Vera - 01.12.1985, Qupperneq 28
Launamál kvenna
Launamál kvenna
Launamál kvenna
Borgarstjórn Reykjavíkur hafnar tillögum um endurmat á störfum kvenna! Nítján borgar-
fulltrúar samþykkja aö núgildandi mat sé gott og gilt!
Þá höfum við það!
Síðan Kvennaframboðið tók sæti í borgarstjórn hefur það ítrekað flutt tillögur sem varða
launamál kvenna. Skemmst er frá því að segja að þessar tillögur hafa hlotið lítinn hljóm-
grunn, hafi þær ekki beinlínis verið felldar, hafa þær verið svæfðar svefninum langa í
borgarkerfinu. Sem dæmi má nefna tillögu frá því í nóvember 1982 um að konur sem hafa
gegnt heimilisstörfum eingöngu, verði látnar sitja fyrir um störf hjá borginni og að
reynsla þeirra verði metin til jafns á við aðra starfsreynslu til launa. í febrúar 1983 fluttum
við ásamt fulltrúa Alþýðuflokksins tvær tiliögur, þar sem því var beint til launamála-
nefndar borgarinnar að hún legði áherslu á að koma til móts við kröfur láglaunakvenna
í samningum sem þá stóðu fyrir dyrum. Einnig höfum við flutt tillögu um að launamála-
nefnd verði falið að gera úttekt á meðallaunum karla og kvenna í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar. Nýjasta dæmið af þessum tilraunum okkar til að fá borgaryfirvöld til
að rétta hag kvenna fer hér á eftir:
Fulltrúar Kvennaframboðsins í Reykjavík lögðu þ. 19.
september fram svohljóðandi tillögu í borgarstjórn:
„Borgarstjórn samþykkir að nú þegar verði hafin
vinna við endurmat á launum kvenna hjá borginni, hvort
heldur er um að ræða störf kvenna í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar eða öðrum stéttarfélögum. Borgar-
stjórn samþykkir enn fremur að nýtt starfsmat þessara
starfa liggi fyrir við gerð næstu kjarasamninga. Borgar-
stjórn leggur á það áherslu að við slíkt endurmat verði
nýtt verðgildi starfa lagt til grundvallar og að umönnun-
ar- frumframleiðslu- og þjónustuþættir kvennastarf-
anna verði metnir til jafns við ábyrgðar- frumkvæðis- og
þekkingarþætti hefðbundinna karlastarfa."
Á borgarstjórnar fundinum urðu miklar umræður um
þessa tillögu og um kjör kvenna yfirleitt. Það voru fyrst
og fremst konurnar, sem töluðu, karlarnir voru ósköp
fáliðaðir í salnum á meðan og höfðu fátt til málanna að
leggja. Svo fór að samþykkt var að vísa tillögunni til
borgarráðs. Á borgarráðsfundi þ. 24. september var
síðan samþykkt að vísa tillögu Kvennaframboðsins til
umsagnar embættismanna í starfskjaranefnd.
Umsögn embættismanna
Líður svo og bíður fram til 30. október, en þann dag
létu embættismennirnir svofellda umsögn frá sér fara:
,,Á fun'di borgarráðs 24. fyrra mánaðar var tillögu
borgarfulltrúa Kvennaframboðs frá 19. þ.m. um endur-
mat á launum kvenna vísað til umsagnar undirritaðara.
Röðun starfsmanna í launaflokka jafnt hjá Reykjavík-
urborg sem og á hinum almenna vinnumarkaði byggist
á hefðbundnum viðhorfum um mikilvægi starfa og er
það m.a. tekið tillit til ábyrgðar, frumkvæðis og þekking-
ar eins og fram kemur í tillögunni. Á síðari árum hefur
konum í slíkum störfum hjá Reykjavíkurborg fjölgað.
f tillögunni er lagt til að tekið verði upp nýtt „verð-
gildi“ starta, þar sem umönnunar- frumframleiöslu- og
þjónustuþættir verði metnir til jafns við framangreind
atriði, en endurmatið takmarkist við störf kvenna. Varð-
andi umrædda tillögu viljum við taka fram:
1. Tillaga var lögð fram í borgarstjórn 19. september
s.l. þar er gert ráð fyrir að nýtt starfsmat liggi fyrir við
gerð næstu kjarasamninga. Þau tímamörk verður að
teljast algjörlega óraunhæf. Þegar af þeirri ástæöu er
mælt gegn tillögunni.
2. Auk þess sem að framan greinir skal tekið fram að
starfsmat verður ekki gert án þess að það nái til allra
starfsheita í samningum viðkomandi stéttarfélaga og
mikill fjöldi starfa sé metinn samtímis. Ekki er hægt aö
takmarka slíkt mat við störf kvenna eingöngu.
3. Ákvörðun um gerð starfsmats verður ekki tekin
nema samningsaðilar séu báðir um það sammála og
um hvernig að því skuli staðið.
4. Reynslan af starfsmati, sem fram fór árin
1969—1970 bendir ekki til þess að æskilegt sé að hefja
nú framkvæmd slíks mats.
30. 10. 1985
Gunnar Eydal, Jón G. Kristjánsson, Björn Friðfinnsson.
Þessi umsögn var samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum í borgarráði, þegar hún var lögð þar fram þ. 5.
nóv. Þ.e.a. með atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks,
Davíðs Oddssonar, Magnúsar Sveinssonar, Huldu
Valtýsdóttur og Ingibjargar Rafnar. Fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins, Sigurjón Pétursson og fulltrúi Fram-
sóknarflokks, Kristján Benediktsson sátu hjá. Þar með
lögðu þau öll blessun sína yfir umsögnina og svo mörg
voru þau orð!
Borgarstjórn tekur undir!
Vegna þess að Alþýðubandalagið var að halda lands-
fund daginn, sem næsti borgarstjórnarfundur var, var
öllum „minni háttar" málum (sic!) frestað á þeim fundi
og umræður um umsögnina urðu því að bíða fram til 14.
nóvember. Á þeim borgarstjórnarfundi sátu sem fulltrú-
ar Kvennaframboðsins þær Guðrún Jónsdóttir og Guð-