Vera - 01.12.1985, Síða 49
annast Einar Einarsson gítar-
leikari, Pétur Grétarsson
trommari, Sigurður Rúnar
Jónsson ,,altmuligmand“,
Tómas R. Einarsson kontra-
bassaleikari og Valgeir Skag-
tjörð píanóleikari. Samleikur
þeirra og aðlögunarhæfni við
spænskættaða takta eru til
fyrirmyndar. Ekki get ég samt
að mér gert að hrósa sérstak-
lega Einari fyrir gítarleikinn,
sem er með því besta sem ég
hef heyrt á íslenskri plötu, og
Pétri Grétarssyni fyrir fjöl-
breyttan áslátt, og svo þeim
Einari og Sigurður Rúnari fyrir
útsetningu.
Á morgun er pólitíska plata.
Textar gegn her, fyrir friði og
jafnrétti, um ástina, og endar
skörulegt efnisvalið á falleg-
asta lagi þessarar plötu og þótt
víða væri leitað: Þökk sé
þessu lífi, eftir chilönsku bar-
áttukonuna Violetu Parra, í
þýðingu Þórarins Eldjárns.
Ég sagði pólitísk. . . þetta er
póliltík hins æðrulausa og sjálf-
stæða hugar, sem þorir og
nennir að berjast fyrir lífi sínu
og mannkyns þrátt fyrir von-
laust ástand á stundum gagn-
vart ,,kerfum“ heimsins. Þetta
er baráttuplata fyrir lífinu, en
líka lofsöngur um það, og allar
ærlegar manneskjur geta tekið
undir, láti þær af flokkspólitísk-
um átrúnaði: og söngvar mín-
ir eru ykkar söngvar og
söngvar allra eru sömu
söngvar (Úr þökk sé þessu
lífi).
í lokin smáathugasemd í
sambandi við textablað, sem
er mjög smekklegt, eins og
albúmið: gjarnan hefðu mátt
fylgja sögukorn með hverju
lagi, um tilurð þess og höfund.
Andrea Jónsdóttir
Kvennaráðgjöfin
Kvennaráðgjöfin hóf starf-
semi sína í febrúar 1984. Hóp-
ur kvenna tók sig saman og
kom upp opinni ráðgjafarþjón-
ustu fyrir konur, eitt kvöld í
viku. Grundvöllurinn fyrir starf-
seminni var það mat okkar að
konur stæðu almennt verr að
vígi en karlar félagslega og
fjárhagslega og réttur þeirra
væri oft fótum troðinn.
Kvennaráðgjöfin var tilraun til
að bæta úr því.
Ráðgjöfinni er þannig hagað
að 4—6 konur eru í ráðgjöfinni
hvert opnunarkvöld. í ráðgja-
farhópnum eru konur á ýmsum
aldri, sem hafa lært eða eru að
læra félagsráðgjöf eða lög-
fræði. Konur leita til ráðgjafar-
innar bréflega, með því að
hringja eða koma. Þeim kon-
um sem koma er boðið upp á
að ræða sín mál við ráðgjafar-
hópinn eða einkaviðtöl við eina
eða fleiri úr ráðgjöfinni. Ekki
þarf að gefa upp nafn og fyllsta
trúnaðar gætt varðandi þær
upplýsingar sem óhjákvæmi-
lega koma oft fram í slíkum við-
tölum. Ráðgjöfin er ókeypis,
enda unnin í sjálfboðavinnu.
Nú hafa um 300 konur leitað
Kvennaráðgjafarinnar eða um
5 konur hvert opnunarkvöld.
Langflestar konurnar, eða 240
hafa komið, en bréfaþjónustan
verið mjög lítið nýtt.
Við vitum að viö höfum ekki
leyst allan vanda þessara
kvenna, en erum þess fullviss-
ar að flestar þeirra hafa fengið
einhverja úrlausn með því að
leita til Kvennaráðgjafarinnar.
Þær konur sem leitað hafa til
ráðgjafarinnar koma úr öllum
stéttum, stunda mismunandi
störf og hafa ólíka menntun.
Stærstu hóparnir eru þó ófag-
lærðar verkakonur og heima-
vinnandi húsmæður.
