Vera - 01.08.1993, Síða 30
ÞROSKI
SEM SAMFÉLAGID SKORTIR
Áður hétu þær gæslusystur, nú
þroskaþjálfar. Konur eru í mikl-
um meirihluta í þessari einu
starfsstétt sem alfarið menntar
sig til að veita fötluðu fólki þjón-
ustu. Þroskaþjálfastéttin varð til
vegna þess að samfélagið hafnaði
fötluðum. Almennar stofnanir á
borð við dagheimili, skóla og jafn-
vel sjúkrahús stóðu þessu fólki
ekki opnar og það hafði því ekki
aðgang að þjónustu sem byggði á
fagþekkingu.
Helga Birna Gunnarsdóttir for-
maður Félags þroskaþjálfa segir
að kvennastétt sem vinnur með
fötluðu fólki búi við tvenns konar
mismunun. Annars vegar vegna
kynferðis og dæmigerðra kvenna-
vinnubragða sem felast í þvi að
hlúa að öðrum manneskjum.
Hins vegar vegna þess að stéttin
leggi áherslu á að örva færni og
þroska vanmetins hóps, sem ekki
eru bundnar vonir við að mali
samfélaginu gull í venjulegum skilningi. Þroska-
þjálfar eigi því bæði erfiðara uppdráttar en
karlastéttir og aðrar kvennastéttir.
Fjársjóður
Helga Birna segir að þroskaþjálfun sé þó mjög
gefandi starf.
„Um þessar mundir er ég að vinna með fötluðu
fólki sem flest er um og yfir miðjum aldri. Fæst
þessa fólks fékk nokkra þjálfun í uppeldinu sem
hefði getað dregið úr fötlun þess. Það situr uppi
með skilgreiningar á ástandi og mörg ör á sál-
inni. En allt þetta fólk á það sameiginlegt að hafa
notið þrotlausrar umhyggju mæðra sinna og það
er því drjúgt veganesti.
En fatlað fólk býr yfir miklum þroska - ekki
síst það sem er skilgreint þroskaheft. En það eru
aðrar áherslur í þroska þess, en í þroska ófatl-
aðra, sem byggist á því að það býr yfir öðruvisi
reynslu og þess vegna er þessi þroski ekki met-
inn. Það eru reyndar forréttindi að fá að skyggn-
ast inn í þennan sérstæða reynsluheim og læra
af honum og í samskiptum við fatlaða njóta
þroska þeirra sem einkennist af ótrúlegri aðiög-
unarhæfni, innsæi og skilningi á kjörum þeirra
sem minna mega sín. Fatlaðir
búa einmitt yfir þroska sem sam-
félagið skortir svo mjög. En sam-
félagið hefur auðvitað ekki upp-
götvað þennan fjársjóð.”
Lítils metin störf
Starfssvið þroskaþjálfa er mjög
yfirgripsmikið. Þeir hjálpa fötl-
uðu fólki á öllum aldri við að fóta
sig á öilum sviðum samfélagsins.
Störf þroskaþjálfa eru öðrum
þræði mannréttindabarátta. Þeir
hafa frá upphafi tekið virkan þátt
í að móta stefnuna í málefnum
fatlaðra og endurskoðað hlutverk
sitt, menntun og starfshætti með
hliðsjón af þróuninni hveiju sinni.
Helga Birna segir að þroskaþjálfar
séu að vinna mikilvæg störf og
þeim sé ekki nægjanlegur gaumur
geíinn og ekki metnir sem skyldi.
„Það pirrar mig hvað störf okk-
ar eru lítils metin enda þykir mér
engin dyggð fólgin í því að láta
30