Vera - 01.12.1993, Side 35

Vera - 01.12.1993, Side 35
VaV^VaVaVaVAAVaVaVaVaVaVaVaVaVaV^VÍVOT úr síðu adams ÞÖGLA KYN feður þeirra og spyrja sig því til hvers þeir eigi að nota gamlar fyrirmyndir. Þeir eru meðvitaðir um að þeir verði að rækta þá eiginleika með sér, sem henta betur inni á heimili en vinnustað, og gífurlegt atvinnu- leysi á sinn þátt í þessu. Hingað til hafa karlar ekki getað sýnt karlmennsku sína, án þess að vera sakaðir um karlrembu og chauvinisma. Mér finnst ýmislegt benda til þess að ungir karlmenn vilji heldur vera karlmannlegir feður, en þróa með sér hefðbundin kvenleg gildi. I þessu felst sprengikraftur og margir möguleikar. Hi2> þögla kyn sunnan nafla Er þá ekkert samhengi á milli mjúka mannsins og hinnar nýju föðurímyndar? „Nei, mjúki maðurinn var bara hugtak sem fjölmiðlar fundu upp. Það voru í mesta lagi þrjú prósent karla sem féllu inn í þessa ímynd í byrjun áttunda áratugarins. Það er ekki hægt að bera mjúka manninn saman við hinn nálæga föður, því blíður og nærgætinn faðir getur verið allt í senn vöðvastæltur, hugdjarfur og fylginn sér. Ljósm. Sigrún Bjömsdóttir Honum er frjálst að þroska eigið til- fmningalíf í stað þess að reyna að lifa upp til þeirra kröfu að vera eins og kona. I tutt- ugu ára jafnréttisumræðu hafa karlmenn verið hið þögla kyn, enda þótt það hljómi mótsagnakennt. Enda þótt Simone de Beauvoir hafi sagt að konan væri hitt kynið, er veruleikinn annar. Konan hefur haft einkarétt á því að vera kynið og kynvera og er í raun eina kynið í jafnréttisum- ræðunni. Karlinn hefur bara verið fulltrúi þess karlmannlega. í okkar menningar- heimi hefur karlmennska og kynferði allt of lengi verið spyrt saman við þetta líffæri sem hangir sunnan undan naflanum. Karlafræðin eru kannski merki þess að menn séu farnir að kannast við að karl- kynið er ýmislegt fleira og vilji því allra náðarsamlegast fá að vera „hitt kynið”. Til þess þurfum við bæði hugrekki og kímni- gáfu, því það versta sem gæti gerst væri að karlafræði yrðu uppskrúfuð og fanatísk fræðigrein.“ Höfundur er fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu Hans Bonde Historisk Institut Köbenhavns Universitet Njalsgade 102 2300 Köbenhavn Danmark {7\ llFI^HTORjiriPEf i I KRABBAMEINSFÉLAGSINS 1993 VEITTU STUÐNI I þetta sinn voru miðar sendir konum, á sem þegar hafa borgað miðana og minnu VERTU MEÐ! ára. Við þökkum öllum þeim málstað og verðmæta vinninga. Greiða má í banka, sparisjóði eða póstafgreiðslu til hádegis á aðfangadag jóla. Vakin er athygli á því að hægt er að bon Hringið þá í með greiðslukorti (Visa, Eurocard). [91)621414. Hver keyptur miði eflir sókn og vörn gegn krabbameini!

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.