Vera - 01.02.1999, Page 3

Vera - 01.02.1999, Page 3
0 Sjálfsagi er besta vörnin Frá sl. áramótum hafa átt sér stað miklar umræður um aga og uppeldismál og margir tekið þátt í þeim. Vera lætur ekki sitt eftir liggja og er málið tekið fyrir í þema þessa blaðs. Umræðurnar hafa snert marga fleti samfélagsins og ýmislegt hefur verið tínt til í því skyni að skýra það agaleysi og upplausn sem talin er koma fram hjá ungu fólki. Við ætlum ekki að taka undir þann kór því erfitt er að skilgreina eina kynslóð samfélagsins án tengsla við aðrar. Vandamál ungs fólks er ekki einangrað vandamál - það er vandamál samfélagsins alls. í tengslum við umræður um aga er eðlilegt að augum sé beint að sjálfsaga sem er mikilvægur eiginleiki hverrar manneskju. Ef börn læra að temja sér sjálfsaga verður þeim margt auðveldara síðar á lífsleiðinni. Það hefurt.d. verið bent á að sjálfsagi sé eina vörnin gegn auknu ofbeldi í samfélaginu - í kvikmyndum, tölvuleikjum og á internetinu. Til dæmis hefur verið rætt um að koma þurfi upp læsingum í tölvur til þess að börn og unglingar komist ekki í það ofbeldisefni sem þar er að finna. En þá benda aðrir á að öruggasta læsingin sé inni í þeim sjálfum því sjálfsagi geti varnað því að þau sækist eftir því að horfa á mannskemmandi efni. Nýlega kynnti Gunnar Karlsson niðurstöður úr viðamikilli, alþjóðlegri rannsókn á viðhorfi ungs fólks til lífsins og tilverunnar. Þegar hann var spurður hvað hafi komið honum mest á óvart varðandi viðhorf ungra [slendinga sagði hann að það hefði verið hvað unglingarnir okkar væru í raun góðar og velmeinandi manneskjur. Sannleikurinn er nefnilega sá að viðhorf 15 ára unglinga árið 1996 báru þjóðfélagi okkar gott vitni. íslensku ungmennin voru t.d. jafnréttissinnuðust þeirra 30 þjóða sem tóku þátt í könnuninni, þau voru ekki ofbeldissinnuð í hugsun og létu sér koma við sitt nánasta umhverfi. Annað meginefni þessa blaðs er kynning á fulltrúum Kvennalistans á framboðslistum Samfylkingar. Eins og öllum er kunnugt tekur Kvennalistinn þátt í sameiginlegu framboði þriggja flokka við alþingiskosningar í vor og á fulltrúa ofarlega á listum í öllum kjördæmum nema Norðurlandskjördæmunum. Kvenfrelsismál munu verða ofarlega á málefnalista framboðsins og mörg baráttumál önnur bíða fulltrúa Kvennalistans, eins og lesa má um í greinum þeirra hér í blaðinu. Það verður spennandi að fylgjast með kosningunum í vor. Þær verða sögulegar I mörgum skilningi. Með góðu gengi framboðsins má vænta þess að konum fjölgi verulega á Alþingi á næsta kjörtímabili. Hverjir hafa lagt sitt á vogarskálar jafnréttis? Hverjir hafa unnið jafnréttis- baráttunni gagn og hverjir ógagn? Sendu VERU ábendingar. plús íslandsbanki fyrir aö tileinka dagatal ársins 1999 íslenskum kvenskör- ungum. Tólf konur, ein fyrir hvern mánuö, eru kynntar á dagatalinu. I inngangi segir m.a. „Á þessari öld hefur hinu aldagamla karlaveldi smám saman hrakaö þó aö bar- áttuglööum konum hafi fundist heldur hægt miöa. En jafnvel meöan karlaveldið var hvaö eindregnast voru ævinlega uppi snillingar meðal kvenþjóöarinnar, sannir kvenskörung- ar, dugnaöarforkar, spekingar, skáld og listakonur." Fundaröðin Fleiri konur á Alþingi sem stjórnskipuö nefnd um aukinn hlut kvenna f stjórnmál- um stóö fyrir um allt land. Nefndin stóö einnig fyrir ágætri auglýsingaherferð, um þaö leyti sem prófkjör fóru fram, meö þessu vekjandi slagoröi: „Ef þú kýst ekki fulltrúa þinn, kýs einhver annar fulltrúa sinn sem fulltrúa þinn." Sjálfstæðismenn á Austurlandi fyrir að kjósa Arnbjörgu Sveinsdóttur I prófkjöri I 1. sæti framboðslista flokksins til Alþingis. Kosningin markar spor í sögu þessa gamla flokks þvi Arnbjörg er fyrsta konan sem nýtur þess trausts að leiöa lista Sjálfstæöisflokks í alþingis- kosningum. Landsbankinn og Búnaðarbankinn fyrir aö mismuna kynjunum viö greiöslu bifreiöastyrkja og brjóta þar meö jafnréttislög. Kærunefnd jafnréttismála geröi athugun á bifreiðastyrkjum i bönkum og komst aö þeirri nið- urstööu aö í þessum bönkum sé kynjunum mismunaö. í framhaldi af því vakti nefndin athygli bankanna á þeirri skyldu atvinnurekenda aö jafna stööu kynjanna innan fyrir- tækis því munur á stööu karla og kvenna innan þessara banka er sláandi. Mjólkursamsalan fyrir val á textum í annars ágætri auglýsingaherferö undir slagoröinu: íslenska er okkar mál. Umræddur texti er tilvitn- un í söguna um Dimmalimm þar sem segir af stúlku sem er svo þæg og góö, og þar aö auki sæt. Þessi boðskapur hef- ur haft nógu slæm áhrtf á ungar stúlkur i gegnum tíðina og óþarfi aö ítreka hann á þessum vettvangi. Launamisrétti kynjanna i könnun Þjóöhagsstofnunar á tekjum og eignum lands- manna, samkvæmt skattframtölum 1996 og 1997, var það rækilega staöfest aö mikill munur er á tekjum kynjanna. Framteljendum var skipt í tiu jafnstóra hópa og voru meðal- árstekjur i hæsta tekjuhópi karla 5.031.000 krónur. I hæsta tekjuhópi kvenna voru tekjurnar hins vegar aöeins 1.949.000 krónur sem er sama upphæö og meðaltal allra karlanna. 3

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.