Vera - 01.12.1985, Qupperneq 23
Minningar einnar sem eftir lifði
ORIS LESSING
Minningar einnar sem eftir liföi kallar Doris Lessing
sjáif „Tilraun til sjálfsævisögu". Petta er afar
sérkennileg „dagbók" konu sem skráir hana einhvern
tíma í framtíðinni viö aöstæður þegar flest það er
gengiö úr skorðum, sem einkennir lífsþægindaþjóö-
félag nútímans. Konan, sem dagbókina skráir, hefur
tekiö að sér aö gæta tólf ára telpu, sem lærir að laga
sig aö breyttum aöstæöum, á meöan fulloröna
konan fylgist með úrfjarlægð og flýr raunveruleikann
inn í ímyndaöa fortíð.
Þýðandi: Hjörtur Pálsson.
„Að sumra dómi er Doris Lessing næstum eins
og völva sem séð getur langt inn í myrka
framtíð og komið orðum að því sem margir
þykjast finna á sér og ímynda sér."
THE CUARDIAN
B
SEM
UFIR
AFRAM
Höfundurinn, Doris Lessing, er einn fremsti núlifandi
rithöfundur í heimi. Hún fæddist áriö 1919 og var
alin upp í Ródesíu, en settist aö í Englandi áriö 1949.
Hún hefur skrifað ótal smásögur og skáldsögur.
Einna þekktust af bókum hennar er trúlega „The
Golden Notebook", sem varö, án þess aö höfundur-
inn heföi beinlínis ætlað sér aö skrifa sérstaka
„kvennabók", nánast biblía kvenna um allan heim á
síöasta áratug.
Doris Lessing hefur veriö boðið til íslands næsta vor
á vegum Listahátíöar. Petta er fyrsta bók hennar sem
gefin er út í íslenskri þýöingu.
BÓKAUTGÁfA
LAUGAVEG1145 -105 REYKJAVÍK - SÍMI 91-622130
23