Vera - 01.12.1985, Qupperneq 19

Vera - 01.12.1985, Qupperneq 19
Samtalið endalausa dóttir stakk þá upp á heitinu Úur. Konunni meö stórum staf hjá Laxnes. En þessi út- varpsþáttur, hann var fyrsta opinbera um- ræðan á íslandi um þetta málefni ein- göngu, þ.e. kynhlutverkin. Þarnatók þátt, auk mín, Margrét Margeirsdóttir félags- ráögjafi, StefánÓlafur Jónsson námsstjóri starfsfræöslu og Guðmundur Ágústsson hagfræöingur. Siguröur A. Magnússon rit- höfundurstjórnaöi umræöunum. Þaö væri gaman að heyra þennan þátt aftur — ætli hlutirnir hafi ekki lítið breyst! Næsta sumar, þ. 19. júní stýröum við Guðfinna Ragnarsdóttir útvarpsþætti sem fjallaði einnig um kynhlutverk, gildismat og viðhorf, — ekki síst viðhorf og ómeövit- aða innrætingu. Við slógum fram fullyrð- ingum á borð við: „Grænlendingar eru lágvaxnir og sterkur þjóðflokkur, sem stundarfiskveiðar. . .“eitthvaðíþeimdúr, þú veist: „Hinn dæmigerði Vestmannaey- ingur stundar fiskveiöar og elskar konuna sína. . eitthvað sem fólk segir og tekur ekki eftir hve vitlaust það er, hvað þá að það skynji hvaða viðhorf þaö felur í sér. Sem sagt orð og orðalag. — Hversu samstæður var þessi hópur, sem nú hafði fengið sér nafnið Úur? Við komum sem sagt saman fyrir tilstilli Kvenréttindafélagsins og ræddum málin. Við vorum úr öllum flokkum og margar ut- an flokka eða „ópólitískar" eins og sagt er, og þar af leiöandi greindi okkur oft á um skilgreiningar og áherslupunkta. En við áttum sameiginlega hugsjón og vorum því sammála um það sem raunverulega skipti máli. — Og hvernig var starfinu háttað? í rauninni unnum við saman sem ein- staklingar og sambönd smáhópa fremur en við værum einn stór hópur. Hver og einn einstaklingur, hver og einn hópur, vann að sínu áhugasviði og fundina notuð- um við til að ræða það sem við vorum að gera, fá gagnrýni, stuðning og hugmyndir. Sem dæmi: Þarna voru nokkrir barna- kennarar og þar af leiðandi var m.a. gerð athugun á þeirri þjóðfélagsmynd, sem birt- ist í byrjendakennslubókum í lestri og reikningi. Ragna Ólafsdóttir kennari skrif- aði grein um þetta fyrir hönd hópsins í Samvinnuna 1972 og í Morgunblaðið sama ár. Annar hópur gerði athugun á barnabókum undir leiðsögn Silju Aðal- steinsdóttur, bókmenntafræðings. Hún skrifaði greinargerð og greinargerðin og bókalisti með mati okkar á bókunum, — þeim voru gefnar stjörnur eins og nú er gert við kvikmyndir — voru sendir fjölmiðl- um og dreift í bókabúðir. Enn annar hópur gerði athugun á launamisrétti í bönkum. EddaSvavarsdóttir bankamaðurog Sigur- björg Aðalsteinsdóttir, þá bankamaður en nú félagsfræðingur, birtu grein um þessa könnun í bankablaðinu 1968. Þú getur rétt ímyndað þér hverjar niðurstöðurnar voru! Nú svo vorum við með sérstakan les- hring, sem flestar tóku þátt í, við lásum bækur eins og „Kvengeldingurinn" eftir Germaine Greer og „Hitt kynið“ eftir Simone de Beauvoir o.fl. Það er annars mjög góð grein í 19. júní 1972 sem Gull- veig Sæmundsdóttir Úa, kennari og nú rit- stjóri, skrifaði um störf Úanna. — Hvað varst þú sjálf að aðhafast þarna? Á þessum árum var ég kennari í Mela- skólanum. Sumarið 1970 flutti ég tillögu á fulltrúaþingi barnakennara þess efnis meðal annars, að drengir og stúlkur fengju sömu kennslu í verklegum greinum, þ.e.a.s. í handavinnu og að um það yrðu sett skýr ákvæði I fræðslulög, svo ekki væri hægt að ákvarða annað með reglu- gerð. Það urðu heilmiklar umræður út af þessari tillögu og ég hélt að hún yrði aldrei samþykkt. Einn fulltrúi (karlkyns) ræddi mjög alvarlega um það að ef drengir og stúlkur fengju sömu verkefni væri hreint út sagt hætta á því að kynin yrðu eins! Það vildi svo til að ég var barnshafandi, var al- veg á steypinum, svo ég sá mér leik á borði, stóð upp — stillti mér upp til hliðar við ræðupúltið — sperrti bumbuna blíð- lega framan í þingheim og sagði eitthvað á þessa leið: „Við höfum ekkert aö óttast, því ég tel mig vera talandi dæmi um að kynin verða aldrei eins.