Vera - 01.10.1987, Blaðsíða 20
„Vertu viss, ég mun einskis láta ófreistað
til að eyðileggja hana og brjóta niður í
henni allar þessar fölsku siðgæðishug-
myndir sem búið er að rugla hana með. í
tveimur kennslustundum skal ég gera hana
mér jafna. Eins mikið glæpakvendi og ég
er sjálf, eins svallsama og drykkfellda, já í
einu orði sagt; jafn gjörspillta og ég er".
Úr Philosophy in the Bedroom eftir
Marquis de Sade.
Myndskreyting við
bókina Justine eftir
Marquis de Sade.
Marquis de Sade sem hét réttu rtafni Donatien — Alphonse — /
Francoisde Sade var uppi áárunum 1740—1814. Hann er tvímaela-
laust fremstur allra klámkónga bæöi fyrr og síðar og aðalhöfundur
þeirrar hugmyndafræði sem nútíma klámiðnaður byggist á. De
Sade var rithöfundur og atkvæðamikill kynlífssvallari og ofbeldis-
maður. Hann rændi konum (stundum keypti hann þær, einkum
gleðikonur), hélt þeim föngum í húsi sínu, pyntaöi þær, naugaði og
misþyrmdi, byrlaði nokkrum fórnarlamba sinna eitur og að lokum
tókst honum aö.murka lífið.jjr einu þeirra. hað var fimmtán ára
stúlka, ein af fimm á líkum aldri sem hann hélt innilokuðum á sveita-
setri sínu Lacoste í Frakklandi. Hún dó af sárum sínum eftir margra
mánaða þjáningar en de Sade meinaði stúlkunum um læknishjálp.
Þá þegarvar hanndæmdur maðuren hafði komistundan réttvísinni
til Ítalíu og lék þar lausum hala. Síðar sneri hann aftur til Frakklands
og ennþá tókst honum að sleppa frá glæpum sínum enda var hann
af göfugum ættum og átti áhrifamikla vini sem héldu yfir honum
verndarhendi. Samt var honum stungið inn að lokum en þá var búið
aödæma hann til dauöa. Fyrir misskilning varannar maður með líku