Vera - 01.12.1993, Qupperneq 35
VaV^VaVaVaVAAVaVaVaVaVaVaVaVaVaV^VÍVOT úr síðu adams
ÞÖGLA KYN
feður þeirra og spyrja sig því til hvers þeir
eigi að nota gamlar fyrirmyndir. Þeir eru
meðvitaðir um að þeir verði að rækta þá
eiginleika með sér, sem henta betur inni á
heimili en vinnustað, og gífurlegt atvinnu-
leysi á sinn þátt í þessu. Hingað til hafa
karlar ekki getað sýnt karlmennsku sína,
án þess að vera sakaðir um karlrembu og
chauvinisma. Mér finnst ýmislegt benda til
þess að ungir karlmenn vilji heldur vera
karlmannlegir feður, en þróa með sér
hefðbundin kvenleg gildi. I þessu felst
sprengikraftur og margir möguleikar.
Hi2> þögla kyn sunnan nafla
Er þá ekkert samhengi á milli mjúka
mannsins og hinnar nýju föðurímyndar?
„Nei, mjúki maðurinn var bara hugtak
sem fjölmiðlar fundu upp. Það voru í
mesta lagi þrjú prósent karla sem féllu inn
í þessa ímynd í byrjun áttunda áratugarins.
Það er ekki hægt að bera mjúka manninn
saman við hinn nálæga föður, því blíður
og nærgætinn faðir getur verið allt í senn
vöðvastæltur, hugdjarfur og fylginn sér.
Ljósm. Sigrún Bjömsdóttir
Honum er frjálst að þroska eigið til-
fmningalíf í stað þess að reyna að lifa upp
til þeirra kröfu að vera eins og kona. I tutt-
ugu ára jafnréttisumræðu hafa karlmenn
verið hið þögla kyn, enda þótt það hljómi
mótsagnakennt.
Enda þótt Simone de Beauvoir hafi
sagt að konan væri hitt kynið, er
veruleikinn annar. Konan hefur haft
einkarétt á því að vera kynið og kynvera
og er í raun eina kynið í jafnréttisum-
ræðunni. Karlinn hefur bara verið fulltrúi
þess karlmannlega. í okkar menningar-
heimi hefur karlmennska og kynferði allt
of lengi verið spyrt saman við þetta líffæri
sem hangir sunnan undan naflanum.
Karlafræðin eru kannski merki þess að
menn séu farnir að kannast við að karl-
kynið er ýmislegt fleira og vilji því allra
náðarsamlegast fá að vera „hitt kynið”. Til
þess þurfum við bæði hugrekki og kímni-
gáfu, því það versta sem gæti gerst væri að
karlafræði yrðu uppskrúfuð og fanatísk
fræðigrein.“
Höfundur er fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu
Hans Bonde
Historisk Institut
Köbenhavns Universitet
Njalsgade 102
2300 Köbenhavn
Danmark
{7\
llFI^HTORjiriPEf i I
KRABBAMEINSFÉLAGSINS 1993
VEITTU STUÐNI
I þetta sinn voru miðar sendir konum, á
sem þegar hafa borgað miðana og minnu
VERTU MEÐ!
ára. Við þökkum öllum þeim
málstað og verðmæta vinninga.
Greiða má í banka, sparisjóði eða póstafgreiðslu til hádegis á aðfangadag jóla.
Vakin er athygli á því að hægt er að bon
Hringið þá í
með greiðslukorti (Visa, Eurocard).
[91)621414.
Hver keyptur miði eflir sókn og vörn gegn krabbameini!