Vera - 01.10.1987, Side 34
sr^l8ÍIoa
^«tó8ttur
Upplý«lngor
Dæmi um nýja og gamla auglýsingatækni.
:jkmíkurborg
<un Stödcn
ístrur
dagvistarheimili:
1 v/Maríubakka. s. 73090.
Hlaðbæ, s. 84150.
faborg v/Skólabæ, s.
nborg v/Hraunberg, s.
'/Laufósveg, s. 17219/
rmúla, s. 685154.
írænuhlíö, s. 36905.
— '/Völvufell, s. 77270.
27*'' 0 v/talöndubakka.
/tgisborg v/Ægisborg.
Leiksk. Fellaborg/Fellaborg.
- Leiksk. Hólaborg.
- Dagh. Valhöll.
- Dagh./leiksk. Foldaborg.
- Dagh./leiksk. Nóaborg.
- Dagh. Sunnuborg v/Sólheima.
Upplýsingar veita forstöðumaður viðkomandi
heimila og umsjónarfóstrur í síma 27277.
Viltu lifandi og gefandi starf?
— Starfsfólk óskast á dagvistarheimili —
Já, það vil ég — þetta er örugglega eitthvað sþenn-
andi og áhugavert, ekki innantóm tölvuvinna, þreytandi
iðnaðarvinna eða færibandaleg verksmiðjuvinna.
Þarna er verið að vinna með börn í samvinnu við for-
eldra og uppeldismenntað fólk. Auglýsingar eftir starfs-
fólki á dagvistarheimili eru óteljandi. Dagvist barna
hefur auglýst undanfarið í helgarblöðunum eftir starfs-
fólki án teljandi árangurs. Einnig hafa einstök dagvist-
arheimili auglýst sérstaklega.
Sunnudaginn 9. ágúst var t.d. auglýst eftir starfsfólki
á 22 dagvistarheimili hér í borg án teljandi árangurs.
Samt hafa borgaryfirvöld ekki séð neina ástæðu til þess
að hafa áhyggjur og athuga hvað veldur. Það sýnir við-
horf þeirra til barna.
Staöreyndir
— Dagvist barna þegir þunnu hljóöi —
Erfiðleikar við að ráða starfsfólk hafa aukist undan-
farin ár og eru líklega í hámarki nú, þó svo að talsmenn
Dagvistar barna lýsi því yfir að þetta sé allt í góðu lagi
núna og foreldrar þurfi litlar áhyggjur að hafa. Stað-
reyndin er hinsvegarallt önnur. ídag(15. ágústjerstaö-
an hjá nokkrum dagvistarheimilum svona:
Lítið dagh. í austurbænum. Þar hefur verið auglýst
6 sinnum og það hafa komið 2 fyrirspurnir. Þar hættu 5
starfsmenn af 7 í sumar og 1. sept. vantar 3 starfsmenn.
Stórt dagh. í miðbænum. Þar hættu 8 af 15 og enn-
þá vantar fólk þar.
Stórt dagh. í Breiðholti. Frá áramótum þar til 1.
sept. hætta 7 af 12 (í dag vantar 4). Þar hefur verið grip-
ið til þess að ráða fólk í stuttan tima til þess að hægt sé
að hafa opið.
Leikskóli í Breiðholti. Þann 1. sept. vantar 4 starfsm.
e.h. Þar hefur ein deild eftir hádegi verið lokuð frá 1.
maí og fyrir hádegi frá 4. ágúst.
Þetta er ekki eina dagvistarheimilið sem hefur þurft
að loka deild. Mjög mörg dagvistarh. gátu ekki opnaö
allar deildir eftir sumarfrí (4. ágúst) og hefur lokunin ver-
iö mislöng, allt frá því að vera 4 dagar og upp í það að
sjá ekki fram á opnun. Það er athyglisvert að velta því
fyrir sér hvers vegna það þyki ekkert fréttnæmt hjá Dag-
vistun barna að ein leikskóladeild hefur verið lokuð síð-
an 1. maí. Það hefur heldur ekki þótt tiltöku mál að mörg
dagvistarheimili hafa ekki fullan barnafjölda á skrá
vegna mannfæðar.
Skipta launin einhverju máli?
Það er nú það — er ekki nóg að starfið sé lifandi og
gefandi, þaö skyldi maður ætla.
Staðreyndin er hinsvegar önnur. Mjög góð aðstoðar-
stúlka hafði starfað í 3 ár og hætti vegna launanna. Hún
hafði 28.500.00 kr. á mánuði en fékk vinnu við síma-
vörslu og létt skrifstofustörf þar sem byrjunarlaunin eru
39.000.00 kr. Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum
áþekkum. Forstöðumenn á dagvistarheimilum þekkja
þetta mjög vel. Þegar hæft og efnilegt fólk athugar með
vinnu og heyrir um launin þá þakkar það fyrir sig og
segist auðvitað ekki getað lifað af slíku. Það verði að
leita að öðru.
Ein leið Dagvistar á sínum tima var að bjóða fólki með
börn á forskólaaldri pláss fyrir börnin sin. Þó nokkrar
konur hafa komið til starfa á þessum forsendum, en það
hefur ekki dugað til.
Getur eitthvað annað en launin verið að?
Jú, en flestum bersaman um að þau séu stærsta fæl-
an. Aðbúnaðurinn og álagið á dagvistarheimilum er líka
stór þáttur þ.e. barnafjöldi á deildum er alltof mikill. Við-
vera starfsmanna á deildum er alltof löng og það gefst
enginn tími til undirbúnings. Fóstruskortur er mjög
mikill. Stuðningur við börn með erfiðleika er lítill.
Allir þessir þættir suðla líka að því að starfsfólk endist
illa í þessum störfum. Með lágum launum í ofanálag er
þetta orðin hringrás sem erfitt er að stöðva, nema grípa
til einhverra varanlegra og fljótvirkra aðgerða.
Börnin — aukaatriöi?
Börnin gjalda þessa ástands, ekki hætta foreldrar að
hafa þörf fyrir dagvistun. Kröfur foreldra varðandi upp-
eldislegt gildi dagvistar fara þverrandi.
Foreldrar fá fyrst áfall yfir stöðunni, verða síöan reið-
ir, fyllast svo uppgjöf og verða fegnir bara ef deildin