Vera - 01.12.1993, Qupperneq 12
Hvernig konur fara með
c
w
>
...og vín meb konur ^VaVWAVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaV^
Heföbundib
Hefðbundna kven-
lega neyslumunstrið
víkur lítið frá bind-
indinu. Það ein-
kennist af því að
drekka sjaldan, í
fáein skipti á ári, eitt
glas eða varla það
og heildarneysla
verður þess vegna
mjög lítil. Þessar
konur drekka frem-
ur létt vín en bjór og
sterkt áfengi. Þetta er munstur sem einkum
finnst meðal eldri kvenna. Mörkin á milli
bindindiskvenna og stórs hluta þessara
kvenna eru mjög fljótandi, vegna þess að
áfengisneysla þeirra er svo lítil. Þetta
munstur er helst að finna meðal elstu
kvennanna.
Nýtt
Þær konur sem hafa hið nýja kvenlega
neyslumunstur ganga skrefi lengra í
neysluvenjum sínum en þær sem fylgja
heföbundna munstrinu. Þær drekka oftar
og gera ekki upp á milli bjórs, léttra vína
og sterks áfengis. Þær drekka heldur
meira, 2-3 glös, og heildarneysla þeirra
verður þar af leiðandi heldur meiri. Þessar
konur drekka sig einstaka sinnum ölvaðar,
en það er mjög sjaldan. Skrefið frá
hefðbundna munstrinu til þess nýja er
mjög stutt. Þessi hópur einkennist af því
að konur takmarka áfengisneyslu sína og
ölvun er þeim ijarlæg.
Karlmannlegt
Við hlið nýju neysluvenjanna er það sem
kallað hefur verið karlmannlega neyslu-
munstrið, vegna þess að það líkist áfengis-
neysluvenjum karla mun meira en hin
munstrin.
Þessar konur drekka nokkrum sinnum í
mánuði og þær drekka meira magn í einu
og verða oftar ölvaðar. Þetta munstur
finnst einkum meðal ungra kvenna.
Svo virðist sem munur á neysluvenjum
kvenna sýni kynslóðabil í viðhorfum til
áfengis. Skörpustu skilin eru á milli elstu
kvennanna, þeirra sem eru komnar yfir
sextugt, og hinna sem yngri eru. Þróunin
hefur verið í þá átt að fleiri konur drekka
áfengi og magnið sem þær drekka hefur
aukist. Samt virðist sem alltaf verði viss
hluti kvenna sem ekki drekkur áfengi. Rétt
er að hafa í huga að konur hafa ekki endi-
lega sama áfengisneyslumunstur allt
æviskeiðið. Þrátt fyrir vaxandi áfengis-
neyslu meðal kvenna er það einkennandi
fyrir hve konur takmarka áfengisneyslu
sína. Miðað við meðalneyslu áfengis
drekka konur lítið áfengi. Arið 1992
drukku konur aðeins um ljórðung af öllu
áfengi sem drukkið var í landinu.
Breytingar
Aukna áfengisneyslu kvenna má skoða
með hliðsjón af mýkri skiptingu í einkalíf
og þjóðfélagslíf, sem hefur skapað skilyrði
fyrir aukinni áfengisneyslu. En jafnhliða
hefur ábyrgð kvenna í viðhaldi og
endurnýjun samfélagsins stýrt áfengis-
neysluvenjum þeirra í farveg sem er
aðlagaður að hefðbundnu hlutverki kvenna
í þjóðfélaginu sem mæður og uppalendur.
Atvinnuþátttaka giftra kvenna hefur gert
þær íjárhagslega sjálfstæðari sem skiptir
máli fyrir alla neyslu, en hefur líka lokið
upp nýjum sviðum þjóðfélagsins fyrir
þeim. Launavinna hefiir hins vegar senni-
lega haft lítil bein
áhrif á áfengis-
neyslu kvenna
vegna þess að vinna
og áfengi er ekki
talið fara saman hér
á landi.
Breyting á
þætti áfengis í
félagslegu lífí hefur
auðveldað konum
áfengisneyslu. Áður
fyrr var áfengi tákn
um skemmtun og frí
frá hinu daglega lífí en er smám saman að
verða þáttur í fleiri félagslegum samskipt-
um. Áfengisneysla nú á tímum er stundum
tengd mjög hversdagslegum athöfnum.
Þegar áfengis er neytt er það oftar en áður
í tengslum við máltíðir, fólk slappar af
heima hjá sér yfír glasi og þiggur áfengi í
vinaheimsóknum og fjölskylduboðum.
Við þessi tækifæri hefur þáttur léttra
vína og sérstaklega bjórs eftir að hann
varð leyfilegur orðið meiri en sterks
áfengis. Þannig fer áfengisneysla kvenna
oft fram í tengslum við heimili og fjöl-
skyldu. Aukin áfengisneysla kvenna er því
ekki síður afleiðing þess að áfengisneysla
hefur í auknum mæli haldið innreið sína í
heimilislífíð, en að konur hafí farið út í
atvinnulífið. Aukin notkun áfengis í
daglegu lífí getur hafa gert áfengisneyslu
aðgengilegri konum þar sem áfengi hefur
nú í auknum mæli komist inn á svið
kvenna eins og innkaup, matargerð og
framreiðslu á mat og drykk. Tempruð
áfengisneysla en tíð fellur betur að sam-
félagslegu hlutverki kvenna en hinar karl-
mannlegu norrænu drykkjuvenjur hafa
gert. Þær hafa einkennst af því að mikið
áfengi er drukkið í ölvunarskyni við vel
afmörkuð tækifæri. Yngstu konumar geta
dmkkið á þennan hátt en líklegt er að þær
breyti venjum sínum þegar þær eldast.
Þannig er líklegt að það sé samspil á
milli þess að aukin þátttaka kvenna í þjóð-
félaginu hafí aukið áfengisneyslu þeirra og
12
W*V*V»VV*V.V.V*V»V-V*V*VA/»V.VAW»V.VaV*V.V.V-V»''
AFENGISNEYSLA OG BRJOSTAKRABBAMEIN
Faraldsfræðilegar rannsóknir benda til þess að áfengisneysla auki
líkur á brjóstakrabbameini. Þetta má skýra á tvennan hátt. Annars
vegar getur verið að konur sem neyta áfengis séu líklegri til að hafa
aðra eiginleika sem tengjast brjóstakrabbameini. Hins vegar getur
verið að sjálft áfengið eða niðurbrotsefni þess hafi krabbameinsvald-
andi áhrif á brjóstin.
Þörf er á frekari rannsóknum sem taka tillit til þátta sem geta
tengst bæði brjóstakrabbameini og áfengisneyslu. Einnig er mikil-
vægt að skoða áhrif notkunar eftir aldri. Ýmislegt bendir til þess að
meiri áhætta fylgi áfengisneyslu á unglingsáranum en síðar á ævinni.
Höfundur er faraldsfræðingur hjá Krabbameinsfélagi íslands.
Heimild: Rosenberg L, Metzger LS Palmer JR. Alcohol consumption and risk of
breast cancer: A review of the epidemiolocic evidence. Epidemiologic Reviews
1993; 15:133-44.