Vera - 01.12.1993, Qupperneq 48

Vera - 01.12.1993, Qupperneq 48
ATHAFNAKONAN VaVÍVaVaVaVaV^VaVaVaVaV^VaVaVaV-VaVaVaVaV SÍVINSÆLT LEIKHÚS í TÖSIÍU 48' Ein mesta athafnakona á íslandi fyrr og síðar er án nokkurs vafa Grýla. Þessi ske- legga tröllkona sem endasentist um allar sveitir óþreytandi að afla sér og karli sínum í soðið. Önnur athafnakona uppi á tuttugustu öldinni hreifst svo af hinni líf- seigu stöllu sinni að hún samdi um hana leikrit og sýnir það bömum á leik- skólum. Það er Þórdís Amljótsdóttir sem ferðast með sýningu, sem heitir Björt og jólasveinafjöl- skyldan, í tösku milli leik- skóla rétt fyrir jólin. Líkt og margir ungir leikarar þarf Þórdís að treysta á eigið frumkvæði og sköp- unargáfu til að hafa næg verkefni allt árið og leik- sýningin er sprottin af þeirri þörf. „Ég skrifaði einhvern tíma sögu eða handrits- drög um Grýlu og jólasveinana, þó ég sé annars ekki vön að skrifa. Haustið 1989 sá ég fram á að hafa ekkert að gera í nóvember og desember svo ég vann úr þessu leikrit og kynnti það leikskólastjórum. Ég vonaði að sýningar yrðu 15-20 en ég endaði með að anna ekki eftirspum.” A fjórum árum eru sýningar orðnar á annað hundrað og er það vel að verki staðið þegar haft er í huga að Þórdís er ein og sýningartími hvert ár er aðeins þrjár vikur. „Ég byrja að undirbúa mig strax á haustin. Ég fer í líkamsrækt og sjúkraþjálf- un því þetta er geysilegt líkamlegt erfíði. Börn eru kröfuharðir áhorfendur og hafa mun styttri einbeitingartíma en fullorðnir. Það krefst því mikils af leikaranum. Ég kýs að leika ekki á sviði heldur sem næst áhorfendunum, þannig tekst mér best að komast í samband við bömin. Þetta er ein- föld uppsetning með engri lýsingu og nánast engri leikmynd, svo athyglin á leikarann verður enn meiri en ella.” Þórdís hefur aldrei auglýst lcikhúsið sitt en í fyrra ákvað hún hins vegar að freista þess að leita umsagnar unt vinnu sína. Hún bauð gagnrýnendum tveggja stærstu dagblaðanna á sýningu hjá sér og ekki bar á öðru en þeim líkaði vel. „Sýning Þórdísar er ákaflega vel sam- sett og lifandi... Þórdís nær góðu sambandi við börnin og heldur hæfilegri spennu.” (Súsanna Svavarsdóttir, Mbl. 8.12.1992) „Sýningin er þess vegna lifandi og fjörleg og umfram allt fróðleg fyrir unga áhorfendur.” (Auður Eydal, DV 7.12.1992) „Veturinn 1991-92 var ég fastráóin við leikhúsið á Akureyri, cn gat þrátt fyrir verkefni þar ekki hugsað mér að sleppa þessu svo ég lék í leikskólum og fyrir yngstu börnin í grunnskólum þar. Starfsfélagar mínir sýndu þessu áhuga og mat ég það mjög mikils. Hér í höfuðborg- inni hef ég hins vegar ekki sýnt í grunnskólum en í suma leikskóla er ég búin að koma þrisvar. í vetur verð ég áfram í leikskólum og líklega einnig í Þjóðleikhúskjallaranunt. Ég hef átt gott samstarf við leik- skólastjóra og fóstrur við sýningarhaldið. Þær eru ákaflega vel menntaðar og fag- Ljósmynd Sóla legar, þessar konur, og búa yfír gífurlegri þekkingu í uppeldisfræðum sem má nýta sér. Hér í eina tíð þótti sjálfsagt að bjóða börnum annars og þriðja flokks efni, en það er liðið. Þær hafa orðað það við mig að gaman væri að fá nýtt efni sem hæfði öðrum árstímum, en til þess hefur mig skort tíma. Ég sótti um styrk til nýs verkefnis úr Listasjóði, en fékk ekki.” Leikritið hennar Þórdísar segir frá lítil- li stúlku sem týnist í jólaösinni. Gömul kona bjargar henni og fer með hana heim til sín. Til að stytta henni stundir segir hún henni frá jólahaldi í gamla daga þar með talið Grýlu og jólasveinunum. Til að gæða frásögnina lífi bregður sú gamla sér í gervi persónanna. Leiksýningin endar með því að gamla konan tekur á sig gervi jólasveinanna og leikur þá alla þrettán eins og þeir birtast í kvæði Jóhannesar úr Kötlum. Viðtal: Steingerður Steinarsdóttir GRYLA OG HENNAR HYSKI En hver er þessi Grýla? Hún er fyrst nefnd í Snorra-Eddu þegar tröllsættir eru taldar. Mörgum sögum fer af útliti hennar, en öllum ber saman um að talsvert skorti á fríðleik hennar. Hún er sögð hafa fimmtán hala, allt frá þremur og upp í þrjúhundruð hausa og þrenn augu í hverjum. Jóhannes úr Kötlum segir hana hafa „ferlega hönd og haltan fót’’. Ekki skorti Grýlu aðdáendur, þótt út- litið teldist ekki aðlaðandi því hún var þrigift, en aðeins síðasti eiginmaður henn- ar hefúr náó að verða nafnkunnur en sá hét Leppalúði. Hún átti fjölda barna og hefur sjálfsagt orðið að vera bæði sterk og úrræðagóð til að sjá þeim öllum farborða. í karlinum hefur verið lítið lið ef marka má gamlar sögur. Þekktust bama Grýlu eru án efa jólasveinarnir og svo þau sem nefnd eru í þulunni „Grýla kallar á börnin sín þegar húnfer að sjóða til jóla Grýla var öldum saman áhrifaríkur vöndur á íslensk böm, en það er ekki fyrr en á 17. öld sem hún er kennd við jólin. Um hana em til mörg kvæði og þulur, en það er meðal annars á þeim sem Leikhús í tösku Þórdísar Amljótsdóttur byggist. Steingerður Steinarsdóttir

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.