“ Auðvitað veltist fólk um af hlátri og klappaði — svei mér ef þessi tillaga fór ekki í gegn á þessu! En vegna þessa fyrirkomulags, sem var á starfi Úanna, fer það eftir því við hverja okkar þú talar, hvað mest ber á góma og hvers við minnumst helst. Mér kemur núna til hugar þessi tillaga mín þarna — hún spratt upp úr athugun sem einn hóp- urinn gerði á námskrá og handavinnu- kennslu í skólum. Og í framhaldi af þessu skrifaði ég grein í Tímann og Menntamál árið 1970, bíddu við, ég ætla nú bara að fletta þessu upp. Jú, þetta er nokkuð merkiilegt. Hérnatlreg ég saman mismun- andi orðalag námskrárinnar frá 1950, þar sem fjallað er um markmið handavinnu- kennslu: DRENGIR ,„ . . þroska hug og hönd. . .“ ,,. . .hagnýta sér ýmiskonar efni- við. . ....virðingu fyrir vinnu. . ,,. . . glæða form- og litaskynjun hans. . STÚLKUR ,,. . .æfa hug og hönd. . .“ ....meta fagra og vandaða vinnu til fegrunar og skrauts á heimili. . .“ ....virðingufyrirlíkamlegrivinnu. . .“ Eins og sjá má er orðalagið mjög mis- munandi og eðlismunur þeirra augljós. Þegar talað var um stúlkur í námsskránni var ævinlega notuð fleirtala, nemendur. En þegar talað var um stráka var eintalan notuð. Að auki var í markmiðum handa- vinnu stráka lögð sérstök áhersla á að rækta einstaklings þroska þeirra. Á slíkt var aldrei minnst þegar stúlkur áttu í hlut. Dragi nú hver sem getur sínar ályktanir af þessum staðreyndum! — Að Kvennaskólamálinu unnu Úur saman sem einn stór hópur? Já. Kvennaskólamálið var auðvitað það mál sem Úurnar stóðu fyrir og mesta at- hygli vakti. Spurningin stóð um það, hvort Alþingi vildi samþykkja að Kvennaskólinn útskrifaði stúdenta. í þá daga fengu piltar ekki aðgang að skólanum. Við vildum að Kvennaskólinn fengi að útskrifa stúdenta þá og því aðeins að hann yrði líka opnaður piltum. Við söfnuðum undirskriftum og sendum Alþingi með ítarlegri greinargerð. Þar stóö m.a. . .: „2. Farsælast er, að piltar og stúlkur séu alin upp sem jafningjar, njóti raunverulega jafnra réttinda og möguleika, séu sam- ábyrg í lífinu og byggi lífsafkomu sína á eigin námi og starfi“. „4. íslenskum konum var með lögum árið 1911 veittur lagalegur réttur til að stunda nám í öllum menntastofnunum landsins. Hins vegar er piltum nú og með frumvarpi þessu, meinaður aðgangur að vissri menntastofnun. Samrýmist þetta tæplega jafnréttis- og frelsishugsjónum nútím- ans. . .“ „5. Samkvæmt íslenskum fræðslulögum og reglugerð menntaskólanna eiga þeir að vera samskólar. . í sjálfu sér var Kvennaskólamálið ekki stórmál, en það var okkur á þeim tíma táknrænt mál, sem hægt var að taka á. Þetta var ekki atlaga gegn skólanum sem slíkum enda lá það fyrir, að Kvennaskólinn var og er góð og merk skólastofnun, sem á sér mikla sögu. Enda höfðu nokkrar okk- ar verið nemendur skólans! í fyrstu ætluðum við einungis að safna undirskriftum 100 kvenna úr sem flestum stéttum. En þegar fiskisagan flaug varð al- gjör sprenging — eitthvað var aö gerast í þjóðlífinu. Síminn stoppaði ekki, íbúðin 19

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.