Vera - 01.12.1993, Page 15
^VaVaVAM/aVA/aVÍVaVaVAWÍVaVIVí Hvernig konur fara með vín
Afskipti Stóra
bróður
I Toronto í Kanada fer nú
fram mikil áróðursherferð
gegn drykkju þungaðra
kvenna. Veitingahúsa-
eigendum er skylt að setja
upp skilti með áletrun-
inni: Aðvörun! Neysla
bjórs, vina og sterkra
drykkja á meðgöngu
getur skaðað barn þitt.
Herferð þessi hefur
vakið sterk viðbrögð;
skiltin eru rifin niður eða
skrifuð á þau skilaboð til
borgarstjómarinnar um að
hætta að leika Stóra
bróður. Mikil umræða
hefur spunnist í framhaldi
af þessari herferð og sitt
sýnist hverjum. Sumir
telja að hinu opinbera sé
skylt að skipta sér af
þessum málum og þeir
benda meðal annars á að
áróðurinn þurfi að vera
þar sem fólk verði vart
við hann. Olíklegt sé að
drykkjukonur séu tiðir
gestir á læknastofum þar
sem fræðsla um þessi mál
fari venjulega frani. Aðrir
telja að allir viti að áfengi
er skaðlegt, en það geti líka verið skaðlegt
að gera meira úr vandamálinu en efni
standa til. Aróðurinn sé kominn út í þær
öfgar að þess séu dæmi að konur biðji um
fóstureyðingu vegna þess að þær liafi
drukkið nokkur vínglös áður en þær vissu
að þær væntu bams.
Gagnrýnendur benda á þá tilhneigingu
að draga fram afmörkuð atriði
áfengisvandans en líta fram hjá vanda-
málinu í heild. Það hefur afskaplega litla
þýðingu fyrir áfengisiðnaðinn að barist sé
hvenær áhættan er mest sé ráðlegast að
benda konum á að halda sig frá áfengi,
enda segjast flestar konur ekki neyta
áfengis á meðgöngu.
Ljósmæður segja að þær verði oftar
varar við hræðslu mæðra við skaðleg áhrif
áfengis á brjóstabörn en á fóstur. Oft
hringi konur á Landspítalann og biðji um
að fá að koma og losa sig við skemmda
mjólk eftir að hafa bragðað áfengi. En
áfengi í brjóstamjólk er miklu útþynntara
en það er í legvatni og ástæðulaust þykir
að sleppa því að leggja barn á brjóst að
Þessi biblíutilvitnun
bendir til að skaðleg
áhrif áfengis á fóstur
hafi lengi verið þekkt.
Áfengissköðuð böm fæðast
lítil og rýr og hafa líklega
skertan fituvef því illa geng-
ur að fá þau til að þyngjast.
Útlit þeirra er sérkennilegt,
oft eru þau vansköpuð og
greindin skert. Mörg hafa
meðfædda galla eins og
hjartagalla. Hversu mörg
áfengissköðuð börn fæðast
á íslandi er ekki vitað.
Erlendar rannsóknir sýna að
eitt barn af hverjum 600-
1000 fæðist áfengisskaðað
og samkvæmt því ættu 4-5
slík börn að fæðast hér
árlega. Atli Dagbjartsson
barnalæknir, segir að langt
sé frá að svo sé. Ákaflega fá
áfengissköðuð börn fæðist
hér á landi og ástæðan sé ef
til vill hinir norrænu
drykkjusiðir, þar sem fólk
hellir sig fullt öðm hverju,
en dagdrykkja er fátíð. Hin
lága tíðni áfengisskaða í
nýburum hér á landi gæti
bent til þess að einstaka
fyllirí skaði minna en reglu-
bundin hófdrykkja.
Alkóhól í legvatni og brjósta-
mjólk
Þegar barnshafandi kona neytir áfengis
berst vínandinn um fylgjuna til fóstursins
og blandast blóði þess í sama hlutfalli og
blóði móðurinnar. En lifur á stærð við
sykurmola á erfiðara með að vinna úr
líkjörsglasi en lifur móðurinnar. Á göngu-
deild mæðrardeildar Landspitalans segja
ljósmæður að þær bendi konum á hættuna
sem fylgir áfengisneyslu, en reyni að
prédika ekki. Þar sem lítið er vitað um
Maður er nefndur
Manóa; hann var frá
Zorea, af cett Daníta;
kona hans var óbyrja og
hafði eigi barn alið. Og
engill Drottins birtist
konunni og sagði við
hana: Sjá, þú ert óbyrja
og hefur eigi barn alið;
en þú munt þunguð verða
og ala son. Og haf nú
gætur á þér, drekk hvorki
vín né áfengan drykk, og et
ekkert óhreint.
(Dómarabókin 13,2-5)
BERA KONUR
ABYRGÐ?
morgni þó móðirin hafi
neytt áfengis í hófi
kvöldið áður. Hins
vegar er það þjóðsaga
að áfengir drykkir auki
mjólkurframleiðsluna.
Að visu má segja að
bjór hafi þessi áhrif,
ekki vegna alkóhólsins
heldur vegna þess að
bjór er vökvafram-
kallandi. Bjór getur því
aukið mjólkurframleiðsl-
una, en pilsner gerir sama