Vera - 01.12.1985, Síða 34
Alþingi okkar fslendinga var sett aftur
þann 10. október s.l. Mun þetta vera
bundraðasta og áttunda löggefandi Al-
þingi sett í Reykjavík og þriðja Alþingi
e.K. eða eftir Kvennalista, samkvæmt
nýju tímatali okkar Kvennalistakvenna.
Setning þessifórfram samkvœmt hefð-
inni, það er, allirþingmenn ogþingkonur
hittast íandyri Alþingis, allir samferða út
í kirkju, allir aftur út íþing með forseta
vorn í fararbroddi, forseti segir Alþingi
sett.
Fyrstu tveir þingfundir vetrarins fór í
að kjósa forseta Alþingis, skrifara og í að
kjósa ífastanefndir. Flestar þessar kosn-
ingar eru formsatriði þar sem yfirleitt eru
kosnir þeir sömu í embœttin og voru í
þeim á undangengnu þingi.
Með þessu þingi komu nýjar reglur um
þingsköþ, þar sem tími hvers mœlanda er
takmarkaður. Sá sem flytur mál fær 15
mmútur til málflutningsins en sá sem
svarar 10 mínútur. Voru þessar reglur
settar til að störf Alþingis gætu gengið
greiðar fyrir sig.
STÓLASKIPTI
Upphaf þessa þings var lítið eitt öðruvísi en geng-
ur. Kom þetta til vegna stólaskiptanna svokölluðu.
Ríkisstjórnin hafði rétt fyrir þingsetningu tilkynnt
breytingar á ráðherraskipan og fór þriðji þingfundur
vetrarins í það að þingmenn þingflokkanna tjáðu sig
um þessar breytingar.
Kristín Halldórsdóttir, háttvirtur 7. landskjörinn
þingmaður, eins og forseti kynnir hana, og Guðrún
Agnarsdóttir, háttvirtur 3. landskjörinn þingmaður,
tóku til máls af þessu tilefni.
Sagði Kristín m.a. að bæði tímasetning og fram-
kvæmd þessa máls væru einstaklega klaufaleg en
sjá mætti að tilfæringar þessar hefðu tvíþættan til-
gang. í fyrsta lagi þá verður formaður Sjálfstæðis-
flokksins ekki eini nýgræðingurinn í ríkisstjórninni
og í öðru lagi setja þessar tilfæringar nýjabrum á rík-
isstjórnina sem gæti leitt til að fólk gæfi henni meira
svigrúm en venjulega gerist með ríkisstjórn sem
hálfnuð er með kjörtímabil sitt. Haft er fyrir satt að
almenningur gefi nýrri ríkisstjórn meiri tíma og tæki-
færi í upphafi kjörtímabils, til að sanna getu sína eða
vanhæfni, en gerist þegar líða tekur á kjörtímabil
hennar. Ennfremur kom fram í máli Kristínar að upp-
stokkun þessi sýndi að þingmenn Sjálfstæðisflokks
settu persónulega metnaðargirnd og þröngaflokks-
hagsmuni ofar þjóðarheill.
Guðrún Agnarsdóttir sagði m.a. að íslenskum
hestamönnum hafi aldrei þótt snjallræði að skipta
um hesta í miðri á. Sagði hún að koma formanns
Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórnina væri tíma-
skekkja og að draumur um sterka leiðtogatilheyrðu
liðinni tíð. ,,Nú gera manneskjur vaxandi kröfur um
þátttöku og virkni til að móta samfélag sitt sjálfar",
sagði Guðrún. Hún innti eftir réttlætingu þess að
innanbúðarvandi eins flokks tefji þingstörf með
þessum hætti og benti á að sætaskiptin dragi athygl-
ina frá úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar. Ennfremur
benti Guðrún á að nýir ráðherrar væru ólíklegir til að
verja hina nýju málaflokka og þar af leiðandi auð-
velda fjármálaráðherra niðurskurðinn.
STEFNURÆÐAN
Strax daginn eftir að stólaskiptin voru rædd á
þingi flutti forsætisráðherra stefnuræðu sína. í stuttu
máli þá var hún uppfull af tölum sem sýna áttu og
sanna að ríkisstjórnin hafi staðið sig svo ósköp Ijóm-
andi vel.
í svarræðu sinni, sagði Sigríður Dúna, að sam-
kvæmt fyrri reynslu þá benti allt til að í stefnuræðu
forsætisráðherra væri margt sem aldrei yrði fram-
kvæmt og margt yrði framkvæmt sem ekki væri í
stefnuræðunni. Sagði hún aö í fyrra hafi til dæmis
ekkert verið minnst á sölu hlutabréfa, kjötmál né
áframhaldandi skerðingu kaupmáttar í stefnuræðu.
Benti hún á að það væri greinilegt að hörð gildi taln-
anna væru metin ofar manngildi hjá ríkisstjórninni.