Vera - 01.12.1993, Side 3
VaVaVíVaVaV-VaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVAAVaV
K V E
N R E T T
oni
I N D A K O
Morrison
N A
N
Kvenréttindakonan er að þessu sinni Nóbelsverð-
launahafinn í bókmenntum 1993, Toni Morrison. Hún
fæddist 18. febrúar 1931 í smábænum Lorain í Ohiofylki
og hlaut nafnið Chloe Anthony Wofford. Foreldrar hennar unnu
á bómullarekrum í Suðurríkjunum, en fluttu norður á bóginn í
leit að betra lífi. Þar fæddist Toni Morrison í miðri kreppunni
þegar faðir hennar barðist fyrir lífí fjölskyldunnar og tók hverja
þá vinnu sem bauðst. Hún fékk i veganesti frá föður sínum það
sem hún síðar kallaði reiðiblandna
vantrú á hvert orð og hverja hreyfíngu
allra hvítra manna. Það var heldur ekki
að ástæðulausu sem faðir hennar hafði
litla trú á hvíta manninum. Þegar Toni
var aðeins tveggja ára hafði leigusali
reynt, í reiði sinni, að brenna fjöl-
skyldu hennar inni vegna þess að dreg-
ist hafði að borga mánaðarleiguna upp
á heila fjóra dali.
Frá tólf ára aldri vann Toni ýmis störf
með námi til að létta undir með fjöl-
skyldu sinni. Hún reyndist afburða-
námsmaður og útskrifaðist með
ágætiseinkunn úr menntaskóla. Þaðan
lá leið hennar til Howard háskólans
sem á þeim tíma var eingöngu
skipaður blökkumönnum. Að loknu
B.A. prófí hélt hún til Comell og lauk
þar M.A. gráðu í bókmenntum 1955
og fjallaði lokaritgerð hennar um
sjálfsvíg í verkum Virginiu Woolf og Williams Faulkner.
Þekking hennar á verkum Faulkners reyndist henni gott vega-
nesti, þegar hún sjálf tók til við skriftir og má greina áhrif hans
víða í verkum hennar.
Að loknu háskólanámi hóf hún kennslu og kenndi m.a. við
sinn gamla skóla Howard. Þar giftist hún Harold Morrison,
arkitekt frá Jamaica og eignaðist með honum tvo syni.
Hjónabandið entist ekki og hún leitaði meir og meir í einveru
skriftanna. Skriftirnar urðu, að hennar eigin sögn, eins og slærn-
ur ávani. Á þessum tíma hitti hún hóp rithöfunda sem báru sam-
Toni Morrison er sjöunda konan sem hlýtur hin cftirsóttu
Nóbelsverðlaun i bókmenntum (fyrst veitt 1901). Hinar eru:
1909 Selma Lagerlöf
1928 Sigrid Undset
1938 Pearl S. Buck
1945 Gabriela Mistral
1966 Nelly Sachs
1991 Nadine Gordimer
an bækur sínar og lásu hver upp fyrir annan. Á einum slíkum
fundi las hún upp smásögu um litla blökkustúlku sem óskaði
þess heitt að hún hefði blá augu svo öllum fyndist hún falleg.
Þessi saga varð kveikjan að fyrstu skáldsögu hennar The Bluest
Eye (1970). Hún skildi við eiginmanninn og hélt til Syracuse í
New York fylki með syni sína og hóf störf hjá útgáfufyrirtæki.
Þær fáu stundir sem aflögu voru, eftir að hún hafði rækt
hlutverk sitt sem fyrirvinna og móðir, notaði hún til skrifta. Frá
því að fyrsta bók hennar kom út hefur
hún notið stigvaxandi virðingar og
athygli í bókmenntaheiminum. Hún
hlaut Pulitzer verðlaunin fyrir bókina
Beloved (1987), eða Astkœr, eins og
hún heitir í islenskri þýðingu - en hún
er eina bók hennar sem hefur verið
þýdd á íslensku - og þótti mörgum hún
hljóta þau verðlaun vonurn seinna. Loks
hlaut hún Bókmenntaverðlaun Nóbels
fyrst afrísk-amerískra rithöfunda.
Gagnrýnendur eru sammála um að
sænska akademían hafí valið viturlega
þetta árið. Flestir sérfræðingar um starf
nefndarinnar og þeir sem gerst þekkja
til verka Toni Morrison mæla einum
rómi að hún hafi hlotið verðlaunin
vegna þess að hún er framúrskarandi
rithöfundur, en hvorki vegna litarháttar
eða kyns. Sjálf er hún sér fyllilega
meðvituð um stöðu sína og lítur svo á
að þær vegtyllur sem henni hlotnast
séu mikilvægar fyrst og fremst sem hvatning afrísk-amerískum
kvenrithöfundum. Aðspurð, í nýlegu viðtali, um það hvort hún
sé femínisti svarar hún því játandi og bætir við að hún hafí þurft
að hugsa sig um, því femínisti hafi svo oft verið notað sem
skammaryrði.
Toni Morrison er prófessor í skapandi skrifum við
Princetonháskóla, nokkuð sem - þrátt fyrir að langt sé í land í
baráttu gegn kynja- og kynþáttamisrétti - var óhugsandi þegar
hún sleit bamskónum í Lorain Ohio.
Byggt m.a. á Newsweek, Time og Herald Int. Tribune
Bækur eftir Toni Morrison
The Bluest Eye
Sula
Song of Solomon
Tar Baby
Beloved
Jazz
Playing in the Dark (þrír fyrirlestrar um bókmenntir haldnir við
Harvard háskólann)