Vera - 01.12.1985, Side 46

Vera - 01.12.1985, Side 46
því aö pabbi hennar og mamma eru ekki bara pabbi og mamma heldur sérstakir ein- staklingar og aö þaö er ekki svo létt aö vera Dísa, þótt hún sé fallega sólbrún meö Ijóst hár og um leið fer hún líka aö átta sig á sjálfri sér og þar meö verður auðveldara að ná sam- bandi við annað fólk. Allt þetta gerist án þess aö nokkur stórátök eigi sér staö eða dramatískir atburöir, en hætturnar sem liggja í leyni fyrir unglingunum eru sýnileg- ar og nálægar og skapa vissa spennu. Meö því að byggja bókina upp á þann hátt, að annars vegar er sagt frá því sem ger- ist, hins vegar skrifar Edda um það í dagbókina sína, veröur frásögnin fjörleg og ör, jafn- framt fylgjumst við meö því hvernig Edda upplifir hlutina og hvernig hún þroskast og öölast skilning á umhverfi sínu. Það sem ég haföi mest gam- an af er hvernig Edda lærir í gegnum þunglyndi sitt og ein- manakennd aö tjá sig (Ijóði. í lokin er Edda ekki bara stelpa í genginu sem er aö renna inn í vináttusamband viö Steina; hún hefur, eins og nýja vin- kona hennar, Stína, sem lærir á fiðlu af kappi og alvöru, fund- ið sér íþrótt, Ijóðlistina, sem hún vill vinna aö. Stíllinn er eölilegur og óþvingaður. Um málfar ung- linganna er ég ekki alveg fær aö dæma, en mér finnst eins og ég heyri óminn af málfari þeirra unglinga, sem gengu um stofur hjá mér fyrir örfáum árum. Nú er ég bara að reyna aö finna einhvern ungling sem ég þarf að gefa jólagjöf. GÓ ÞETTA R NÚ EINUM OF. . . Höf.: Guðlaug Richter Mál og Menning 1985 Þetta er nú einum of. . . ég tek undir orö Stjána litla 10 ára söguhetjunnar í bók Guðlaug- ar. Eða er þaö ekki fullmikið að eiga 5 yngri systkini, þar af 4 fjörugar systur sem maður þarf oft aö passa fyrir mömmu? Þegar maöur er ungur og fullur af lífsfjöri, langar í slag meö strákunum eöa í fótbolta eða kannski aö eltast viö drauga þá er nú ekki beint skemmtilegt þegar alvara lífsins kallar meö öllum sínum skyldum. Sjálf á ég bara eina yngri systur og þegar viö vorum litlar ogégþurftiaðpassa. . .jáfuss og svei hvaö þaö var leiöinlegt! Sagan hefst þegar Stjáni er á leið heim úr sveitinni eftir skemmtilegt sumar. Hann á heima í kjallaraholu í Vestur- bænum ásamt 5 litlum systkin- um og pabba og mömmu. Pabbi er sjómaður og sjaldan heima og mammma hefur svo mikiö aö gera að hún sér aldrei fram úr því öllu. Hún er stööugt aö vinna. Stjáni kemst að því aö þaö er líka vinna aö vera heima meö allan barnaskar- ann. Þaö er ekkert síöur vinna n aö vera á sjónum eins og pabbi. Þegar erli dagsins lýkur situr hún viö aö sauma, staga og stoppa og er alltaf hálfleið og þreytt. Þaö er líka allt svo miklu leiðinlegra þegar pabbi er ekki heima. En Iffiö á líka sínar björtu hliöar. Þaö leynist ýmislegt skemmtilegt í móunum og mel- unum í Vesturbænum. Gamla Tívolíið er á sínum staö og enn er ekki allt orðið fullt af húsum og hættulegum götum. Krakkarnir kunna að leika sér og taka lífinu létt. Heima í litlu kjallaraholunni má setja upp leikrit í stofunni og ganga í gluggakostunum og ekki er einmanaleikanum fyrir aö fara einsog hjá einbirnum. Við fylgjumst með Stjána heilan vetur og vinkum hon- um bless í sögulok á stööinni hjá BSÍ í Hafnarstæti næsta vor. Hann er aftur á leið í sveit- ina sína langþráðu, laus við barnapössun og skóla. Pabbi er oröinn landkrabbi og fjöl- skyldan er aö flytja í stærri íbúð. Lífið stendur ekki í stað, það er alltaf aö gerast eitthvaö nýtt og spennandi. Þegar Stjáni kemur aftur í bæinn næsta haust bíöur nýr skóli, nýir félagar og nýtt hverfi upp- götvunar. Svona er lífiö, kvíöi og tilhlökkun, sorg og gleöi skiptast á. Þetta könnumst viö öll viö, krakkar ekkert síöur en fullorðnir. Bókin er svo skemmtilega og lipurlega skrifuö aö hana er bara hægt aö lesa í einni lotu. Fín bók fyrir krakka á öllum aldri. „Gefum henni 4 stjörn- Bókasafnið býður upp a þessa þjónustu • Útlán bóka og lestraraðstöðu fyrir börn og ful/orðna • Aðstoð við bókaval og heimildasöfnun ÚTLÁNADEILDIRNAR ERU Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM: Aðalsafn, Þingholtsstræti 29 a Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16 Bústaðasafn, Bústaðakirkju Sólheimasafn, Sólhcimum 27 LESTRASALUR FYRIR FULLORÐNA er í Þingholtsstræti 27 LESTRARSALUR FYRIR BÖRN eru í Bústaðasafni og Sólheimasafni SÖGUSTUNDIR eru frá 1. október til 30. apríl, í aðalsafni á þriðjudögum kl. 10.30—11.30, í Bústaðasafni á föstu- dögum kl. 10—12 og í Sólheimasafni á miðvikudögum kl. 10—12 • Heimsendingu bóka til fatlaðra SÉRÚTLÁN: Bækur lánaðar skipum og stofnunum. Afgreiðsla í Þingholtsstræti 29 a # Sögustundir fyrir börn BÓKIN HEIM — Sólheimum 27, sími 83780. Heimsendingarþjónusta á prentuðum bókum við fatlaða og aldraða. Símatími: Mánudaga og fimmtudaga kl. 10—12. 46

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.