Ritmennt - 01.01.1999, Side 69
RITMENNT
LESTRARFÉLÖG PRESTA
uðu um guðfræðileg efni. Þar var víða leitað fanga en notadrýgst
var Dansk biografisk leksikon eftir C.F. Bricka í mismunandi út-
gáfum, en einnig Den danske kirkes historie undir ritstjórn Hal
Kochs og Björns Kornerups.
Gieining
Fjöldi
Tafla 2 sýnir fjölda þeirra bókatitla sem barst hvert ár fyrir sig og
bindafjöldann, auk fjölda tímarita og tímaritahefta sem bárust.
Þarna sést hversu höfðingleg hókagjöf Mollers árið 1833 var og
það má velta fyrir sér hvert framhaldið hefði orðið ef hann hefði
lifað lengur. Um það bil helmingur bókanna var keyptur fyrir fé
frá Sjóðnum til almennra þarfa, hinn helminginn gaf Moller
sjálfur eða féklc hjá vinum og kunningjum eins og áður segir.
Gera má ráð fyrir að hann hefði árlega getað safnað álitlegum
fjölda bóka til að senda til íslands þó eklci yrði það jafn rausnar-
legt og í þetta eina skipti.
' i'-fV - ■
-- '•-<<
' íttyí v/~W. :
„ , , y....i, \
/. -■ /v ' ./- . , • .1 •».. t y... 1
Jj ,.<^r ..r,frG.j
L.,,. -V...'../, ‘y- V’-V*
-u-—'. «•»-v,7/^r*•;•'»*
.3/-----/'/......1 --r •
•V;
%. .........„ ..uk.
■■■ ■•' ... - fy,;s
•;£ iéáyp- ™ , ’ •. •
‘: ti/y .x/~. >••/'■/-' • 7: *V''V
-..—V •^/—-Uy*.•■•-* -AZ2>.
Síða úr gjðrðabók Möllerska
lestrarfélagsins á Austfjörð-
um. Upphaf fyrstu samþykkta
félagsins. (Lbs 698 fol)
Tafla 2. Fjöldi bóka og tímarita
Titlar Bindi Tímarit Hefti
1833 44 133 ' 1 124
1837 27 59 1 1
1848 22 61 10 35
Árið 1837 pöntuðu sex af fjórtán félögum í gegnum Steingrím
og Þorgeir. Austfjarðafélagið pantaði einnig þetta ár en eftir öðr-
um leiðum. í bókum félagsins eru innkaupin ekki aðgreind eftir
árum á þessum tíma þannig að ekki er hægt að sjá nákvæmlega
hvað félagið keypti á hverju ári fyrir sig. Tölurnar ættu því að
vera örlítið hærri. En alls er vitað um 27 titla eða 59 bindi bóka
sem bárust og er það tæplega helmingur af þeim bindafjölda sem
Jens Moller sendi fjórum áruin áður. En þá ber á það að líta að
þarna pantar tæplega helmingur félaganna en ef öll félögin hefðu
verið virk hefðu bókakaupin líklega slagað hátt í bókagjöf Moll-
ers. Skagfirðingar áttu um þriðjung þeirra bóka sem bárust og
sýnir það muninn sem var milli prófastsdæma. í fjölmennum
65