Vera - 01.12.1985, Side 2
MÁLGAGN
K VENFRELSISBA RÁTTU
Heyrst hefur, aö þaö sé farið aö örla á nýjum körlum, sem
hafi hugsað tvisvar um sitt hlutskipti. Þeir ku ósáttir viö þá
karlímynd, sem haldið hefur verið á lofti og óánægðir með
þann stakk, sem körlum er sniðinn rétt eins og konur eru með
sinn.
í þessari Veru er leitað svara hjá karlmönnum um þetta; þeir
eru spurðir hvernig þeim líði, hvort þeir ,,eigi í basli við kröf-
unaum karlmennskuna", hvort þeirséu ,,bældirog einmana"
eins og einn viðmælenda Veru orðar það hér í blaðinu.
í þeirri réttlætisleit, sem við erum í, skipta allir máli. Sá ár-
angur, sem við væntum af kvennabaráttu, felur í sér breyting-
ar ekki aðeins á okkar hlutskipti, heldur einnig á hlutskipti
karla og þeirra viðhorfum í okkar garð. í lok kvennaáratugar
er mikið rætt um það, hvert næsta skref kvenna geti verið,
hvað taki nú við. Minna er taiað um hitt, sem ekki skiptir þó
litlu máli, það hvað karlar hugsi sér að gera.
Einhver kann að spyrja hvort það sé ekki hlutverk annarra
en Veru að leita svara hjá karlmönnum! Þessu er svo til að
svara að jafnframt því að krefjast þess að fá að skilgreina okk-
ur sjálfar, hljótum við að krefjast þess fyrir allra hönd. Og ef
það er rétt, að margir karlar telji sér hafa verið þröngvað í
stakk, sem hentar þeim ekki — hvernig vilja þeir þá hafa snið-
ið á þeim nýja? Það er karlanna að svara því. Og ef marka má
svör þeirra karla, sem hafa orðið í þessari Veru, verður ekki
annað sagt en a.m.k. sumir karlar séu farnir að prjóna við þær
lykkjur, sem kvennahreyfingarnar fitjuðu upp á!
Ms
VERA
7/1985 — 4. árg.
Útgefendur:
Kvennaframboðið í Reykjavík
og Samtök um Kvennalista.
Símar: 22188, 21500, 13725
í VERU núna:
3—5 Lesendabréf
6—9 Karlar karla
um boðskap póstkorta
10—15 Er Eyjólfur aö hressast?
um karlímyndina
16—17 Sumir gráta einir meö
aöstoö Bakkusar
rætt viö Jóhönnu Sveinsdóttur
um bók hennar
18—20 Samtaliö endalausa
Ásdís Skúladóttir segir frá
22 Skrafskjóöa
Gyða Gunnarsdóttir skrafar
24—25 „Aö hanna föt veitir mér
útrás“
rætt við Sigrúnu Guðmundsdóttur
26—27 /Evi og ástir kvendjöfuls
úr bók Fay Weldon
28—33 Borgarmál
34—39 Þingmál
40—41 Um leiklist
42—47 Um bækur
48—49 Um hljómplötur
Mynd á forsíðu:
Svala Sigurleifsdóttir
Ritnefnd:
Gyða Gunnarsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Guðrun Kristmundsdóttir
Ragnhildur Eggertsdóttir
Magdalena Schram
Sólrún Gísladóttir
Sigríður Einarsdóttir
Kristin A. Árnadóttir
Útlit:
Kicki, Guðrún K. Malla
Starfsmaður Veru:
Kicki Borhammar
Auglýsingar og dreifing:
Hólmfriður Árnadóttir
Ábyrgð:
Guðrún Ólafsdóttir
Setning og filmuvinna:
Prentþjónustan hf.
Prentun:
Solnaprent
Ath: Greinar í VERU eru
birtar á ábyrgð höfunda
sinna og eru ekki endi-
lega stefna útgefenda.