Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 29
1
A /á
*—
rún Ólafsdóttir. Guðrún Jónsdóttir hóf máls á umsögn
embættismannanna og lagði fram svohljóðandi tillögu:
„Borgarstjórn samþykkir að fela borgarráði að sjá til
þess að ný umsögn verði unnin um tillögu Kvennafram-
boðsins frá 19. 9. um endurmat á launum kvenna sem
hjá borginni vinna.
Borgarstjórn áréttar að í þeirri umsögn verði tryggt að
tillaga fái efnislega og málefnalega umfjöllun.“ Þessi
tillaga var felld — fékk ekki önnur atkvæði en þeirra
Guðrúnanna Jónsdóttur og Ólafsdóttur. Með því hafði
borgarstjórn, líkt og borgarráð gerði áður, samþykkt
umsögn embættismannanna þriggja og tekið undir þau
viðhorf, sem fram koma I orðum þeirra.
Þá létu fulltrúar okkar bóka þetta:
„Við mótmælum þeirri afgreiðslu borgarráðs, sem
gerð var á fundi ráðsins þ. 5. 11. 1985, þar sem sam-
þykkt var umsögn þriggja embættismanna um tillögu
okkar frá 19.9. Tillagan fól í sér að leitað var samþykkt-
ar borgarstjórnar á að taka verði á raunhæfan hátt á því
kynbundna launamisrétti sem konur, er hjá borginni
vinna, búa nú við. Við teljum að efnislegt innihald þeirr-
ar umsagnar sem borgarráð staðfesti standist ekki.
Umsögnin byggist á forsendum sem þeir er hana
sömdu hafa gefiö sér en tekur ekki mið af tillögunni
sjálfri.
í umsögninni er gengið út frá starfsmati í dúr við það
sem framkvæmt var 1969—1970. Tillagan gerir hins
vegar ráð fyrir endurmati á launum kvenna, sem vinna
hjá borginni og að nýtt verðgildi á þau störf verði lagt til
grundvallar við það endurmat.
Aðokkar mati er umsögnin því ómarktækt plagg, sem
ber þess vott að höfundar þess eru annað hvort slegnir
blindu karlveldisins eða fastir í hefðbundnum hugsun-
arhætti skrifræðisins nema hvoru tveggja sé.
Endanlega ábyrgð á samþykkt umsagnarinnar er
hins vegar borgarráðs og borgarstjórnar. Afstað þeirra,
sem í borgarráði sitja og hafa þar atkvæðisrétt er skýr.
Þar er enginn vilji til að bæta kjör kvenna, láglauna-
hópnum hjá borginni. Gildir þar einu hvort um er aö
ræöa konur eöa karla, meirihluta eða minnihluta.
Með samþykkt þessara umsagnar er í raun verið að
lýsa því yfir að kvennastörf séu minna virði en störf karla
og aö svo skuli vera um ófyrirséða framtíö.
Meirihluti borgarstjórnar skipar sér nú í þessa sömu
fylkingu með því að hafnaendurskoðun á umsögn, sem
byggir á ofangreindum sjónarmiðum." Guðrún Jóns-
dóttir fylgdi þessari bókun úr hlaði og fjallaði um um-
sögn embættismannanna, viöhorf fulltrúa bæði meiri-
hluta og minnihluta í borgarstjórn og borgarráöi, um
kjör kvenna og stöðu og röðun kvennastarfa i launa-
flokka. Margt úr máli Guðrúnar kemur fram i ramma-
grein um þetta mál I borgarmálaþætti Veru að þessu
sinni.
Ms