Vera - 01.04.1998, Page 31
Anna Geirsdóttir við
ungbarnaskoðun á
heilsugæslustöðinni í
Gratarvogi.
Anna Geirsdóttir hcilsugæslulækn-
ir í Grafarvogi skipar 9. sæti á
Reykjauíkurlistanum í borgar-
stjórnarkosningunum i vor. Anna
or lömuð fyrir neðan mitti eftir
bflslys sem hún lenti í árið 1981
þegar hún var á öðru ári í læknis-
fræði. Með ótrúlegri elju náði hún
að fylgja árgangi sínum í náminu
og vann sem læknir á ýmsum stöð-
um þangað til hún hált tfl Svíþjóðar
árið 1991 í framhaldsnám í heim-
ilislækningum. Anna Br nýflutt
heim aftur og sér marga möguleika
á að láta til sín taka í horgarstjórn
Reykjavikur. Stefnumótun í heilsu-
gæslumálum i Reykjavik, félagsleg
mál i Grafarvogi og ferlimál fatl-
aðra eru henni ofarlega i huga,
einnig umhverfis- og skipulagsmál.
Til í slaqinn í
borgarstjórn
9«
Onnu Geirsdóttur,
heilsugæslulækni
Anna segist hafa fundið mikinn mun
á ferlimálum fatlaðra eftir að hún
kom heim frá Svíþjóð. Lengi hafi
ekkert verið gert í þeim málum og það litla
sem gert hafi verið, áður en Reykjavíkur-
listinn tók við, hafi verið svo illa gert að
t.d. fláar á gangstéttum hafi verið stór-
hættulegir. Nú getur hún farið á hjólastóln-
um sínum á góðviðrisdögum vestan úr bæ
og niður í miðbæ því alls staðar eru komn-
ir þægilegir fláar á gangstéttir. Henni finnst
þó að stórátak þurfi að gera í snjómokstri,
hér sé lítið og illa mokað miðað við í Sví-
þjóð þar sem snjónum sé beinlínis ryksug-
að burt. Þegar kemur að nýbyggingum seg-
ir Anna að ýmislegt vanti upp á og veltir
fyrir sér hvar eftirlit með reglugerðum sé,
hún kemst t.d. ekki inn í nýtt hús Læknafé-
lags íslands. Henni finnst líka mikið skorta
á að hjólastólasalerni séu á opinberum
stöðum, nýlega fór hún t.d. í íslensku Óp-
eruna þar sem vonlaust var fyrir hana að
komast á salerni.
En hver er Anna Geirsdóttir og hvaðan er
hún?
„Ég er fædd í Reykjavík árið 1951 og ólst
upp á Kleppsveginum frá fimm ára aldri.
Foreldrar mínir eru Ásta Guðmundsdóttir
sem er af sunnlenskum ættum og Geir Jón
Ásgeirsson af húnvetnskum ættum og úr
Biskupstungum. Mamma var heimavinn-
andi þegar við systkinin fjögur vorum að
alast upp en vann síðan við umönnun aldr-
aðra á Hrafnistu í Hafnarfirði og Drop-
laugarstöðum. Hún er að hætta um þessar
mundir því hún er orðin 67 ára. Pabbi var
bílstjóri og ökukennari, síðan verkstjóri hjá
B.P en hann lést úr hjartaslagi árið 1980,
aðeins 51 árs að aldri. Það var hálfu ári
áður en ég slasaðist,” segir Anna og bætir
við að hún sé elst af systkinum sínum en
þau eru: Sigurbjörg, hjúkrunarfræðingur
31 v^ra