Meginhlutinn hefur leitað
eftir upplýsingum eða ráðgjöf
vegna hjónaskilnaðar eða ann-
arra félagslegra eða persónu-
legra vandamála. Flestar kon-
urnar búa á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, en þó er töluvert um
að konur ekki aðeins hringi
heldur komi utan af landi. Það
lýsir þörfinni fyrir þessa þjón-
ustu að dæmi eru um það að
konur leggi á sig 2ja stunda
akstur til að koma í ráðgjöfina.
Þessi mikla aðsókn I
Kvennaráðgjöfinasýniraðekki
er vanþörf á svona þjónustu,
en vekur jafnframt spurningar
um hvort ekki sé nauðsynlegt
að efla enn frekar slíka þjón-
ustu, bæði þannig að fleiri geti
notið hennar og eins þannig að
hægt sé að veita konunum
sem leita eftir aðstoð betri
þjónustu.
Kvennaráðgjöfin er opin frá
kl. 20—22 á þriðjudögum og er
til húsa í Kvennahúsinu við
Hallærisplanið. Síminn er
21500. Utanáskrift:
Kvennaráðgjöfin
Kvennahúsinu
Vallarstræti 4
Pósthólf 836, 101 R.
miaa
•jikUiiP±\n
í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkur
hefur afmælisnefnd í samvinnu við
Sjónvarpið ákveðið að efna til samkeppni
um lag tileinkað Reykjavík.
_______________Verðlaunin_________________
Heildarverðlaun fyrir lag og texta nema kr. 175
þúsundum. Fyrstu verðlaun eru kr. 100 þúsund.
Önnur verðlaun eru kr. 50 þúsund. Þriðju
verðlaun eru kr. 25 þúsund.
Lagahöfundur hljóti % verðlauna og
textahöfundur xh eins og úthlutunarreglur
STEFs segja til um.
__________________Lögin___________________
Til þess er ætlast að lögin séu í dægurlagastíl
frekar en einsöngs eða kórlagastíl og séu í
algengri lengd slíkra laga.
________________Textarnir_________________
Texti skal fylgja hverju lagi og fjaUi efni hans
um Reykjavík, sögu borgarinnar fyrr eða nú,
mannlífið eða atvinnuhætti, eða hvaðeina
annað er tengist 200 ára afmælinu eða
höfuðborginni sjálfri.
______________Fyrirkomulag________________
Lögum (ásamt textum) skal skila í
píanóútsetningu, eða skrifaðri laglínu með
bókstafahljómum eða fluttum á tónsnældu.
Skilafrestur er til 31. janúar 1986.
Lögin og textar skulu vera í lokuðu umslagi
merktu dulnefni. 1 því sama umslagi fylgi
umslag merkt hinu sama dulnefni þar sem í er
nafn höfundar eða höfunda ásamt nafnnúmeri,
símanúmeri og heimilisfangi.
_______________Dómnefnd___________________
Úr þeim lögum sem berast velur dómnefnd
fimm lög sem keppa til úrslita í sjónvarpinu í
mars 1986 eftir nánari reglum sem dómnefnd
setur.
Dómnefnd skipa: Svavar Gests,
hljómlistarmaður, sem jafnframt er formaður
nefndarinnar, Birgir ísleifur Gunnarsson,
alþingismaður, Friðrik Þór Friðriksson,
kvikmyndagerðarmaður, Gunnlaugur
Helgason, dagskrárgerðarmaður, Kristín Á.
Ólafsdóttir, leikkona.
__________________Útgáfa__________________
Afmælisnefndin áskilur sér rétt til að gefa út
eða ráðstafa til útgáfu á hljómplötu/tónsnældu
fimm efstu lögunum án frekari viðbótargreiðslu
en um getur í töxtum STEFs varðandi
hlj ómplötuútgáfu.
________________Utanáskrift_______________
Lög og textar sendist afmælisnefnd
Reykjavíkur, Austurstræti 16, 101 Reykjavik
fyrir 31. janúar 1986. i
hmmmh 9||
AFMÆLlSNEFNOREnUAVÍKUR
49