Vera - 01.12.1993, Qupperneq 29

Vera - 01.12.1993, Qupperneq 29
OTVaVaV-VaVaVaVaVaVaVaVaVaVaV^ Hvernig konur fara með vín... BINDINDI - HAGSMUNIR KVENNA Sterk tengsl voru frá öndverðu milli bindindis og kvenréttinda, ,jafnt hér á landi sem annars staðar, og flestar kvennanna, sem ruddu brautina í réttindamálum kvenna, komu úr röðum bindindismanna. Rétt er að minna á að bindindismál voru brýnt hags- munamál kvenna. Fram að aldamótum voru giftar konur ekki tjárráða og réðu hvorki yfír eignum sínum né tekjum heldur gat bóndi sólundað öllu fé búsins lögum samkvæmt.“ Sigríður Th. Erlendsdóttir Veröld sem ég vil. VaVaVaVA/aVA/aVa ÞJÓÐARBÖL Á Landsfúndi kvenna á Akureyri 1926 var m.a. fjallað um bannmálið. Fundarkonur töldu áfengisnautn vera þjóðarböl og þó engu síður heimilisböl og fjölluðu þess vegna um það sem sérmál kvenna og álykt- uðu: „Landsfundur kvenna lítur svo á, að nautn áfengra drykkja spilli heilsu manna, veiki vilja þeirra og siðferðisþrek, eyði tíma, fje og yndi heimilanna, og sje íslensku þjóðinni sjerstaklega til vansæmdar, þar sem hún hefír orðið að lúta kúgun erlends valds í áfengislöggjöf sinni.“ Heitið var á konur að vinna að útrýmingu áfengisnautnar með uppeldisáhrifum á heimilunum. Þær áttu einnig að beita áhrifum sínum innan allra stjómmálailokka til að knýja þingmenn „og aðra trúnaðarmenn ríkisins til þess að fylgja og vinna af alefli að algerðri útrýming áfengis úr landinu". íslandsdætur, 1991. BREYTT VIÐHORF Þegar Spánarvínin fóru að hellast yfir landið árið 1923 hafa stöðugt fleiri konur farið að skvetta í sig. Hófdrykkja komst í tísku á íjórða áratugnum, unga fólkinu þótti „fínt að súpa á“. Konur áttu ekki lengur á hættu að missa æruna þótt þær brögðuðu vín, nú þurfti ofdrykkju til. Margrét Guðmundsdóttir úr ópr. handriti að sögu Hvítabandsins. HORNSTEINN SAMFÉLAGSINS Hjúskaparstaða og staða á vinnumarkaði hefur afgerandi áhrif á drykkjuvenjur fólks. Norrænar rannsóknir sýna að útivinnandi konur drekka meira en heimavinnandi, ungar meira en gamlar, giftar meira en einhleypar og bamlausar meira en mæður. Eitt mikilvægasta hlutverk bindindis- hreyfingarinnar á 19. öld var að reka áróður fyrir íjölskyldugildum feðraveldisins og vísa konum þar til sætis. Hlutverk kvenna í hreyfmgunni var að vernda einkalífið gegn áfengisneyslu karla og aukaverkunum hennar. Bindindishreyfingin lagði sitt af mörkum til að setja konur á stall sem siðgæðisverði og það gerði áfengisvanda kvenna ósýnilegan. Þessar hugmyndir hafa lifað í áfengisumræðunni á þessari öld, ekki síst í hugtakinu meðvirkni sem fyrst kom fram í Bandaríkjunum á 8. áratugnum. Þýska fræðikonan Christa Appel segir að meðvirknihugtakið sé konum hættulegt því það færi ábyrgðina af drykkju karla yfir á konur og líkt og á síðustu öld verði þær ábyrgar fyrir því að halda fjölskyldunni saman. BÁ „DRYKKJIRÍ“ KVENNA Árið 1907 var í fyrsta skipti rætt um drykkju kvenna á fundi hjá Hvítabandinu. Þá fjöll- uðu félagskonur um hvað þær gætu gert til að sporna við „drykkjiríi" kynsystra sinna. Sama haust fjallaði blað Góðtemplara um vaxandi drykkjuskap kvenna. Þar segir að íslenskar konur séu farnar að „súpa drjúgan á“, einkum í Reykjavík. Spjótunum var aðal- lega beint að heldri konum sem voru nefndar „fínar drósir“. Þær voru sakaðar um að leiða bölvun yfir þjóðina og hótað afhjúpun, en höfundur greinarinnar var með nöfn þeirra „uppskrifuð í bók, og skulu þau geyind til þess tíma að þörf verður á að birta þau“. Margrét Guðmundsdóttir úr ópr. handriti að sögu Hvítabandsins. VAAVaVaVAAVA^ TVÖFALT SIÐGÆÐI Árið 1899 skrifar skagfirsk kona um mis- muninn á þeirn siðferðiskröfum sem gerðar eru til kynjanna í kvennablaðið Framsókn, sein hvítabandskonurnar Olafía Jóhannsdóttir og Jarþrúður Jónsdóttir áttu og ritstýrðu. Hún segir m.a. „Eftir þeirra siðferðiskröfum leyfist karlmönnum svo afarmargt ljótt og ósæmilegt, án þess það skerði virðingu þeirra. Þeir rnega ata sig út í drykkjuskap og óskírlífi og þykja jafnmiklir menn eftir sem áður, en á kvenmönnum rná ekki sjást minnsti blcttur eða hrukka; geri þær sig seka í einu broti, er þeirra tímanlega velferð glötuð. Það er því undarlegra að karlinenn skuli heirnta betra siðgæði af konum en sjálfum sér, þar sem þeir hyggja sjálfa sig miklu meiri gáfum og andlegum hæfileikum búna en kvenmenn." Margrét Guðmundsdóttir úr ópr. handriti að sögu Hvítabandsins. Va7»V»V»V.VAV*V» HVERT GETUR ÞÚ LEITAÐ EF ÁFENGI TRUFLAR LÍF ÞITT? Þú getur leitað til heimilislæknisins. AA-deildir eru víða um land og einnig er hægt að leita til geðlækna, sálfræðinga og fara á námskeið ætluð þeirn sem vilja draga úr eða hætta drykkju. Á Landspitalanum eru þrjár deildir fyrir áfengissjúklinga; göngudeild, afvötn- unardeild, deild 33, þar sem fengist er við blönduð vandamál, afeitrun og geðræn vandamál og meðferðardeild á Vifils- stöðum þar sem unnið er með tólf spora kerfi AA. Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavanda (SÁÁ) sinna áfengis- meðferð og fjölskylduráðgjöf. Meðferð hjá SÁÁ hefst á Vogi og framhalds- meðferð fer fram á göngudeildum og eftirmeðferðarheimilum.

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.