Vera - 01.05.1995, Side 25

Vera - 01.05.1995, Side 25
Á maður að vera hrærður? Um hvað var svo samið? Öll laun hækka um 2.700 krónur á mánuði og að auki hækka laun undir 84.000 sérstaklega. Laun undir 48.000 hækka um þúsund krónur sem lækkar um hundrað kall fyrir hverjar 4.000 krónur. Þessi sérstaka hækkun miðast við föst laun fyrir dagvinnu að meðtalinni yfir- borgun. Það þýðir að atvinnurekendum er heimilt að reikna yfirborgun á móti þessari „sérstöku" launahækkun! Er nema von að kátt hafi verið í höllinni við Garðastrætiö? í reynd þýðir þetta að gólfið hjá einum er þak- ið hjá öðrum. Þetta eru lágmarkssamningar og fyrirtækin geta borgaö meira ef þau vilja. Vilja fýrirtækin það? Já svo sannarlega. Skýrsla Jafnréttisnefndar um launamyndun og launamun kynja, sem kom út í miðjum samningaviðræðunum, sýnir að I landinu eru tvö launakerfi: taxtakaupið og einstak- lingssamningar. Þeir sem aðallega fá taxta- kaup eru láglaunafólk og konur. Karlar, eink- um í efri stigum þjóöfélagsins, eru þeir sem helst njóta einstaklingssamninga. Skýrslan staðfestir að karlar njóta jákvæðrar mis- mununarvegna kynferðis síns. Það hlýturað vera íslenskum konum áhyggjuefni að við gerð þessara kjarasamninga var ekki tekið mið af skýrslu Jafnréttisráðs frekar en hún væri ekki til. Jú, reyndar lofar ríkisstjórnin að veita allt að þremur milljónum á árinu til aö draga úr launamun karla og kvenna. Á mað- ur að vera hræröur? Á snældu skal hann stinga sig... Fjárlagahalli upp á annan tug milljarða er vont mál og það er ábyrgöarhluti að auka hann. Samningurinn kostar ríkissjóð um 3 milljarða á ári þegar hann er að fullu kominn til framkvæmda. Af því fé fara um þrír fjórðu hlutar til skattalækkunar vegna lífeyris- sjóösiðgjalda, en sú breyting færir hátekju- manninum langtum meira en lágtekjumann- inum. í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að útgjöldunum verði mætt meö auknum tekj- um og/eða niðurskurði. Kjörtímabilið hefur einkennst af stórfelldum niðurskurði á vel- ferðarkerfinu. Það vill oft gleymast í umræð- unni að velferöarkerfið hefur mjög mikil- væga kvennapólitíska vídd. Konureru háðar velferðarkerfinu um þjónustu og stuðning vegna umönnunar barna, aldraðra, fatlaðra og sjúkra sem af hefð eru kvennastörf. Þær eru líka háðar velferðarkerfinu sem vinnu- veitanda. Það eru fyrst og fremst konur sem eru að missa vinnuna vegna niðurskurðar ríkisstjórnarinnar á velferðarkerfinu. Spurn- ingin sem skiptir máli er þessi: hvar verður peninganna fýrir samninginn aflað? Verður skorið af risnu ráðamanna og dagpeningum til maka ráðherra? Verða fjármagnstekjur skattlagöar eða verður áfram höggvið í sama knérunn? Þessu þurfa íslenskar kon- ur að hafa vakandi auga með á næstu miss- erum. Það er Ijóst að í launabaráttu kvenna þýð- ir ekkert „elsku amma“. Skýrsla Jafnréttis- ráðs og nýlegir kjarasamningar sýna að draugur karlrembunnar leikur lausum hala. En ég sé ekki betur en að vörn hafi verið snúið í sókn: Það eru fýrst og fremst konur sem hafa veitt viðspyrnu og sýnt vígtennurn- ar í kjarabaráttunni undanfarið - meina- tæknar, sjúkraliðar og síðast kennarar þar sem konum fer fjölgandi. Nú þarf að halda áfram á sömu braut, brýna raustina og virkja baráttugleðina af alvöru. Þaö þarf að hnekkja láglaunastefnunni og afnema for- gjöf karla í launamálum. Hvernig væri að hneppa karlrembudrauginn t álög - uns hann lætur sér segjast? Á snældu skal hann stinga sig I L . T E N C AT E Lady Highleg 3813 S,M,L,XL Rio 3812 Verð 5 stk. kr. 3.500.- Hv., Sv., Beige DESIREE 3703 S,M,L Verð 5 stk. kr. 3.300,- Verð 5 stk. kr. 3.000,- ATH. ÖLL VERÐ MIÐAST VID PÓSTKRÖFU M. Magnúsdóttir sf. sími 568 9450 / fax 568 9456 kj^rasamningar

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.