum um bíl- inn eða hjá fróðum ökuþórum. Ef skipta þarf um dekk úti á vegum þarf að hafa í huga allar öryggisráðstafanir svo ekki hljót- ist slys af framkvœmdunum. Finna þarf hentugan stað, þó má ekki aka langar leiðir á sprungnu dekki. Komið ykkur fyrir á vegarbrún til að teppa ekki umferð og kveikið á aðvörunarljósum bílsins (og pass- ið ykkur á hinum bílunum). Drepið á bíln- um, setjið hann í gír og handbremsu, einnig 36

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.