Vera - 01.08.1993, Side 40
I S R A E L
1
Ég þjálfa konur sem eru með
börn á aldrinum sex mánaða til
þriggja ára í gæslu á heimilum
sínum. Börnin koma oft frá heim-
ilum sem eiga við félagsleg
vandamál að striða og ég veiti for-
eldrunum einnig ráðgjöf. Mér lík-
ar starfið vel og kynnist mörgum
í gegnum það, t.d. strangtrúuð-
um konum sem hafa allt aðra
lífssýn en ég. Þó mér finnist ég
ekki mikill feministi þá er ég viss
um að þeim finnst ég vera það!
Það sem þeim finnst styrkja
stöðu sína finnst mér veikja
hana. Flestar mega ekki nota
getnaðarvarnir og eiga því ara-
grúa barna, þannig viðhalda
strangtrúaðir m.a. völdum sín-
um. Þær telja sig t.d. hafa ákveð-
ið vald þar sem trúin kveður á
um hvenær eiginmenn þeirra
mega njóta þeirra. Þegar konan
er „óhrein" í kringum blæðing-
arnar, má eiginmaðurinn ekki
hafa mök við hana. Hvilík tilvilj-
un að hjón mega bara hafa sam-
farir þegar konan er frjó! „Óhrein-
ar” konur valda strangtrúuðum
karlmönnum miklum vandræð-
um. Þeir fóru þvi fram á það í Jer-
úsalem að fá sérstakan strætis-
vagn, þvi karlmenn á leið til
bæna mega ekki sitja hjá konum
því þær gætu verið óhreinar.
Þessu var harðlega mótmælt og
þekkt stjórnmálakona tróð sér
inn í strætisvagn til þeirra til að
koma í veg fyrir kynjaskipta
vagna. Þeir fengu þessu því ekki
framfylgt.
Strangtrúaðir og feministar
eiga þó eitt sameiginlegt baráttu-
mál. Þó rökstuðningur þeirra
byggist á gjörólíkri hugmynda-
fræði eru þeir sammála um að
kvenlíkaminn sé „misnotaður” í
auglýsingum. Auglýsingar í ísrael
eru hræðilegar, það er ekki að-
Joan Talkowsky.
eins að naktar konur auglýsi bíldekk heldur er
daðrað við annað og hræðilegra, auglýsendum
finnst ekkert tiltökumál að gefa t.d. í skyn
nauðgun eða annað ofbeldi gegn konum til að
koma vörum sínum á markað.”
í fyrra lauk fimmtán ára valdaferli hægristjórn-
ar Shamirs og við tók samsteypustjórn miðju- og
vinstrimanna undir stjórn Rabins. Einn fjöl-
margra nýrra flokka sem var í framboði en fékk
engan mann kjörinn var nýr Kvennaflokkur (sér-
stakur kvennalisti var boðinn fram í ísrael
1977). Þó svo að úrslit kosninganna hafi vakið
mikla athygli og verið talin marka tímamót
bættu konur aðeins við sig þremur þingsætum.
Nú sitja ellefu konur á þingi og hafa ekki verið
fleiri frá þvi 1955. Talsverðar vonir eru bundnar
við þingkonurnar en sex af þeim hafa verið virk-
ar í friðarhreyfingum kvenna. Tvær konur eru
nú í stjórn og fengu báðar ráðherraembætti, Ora
Namir er heilbrigðisráðherra og Shulamit Aloni
varð ráðherra menningar- og menntamála.
Fyrirrennarar Alonis tilheyrðu trúarlegum flokk-
um og val Rabins á henni sprengdi hérumbil
stjórnina enda er hún kunn fyrir störf sín að
friðarmálum og vill aðskilnað rikis og „kirkju”.
Aloni sagði m.a. í viðtali við bandarískt blað að
strangtrúaðir gyðingar óttuðust
leit nýrra úrræðna til að aðlaga
hefðir að nútímalífi. Hún sagði að
til væru þeir sem teldu að gyðing-
ar yrðu að lifa samkvæmt sið-
venjum sem voru ákvarðaðar fyr-
ir mörg hundruð árum, „og þar
með talin staða kvenna. Hvers
vegna höfum við ekki leyfi til að
skrifa nýjar bænir, nýjar bók-
menntir?” Þessi ummæli hennar
fóru svo fyrir bijóstið á strangtrú-
uðum að þeir kröfðust afsagnar
hennar ella gengu þeir úr ríkis-
stjórninni. Hún varð að biðjast
opinberlega afsökunar og lofa því
að strangtrúaðir fengju aukin á-
hrif í ríkisskólum.
„Friður er mál málanna í ísrael,”
segir Joan. ,AHir vilja frið og allt
annað situr á hakanum. Ég ótt-
ast að þegar friður loksins næst,
þá bijótist út borgarastyijöld í
ísrael. En sú styijöld verður háð
án vopna. Það eru til margar
gerðir af gyðingum og meirihluti
ísraelsbúa er ekki trúaður og vill
þvi ekki lúta trúarlegum lögum. í
einu blaðanna í vetur var langur
listi yfir allt sem fólk gæti gert til
að losna undan trúarlegu lögun-
um, t.d. að fara til Kýpur og gifta
sig þar. Það eru margir sem vilja
láta afnema öll trúarleg lög. Það
mun verða tekist á um hvort
minnihlutahópur strangtrúaðra
gyðinga eigi að leggja línuna
áfram eða hvort sett verði stjórn-
arskrá sem kveður meðal annars
á um málfrelsi.
Þetta er fyrsta utanlandsferðin
mín í nokkur ár. Eftir nokkra
daga dvöl hér á íslandi fann ég til
svo mikils léttis. Það er svo gott
að komast í burtu og fá frí frá
samviskubitinu. Það er þrúgandi
að finnast maður vera kúgari.”
RV
1 FINNBOGA Laugavegi 178 2.hæð | simi 686140 LIGGJA VEGGMINJAR UNDIR SKEMMDUM HJÁ ÞÉR? Við innrömmum málverk og Ijósmyndir af öllum stcerðum og gerðum Köld og heit plasthúðun á kortum, Ijósmyndum og plakötum.
40