Vera - 01.08.1993, Síða 35
S K <£> L A R
O G
N Á M S K E I Ð
BRÉFANÁM ER GÓÐUR KOSTUR
Bréfaskólinn er 53 ára gömul
rótgróin stofnun í íslensku þjóð-
félagi. Þó að margar og miklar
breytingar hafi orðið á skólum og
fræðslustarfsemi í landinu á
þessum tima er enn mikil þörf
fyrir þennan sérstæða skóla. Enn
er margt fólk í landinu, bæði í
dreifbýli og þéttbýli, sem ekki á
heimangengt, er bundið yfir
börnum, öldruðum eða sjúkling-
um. Ennfremur eiga þeir sem
vinna vaktavinnu erfitt með að
sækja heíðbundin námskeið.
Þetta gildir einnig um sjómenn en
stór hópur þeirra er við nám í
bréfaskólanum.
Ariega leita nærri þúsund
manns til Bréfaskólans. Þetta er
fólk á öllum aldri, frá 12-85 ára,
úr öllum þjóðfélagshópum. Kon-
ur eru í miklum meirihluta. Fýrir
margar konur sem heíja nám að
nýju eftir margra ára hlé frá
skólagöngu er fjarnám góður
kostur. Þar getur hver og einn
fikrað sig áfram á sínum hraða án þess að hafa
áhyggjur af samkeppni og samanburði í hópi.
Nemendur í fjarnámi efla með sér sjálfstraust og
sjálfstæði í vinnubrögðum.
Bréfaskólinn býður upp á námsráðgjöf og mjög
margir nýta sér hana þvi að ótal spurningar
vakna þegar velja skal nám. Til þess að aðstoða
nemendur við námið eru notuð kennslubréf með
leiðbeiningum, útskýringum, æfingum, svörum
og verkefnum til að senda kennurum skólans til
yfirferðar og umsagnar. Auk þess eru notuð
hljóðbönd, myndbönd, símbréf og sími. Náms-
skilyrði hafa því breyst mikið í Bréfaskólanum
með nýrri tækni, þó að ritað mál sé enn og verði
alltaf snar þáttur í fjarkennslu. Bréfanám eða
fjarnám er þaulreynd aðferð sem er sífellt í þró-
un.
^Aargir hámenntaðir menn í íslensku þjóðfélagi
stigu fyrstu skrefin á menntabrautinni í Bréfa-
skólanum og bera hlýhug til hans æ síðan.
Bréfaskólinn gegnir enn mikilsverðu hlutverki
enda veitir hann mörgum íslendingum mögu-
leika til menntunar. Skólinn hefur lagað sig að
þörfum nútímafólks og býður nú upp á nám í
tölvubókhaldi, markaðssetningu, sálarfræði,
teikningu og stafsetningu svo
eitthvað sé nefnt. Ýmiss konar
starfstengd námskeið og erlend
tungumál eru fyrirferðarmikil.
Bréfaskólinn hefur á siðustu
árum fært starfsemi sína út fyrir
landsteinana og hefur á boðstól-
um námsefni í íslensku fyrir út-
lendinga sem er afar vinsælt.
Kynningarefni er sent ókeypis.
Guðrún Friögeirsdóttir
skólastjóri Bréfaskólans,
Handavinna
ÓDÝR SAUMANÁMSKEIÐ
Aðeins 4 nemendur í hóp,
Faglœrður kennari
Upplýsingar í síma 17356
Sparaðu tíma og ferðakostnað
Við notum kennslubréf,
síma og símbréf,
námsráðgjöf til að aðstoða
þig við námið.
Þú ræður námshraðanum sjálf(ur).
Mikið úrval
námskciða
* Erlend tungumál
* Nám á framhaldsskólastigi
* Vélavarðarnám
* Markaðssetning
* Islensk stafsetning
* Teikning
* Sálarfræði
* Tölvubókhald og
niargt fleira
HÚSSTJÓRNARSKÓLI
REYKJAVÍKUR
tekur til starfa 1. september
Á haustönn eru haldin námskeið í vefnaði,
fatasaumi, útsaumi og bótasaumi.
Ennfremur eru margvísleg matreiðslunámskeið
t.d, 6 vikna námskeið fyrir byrjendur, Auk þess
eru haldin stutt námskeið í t.d. gerbakstri,
fiskréttum, pastaréttum og fleiru.
Á vorönn er rekinn 5 mánaða hússtjórnarskóli
og námskeiðin halda áfram eftir því sem
húsnœðið gefur tilefni til.
HÚSSTJÓRNARSKÓLI
REYKJAVÍKUR
SÓLVALLAGÖTU 12, SÍMI 91-11578
35