Vera - 01.12.1993, Síða 2

Vera - 01.12.1993, Síða 2
VERA TÍMARIT UM KONUR OG KVENFRELSI ÉG ER EKKI KVENRÉTTINDAKONA, EN... í haust birtist í Nýju lífi viðtal við Hildi Jónsdóttur og Vilborgu Harðardóttur sem ber titilinn „Tekist á við tregðulögmálið". Þær voru báðar mjög virkar í Rauð- sokkahreyfmgunni, og rætt er við þær um það sem hefur áunnist og það sem á vantar til að hægt sé að tala um jafnrétti kynj- anna. I formála að viðtalinu segir blaðakona: „Kvennabaráttan er í lægð. Sumum finnst engin ástæða til að halda henni áfram en fáeinum konum blöskrar sinnuleysi kynsystra sinna um réttindamál sín. Eitt er víst að ungar konur eru ekki eins baráttuglaðar og þær voru fyrir tveimur áratugum.“ Eini áherslutextinn sem fylgir greininni hljóðar svo: „Flestar þeirra kvenna, sem störfuðu í kvenfrelsis- hreyfíngunni á sama tíma og ég, eru núna fráskildar.“ Skilaboðin gætu vart verið skýrari til þeirra sem lesa ekkert nema fyrirsagnir og áherslutexta: Konur verða að velja - hjónaband og kvennabarátta fara ekki saman. Og hverjar eru þessar „fáeinu konur" sem blaðakona segir að blöskri sinnuleysi kynsystra sinna? Eru það þessi 20 prósent sem sögðust í skoðanakönnun nokkrum vikum síðar myndu kjósa Kvennalistann? Hví tönglast fjölmiðlar á því að kvennabaráttan sé í lægð? Vonast þeir til að drepa hana í dróma með því? Eða er þetta hræðsluáróður til að hvetja ungar konur til dáða svo þær glati ekki réttindum sem frumkvöðlamir höfðu mikið fyrir að ná fram konum til handa? Svo virðist sem menn keppist við að gera sem minnst úr áfangasigrum kvennahreyfingarinnar. Og hún fær sjaldnast heiðurinn af verkum sínum. Um þessar mundir minnumst við þess að tíu ár eru liðin síðan Samtök um Kvennalista voru stofnuð. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum áratug og margt er öðruvísi í henni veröld. Þegar Kvennaframboðið og Kvennalistinn vom stofnuð þótti til dæmis smart að vera kven- réttindakona. Konur vora stoltar af nafn- giftinni og því að tilheyra hinni nýju kvennahreyfíngu. Hin síðari ár hefur verið reynt að telja okkur trú um að femínisminn hafí siglt í strand. Kvennalistinn er ekki lengur sagður vera á krossgötum heldur kominn í öngstræti. Hamrað er á að hann nái ekki eyrum kvenna og margir telja fúlla þörf á nýrri kvennahreyfingu en segja jafnframt að tilvera Kvennalistans konri í veg fyrir að hún nái að vaxa og dafna. Kvennalistinn, ólíkt fjórflokkunum, þarf sífellt að réttlæta tilvist sína og tilvistar- kreppa flokkanna er iðulega tekin út á Kvennalistanum. Fáar kvenimyndir hafa verið skramskældar jafn mikið hin síðari ár og sú af kvenréttindakonunni. Nú er svo komið að sífellt fleiri konur sverja hana af sér. Það er eins og fólki standi einhver ógn af kvenréttindakonum, sérstaklega ef þær kalla sig femínista. Hve oft heyrist ekki sagt: „Eg er ekki kvenréttindakona, en...“ og það sem á eftir kemur sýnir oftar en ekki að viðkomandi er í raun kven- réttindakona. Ef betur er að gáð aðhyllast nefnilega margir grundvallarmarkmið kvennahreyfíngarinnar án þess að gera sér grein fyrir því; vilja sömu laun fyrir sam- bærileg störf, jöfn tækifæri til menntunar og starfa, góðar og öraggar getnaðarvamir, frjálsar fóstureyðingar, fæðingarorlof og dagvistarstofnanir. Það eru til margar skilgreiningar á femínisma, sú sem mér þykir einna best er þessi: „Eg hef aldrei vitað nákvæmlega hvað orðið femínisti þýðir. Eg veit bara að í hvert skipti sem ég læt í ljós skoðanir sem greina mig frá gólfmottu kallar fólk mig femínista.“ Þetta sagði Rebecca West árið 1913. Mér fínnst hún hafa nokkuð til síns máls. Ragnhildur Vigfúsdóttir 6/1993-12. órg. VERA blað kvennabaráttu Pósthólf 1685 121 Reykjavík Kt. 640185-0319 Sími: 91-22188 Utgefandi: Samtök um Kvennalista Forsiða: Kristín Bogadóttir Ritnefnd: Guðrún Ólafsdóttir Lára Magnúsardóttir Nína Helgadóttir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Ritstýrur og ábyrgðarmenn: Björg Amadóttir Ragnhildur Vigfúsdóttir Skrifstofustýra: Vala S. Valdimarsdóttir Útlit og tölvuumbrot: Kristín Ragna Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Anna Fjóla Gísladóttir Kristín Bogadóttir Sóla Þórdís Agústsdóttir o.fl. Myndskreytingar: Sara Vilbergsdóttir Kristín Ragna Gunnarsdóttir Áslaug Jónsdóttir Sigurborg Stefánsdóttir Auglýsingar: Áslaug Nielsen, Hænir hf. Sími 91-641816 Filmuvinna: Prentþjónustan hf. Prentun og bókband: Frjáls Fjölmiðlun Plastpökkun: Vinnuheimilið Bjarkarás Ath. Greinar í Veru eru birtar á ábyrgð höfunda sinna og eru ekki endilega stefna útgefenda.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.