Vera - 01.12.1993, Side 43
VaVaVíVaVaV^VaVíVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVAWa^ matur 7^
venja er að bera fram á Purim hátíðinni
heita Eyru Hamans. Haman þessi var ráð-
gjafi Ahasverusar Persakonungs og
hugðist útrýma gyðingum í ríki sínu en
Ester drottning Persa kom í veg fyrir það
og er Purim hátíðin haldin í febrúar eða
mars til að minnast hennar.
Eyru Hamans
ca 40 kökur
Deig:
3 glös af hveiti
250 g smjörlíki eða lítið saltað smjör
3/4 glas sykur
1 egg
1-2 eggjarauður
sítrónubörkur af einni sítrónu
1 msk sítrónusafi
1 tsk lyftiduft
Fylling:
100 g valmúafræ, poppy fæst í heilsu-
búðum. Einnig má nota valhnetukjama.
1/2 glas sykur
1/2 glas vatn
1 tsk sítrónubörkur
1 tsk sítrónusafi
1/2 bolli brauðmylsna, kex
eða kökumylsnu er líka gott að nota.
Deig: Sykur, smjörlíki og egg þeytt
saman. Sítrónusafa og lyftidufti bætt út í
og síðast hveiti. Deiginu er skipt í tvo
jafna parta og kælt í ísskáp i minnsta kosti
klukkutíma.
Fylling: Sykur og vatn soðið saman.
Valmúafræi og hinu hráefninu bætt út í og
soðið þar til þetta er orðið þykk leðja.
Deigið flatt út með kefli þar til það er um
1/2 cm á þykkt. Mótað í hringi með bolla
eða glasi og ca tsk af fyllingunni sett á
hvern hring. Brotið saman í miðju og
brúnunum þrýst saman með fingrunum.
Bakað í ofni við 150° hita í 15-20 mín eða
þar til kökumar verða gulbrúnar. Flórsykri
er stráð yfir kökurnar áður en þær eru
bomar fram.
Fyllingar og þvegið kjöt
Gyðingar steikja gjaman mat og algengar
eru alls kyns fyllingar i brauði, físki og
kjöti. En allt verður að vera ferskt. Sérstök
slátrunaraðferð er notuð, svokölluð
„kosher“ slátmn, en þá er hárbeittum hníf
brugðið eldsnöggt á háls dýrsins og við
það lamast taugakerfið og það deyr sam-
stundis. Aðferðin tryggir einnig að mest
allt blóðið streymir úr skrokknum undir
eins, en gyðingar neyta ekki blóðs. Þeir
telja þessa aðferð einnig sársaukaminni
fyrir sláturdýrið en trúarbrögð þeirra
fordæma grimmd gegn skepnum.
Gyðingar borða einungis nautakjöt,
lambakjöt og kjúklinga. Allt kjöt er lagt
Ljósm. Anna Fjóla
fyrst í salt í hálftíma áður en það er mat-
reitt til að saltið nái að soga allt blóð úr
því. Síðan er kjötið látið liggja annan
hálftíma í hreinu köldu vatni og að lokum
skolað sjö sinnum, en sjö er heilög tala.
Grænmetisuppskera sjöunda hvers árs
er ekki borðuð heldur látin rotna því jörðin
þarf að hvílast. En þess á milli borða
gyðingar mikið af fersku grænmeti og
ávöxtum. Alísa segir það algenga sjón í
Israel að sjá fólk bera heim marga bréf-
poka fulla af ávöxtum og grænmeti meðan
allur annar matur til heimilisins rúmist
hugsanlega í einum.
Alísa lét okkur einnig í té uppskrift af
Falafel, sem er mjög algengur réttur í
Israel:
Falafel
500 g kjúklingabaunir eða hvítar baunir
2 stórir marðir hvítlauksgeirar eða 1-2 msk
hvítlauksduft
2 litlir smátt saxaðir laukar
1 búnt söxuð steinselja
1-2 tsk kúmen
1 -2 tsk mulinn koriander
1/2 tsk lyftiduft (má sleppa)
1/2-1 bolli brauðmylsna
1 egg
1 tsk salt
1 tsk cayenne pipar
olía til steikingar
Baunirnar lagðar í bleyti í sólarhring og
gott er að setja eina tsk af sódadufti út í
vatnið. Ef notaðar eru hvítar baunir þarf að
afliýða þær. Vatnið er siað frá og baun-
imar hakkaðar eða settar í blandara ásamt
öllu hinu hráefninu nema olíunni. Ef ekki
er til blandari er gott að hakka tvisvar.
Hnoðað og látið bíða í korter. Mótað í
bollur og djúpsteikt í heitri oliu þar til þær
verða dökkbrúnar. Berið fram með súrs-
uðu grænmeti og fersku grænmeti og
bragðsterkri kryddsósu. Til dæmis T’hina
sósu sem hefur fengist í heilsubúðum.
Gyðingamatur virðist bæði hollur og
góður. Hið fyrirhafnarlitla Hamin er lika
kjörinn helgarmatur sem gefur færi á að
endurvekja gamla, góða sunnudags-
hádegismatinn án þess að það komi niður
á svefninum.
Verði ykkur svo að góðu.
Höfundur er blaðamaður
GJAFAÁSKRIFT
GEFÐU GJÖF
SEM KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART!
Ársáskrift a& VERU kostar 3.000 kr.
og hálft ár kostar 1.500 kr.
Falleg gjafakort fylgja góðri gjöf.
VERA, LAUGAVEGI 17, SÍMI 91-22188 / 26310
Opið kl. 1300-1700, símsvari annars.
43