Vera - 01.12.1993, Síða 32
FULLNÆGING
NÝJASTA TÆKNIOG VÍSINDI
Súívwcccc/íá f/ré/a SA,úc/)/^ic/ó//f r á/yrifevrfírá =,£u)ic/,ú
uvmvm
32
Undanfarin misseri hafa bresku
kvennatímaritin lagt ofuráherslu á
kynþarfir kvenna. Innan um játn-
ingar um sjúddirallirei í háloftunum, í bak-
sætum bifreiða, bíó o.s.frv., má líta lýsing-
ar á nýjustu rekkjubrögðunum; hvernig
hægt er að viðhalda frygð, fá margfalda
fullnægingu og taka sig sem best mynd-
rænt út í leiðinni. Sitt sýnist hverjum um
hvernig beri að túlka þennan áhuga
kvenþjóðarinnar á kynlífí. Eru konur að
opinbera sitt „sanna” kvenlega eðli, að
koma úr skápnum, eða hangir hér eitthvað
meira á spýtunni? Að því marki sem þessi
umræða þjónar þeim tilgangi að kenna
konum aó hafa ánægju af eigin líkama og
stuðla að góðu kynlífí, er vart annað hægt
en að gleðjast. Oft er um velskrifaðar og
tímabærar greinar að ræða, um getnaðar-
varnir, alnæmi o.fl. Umræðan hefur þó
haft á sér fleiri hliðar, hún sýnir ekki
aðeins viðhorf til karla og kynlífs heldur
tekur hún á hugmyndum um „eðli” og
þarfir kvenna.
Hvað viðhorf til kynlífs og karla varðar,
sjást ýmis hættumerki um að konur ætli að
tileinka sér þann hugsunarhátt sem við-
gengst í karlaklámblöðum. Samfarir eru
orðnar að vísindagrein, teknar úr samhengi
við tilfínningalíf, ást og virðingu. Kynlífí
er lýst eins og bílaviðgerð, umræðan ein-
skorðast við þá vélarhluti sem nota þarf
(smyrja eða skrúfa betur saman), oft fylgja
uppdrættir og kort þar sem staðsetning og
innbyrðis tengsl eru útskýrð af vísindalegri
nákvæmni. Málfar er annaðhvort teprulegt
eða svo tæknilegt að aðrir en þeir sem lært
hafa latnesk heiti í líffærafræði eiga erfítt
með að skilja. Karlmaðurinn sjálfur er eins
og maskína með tippi. Eitt kvennatíma-
ritanna birti í þessu sambandi myndaröð af
tippum, stórum, litlum, mjóum og feitum
(sambærileg mynd af kynfærum kvenna
hefði á þessum vettvangi vakið upp
ramakvein), og karlmannslíkaminn var
blygðunarlaust notaður sem söluvara í
nýju kvennaklámblaði, For Women, sem
hleypt var af stokkunum í Bretlandi síðasta
sumar.
Karlar hafa hlutgert konur í blöðum sínum
um áraraðir og notað sem söluvöru.
Hlutgervingu karlmannslíkamans má því
hugsanlega túlka þannig að konur séu
orðnar kynverur til jafns við karla.
Jafnrétti af slíku tagi þykir mér þó ekki
fýsilegt, hvorki erótískt séð (bringu-
háralaus vöðvafjöll, smurð í barnaolíu,
hjálp!) né frá sjónarhorni kvenfrelsisbar-
áttunnar. Það er sitthvað athugavert við
það að dýrka annað kynið sem hlut, hvort
heldur sem um konu eða karl er að ræða.
Konan ofan á
Það var hvorki ætlunin að taka upp hansk-
ann fyrir karla í þessu greinarkomi né að
koma með getgátur um það hvaða áhrif
þessar fyrirmyndir hafa á sálarlíf þeirra.
Það samhcngi sem konan sem kynvera er
sett í, þykir mér öllu athyglisverðara.
Konur hafa lengi barist fyrir því að vera
teknar alvarlega sem sjálfstæðar vitsmuna-
verur sem bæði geta og vilja taka ábyrgð á
eigin gjörðum, hvort heldur það er á
vettvangi kynferðismála eða annars staðar.
Það er því ekki laust við að maður verði
ögn „pirraður” þegar þess sjást merki að
enn og aftur á að fara að hlúa að ímynd-
inni um konuna sem er óseðjandi kynferð-
islega. Það er gefið í skyn að konur eigi að
taka sér Harðsnúnu Hönnu til fyrirmyndar
ef þær vilja fá einhverju framgengt í þessu
lífí. Karlmenn; Gvendur og allir hinir eru
ofurseldir kyntöfrum og duttlungum henn-
ar, hún er hin raunverulega „sterka kona”.
Einn helsti talsmaður þess sjónarmiðs að
kynþokkafulla konan sé sterka konan, er
Camille Paglia, höfundur Sexual
Personae. Röksemdafærsla hennar er eitt-
hvað á þá leið að konur hafi ávallt verið
ógn við veldi menningarinnar, (sem er af-
sprengi karlmannsins), þar sem þær standa
nær náttúrunni. Allar framfarir, listir og
menningarviðleitni yfír höfuð, hafa snúist
um það að beisla frumstæðan kraft náttúr-
unnar, sem skapar og tortímir. Við kynlíf
mætast þessir kraftar; karlinn (fulltrúi
menningarinnar) og konan (fulltrúi náttúr-
unnar). Konan er sterk á grundvelli kyn-
ferðis síns, hún getur fengið það endalaust
meðan karlmaðurinn, greyið, er ekki til
nokkurs nýtur eftir fullnægingu.