Ritmennt - 01.01.1999, Page 131
RITMENNT
ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN
Ljósm. Gísli Jónsson.
Loftmynd af Þjóðarbókhlöðu og umhverfi hennar. Akrafjall í baksýn.
Húsinu er þannig komið fyrir á lóðinni að stækka má það til austurs ef sú staða kæmi upp
síðar.
Þar sem húsið er stórt, eða um 2500 fermetrar að grunnfleti, nánast ferningur, um 50
metrar á kant, er reynt sjónrænt að draga úr stærð þess með ýmsu móti, svo sem með turn-
um við austur- og vesturhlið, inndregnum gluggum á annarri hæð og rauðum gljáandi ál-
skjöldum á efri hæðum. Álskildirnir gefa húsinu blæ léttleika og ákveðna hrynjandi. Skild-
irnir eru sérhannaðir og smíðaðir í Japan. Neðstu liæð hússins má líkja við pall sem hinn
rauði lrluti hússins rís upp af.
Við litaval á Þjóðarbókhlöðu var litið til næstu húsa, en bárujárnsklædd litsterk hús, rauð
- græn - blá o.s.frv., einkenna miðbæinn og gömlu Reykjavík.
Húsið, með turnum og gluggarifum og brú yfir síki, ber nokkurn virkissvip. Umhverfis
það er veggur hlaðinn úr hraunhellum. Hraunveggurinn ver bólcasafnið fyrir hávaða og óróa
frá bílaumferð, og sílcið hindrar að menn leggist á glugga eða lcrotað sé á veggi.
Innan hraunveggjar er landið slcálformað, grasi gróið. Húsið stendur neðst í slcálinni, ná-
lægt hálfum metra neðar en nærliggjandi götur. Þetta hefur tvíþættan tilgang: Annars vegar
127