Vera - 01.02.1999, Page 9
Viðharf lýðskólanna
Jákvæður mannskilningur og lýðræði var undirtónninn í manngildis-
byltingunni. Þá endurfæddist tiltrúin á fólkið. Loks var það viðurkennt
að fólk væri í eðli sínu óútreiknanlegar uppsprettur skapandi hug-
mynda. Og þetta sama fólk hafði, um leið og það var óheft, einnig
verkvit sem skapaði betri lífsforsendur. Það sannreyndi að örlög þess
voru ekki mótuð „ofanfrá”. Sömu bjartsýnisviðhorf urðu til þess að
bændastéttin, og síðar alþýðuhreyfingar á Norðurlöndum, byggðu
upp sína lýð(há)skóla. Þar var menntun borin á borð á forsendum
fólksins sjálfs. Það voru ekki lengur bara efnaðir stíf-flibba strákar af
góðum ættum sem gátu hlotið menntun. Danskurinn Grundtvig bauð
upp á námskeið fyrir bændafólk í „gagnlegum fræðum” sem fólkið
elskaði. (Orðið gagnfræðaskóli á rætur sínar að rekja þangað en í
Skandinavíu er að finna um 450 lýðskóla, tvo á Grænlandi og einn í
Færeyjum. Þeir elstu eru frá miðri 19. öld.)
Sá róttæki og jákvæði mannskilningur sem lýðskólafólk talar um
gæti hljómað svo: Sérhver manneskja er skilgreind sem einstök /
sérstök. Við erum öll hæf til að móta okkar örlög, bæði sem einstak-
lingar og hluti af stærri heild. Manneskjan er tilfinningavera og er því
í tilfinningalegu sambandi við annað fólk; gildin / „gullin” á markaðn-
um eru ekki bara andleg og veraldleg heldur siðferðileg og snúast um
samskipti og hlýju fólks sín á milli. Manneskjan er frjáls í eðli sínu og
ef hún væri það ekki gæti hún ekki verið ábyrg. Lýðskólafólk kennir
þátttöku í lýðræðislegu þjóðfélagi. Það vill sjá viðfangsefnin í heild-
rænu samhengi. Það sér sig sem þátttakendur í margslunginni tilveru
sem verður ekki skilin nema með hjálp margra. Teymisvinna getur
best brotið viðföngin til mergjar.
Mannskilningur lýðskólafólks er skýr. Hann er jákvæður, hyllir
gagnrýna hugsun. Lýðskólinn vill afhjúpa blekkingar og finna það
sem skiptir okkur máli; sannleikann og hamingjuna.
Skóli er ekki hús heldur fólk
í lýðskóla er umhverfið eins og á heimili. Þar er að finna litrika sali þar
sem nemendur sitja í hring, eins og á ráðstefnu, og umhverfið er
skreytt. Þar er setustofa með lifandi blómum, eldhúsið er hreint og
myndir eru á salernum. Umhverfið er yfirlýsing um kennsluhætti sem
eru í samræmi við skilninginn á manneskjunni. Þar kemur samræðan
þekkingunni betur til skila en eintal. Kennarinn er ekki „fagmaður” á
kaupi við að „hella upp á” nemendur, heldur er hann leiðbeinandi og
hvati. Hann tryggir að nemendur geti tileinkað sér þá þekkingu sem
á borðum er. Nemendur taka virkan þátt í stjórnun skólans sem og
stundatöflugerðinni. Hún er „án veggja”, sem þýðir að allur heimur-
inn er vettvangur rannsókna. Hópastarf / samskipti og tjáning eru
metin sem „vinna” á skólaskírteininu sem ekki er prófskírteini (enda
engin próf tekin). Og öll þrif og matargerð eru í höndum nemenda
sjálfra. Reiðin sem nemandinn hugsanlega hefur innanbrjósts rennur
af honum þegar kennarinn og aðrir í skólanum taka á móti honum
með áhuga og hlustun. Náin kynni og alþýðlegt viðmót kennara gef-
ur nemendum möguleika á að vera þeir sjálfir. Þeir verða frjálsir, þeir
fara á flug og sjá heiminn sem möguleika, sem svið án veggja og þeir
upplifa: Bjartsýni, drauma um bjarta framtíð og ástina. Þó svo sumir
detti niður, þá tekur enginn frá þeim reynsluna úr háloftunum. Aginn
kemur alltaf innanfrá.
Agi byrjar aftur
Agi litli byrjar aftur i skóla.
Hann ar góður við alla skólafélagana.
Hann tekur eftir því að:
Allir eru mettir og sáttir.
Þeim er hlýtt og hrósað.
Þau fá að tjá sig, sýnast, gleyma og fela.
Hér ríkir frelsi en þó reglur, sanngimi og skyldur.
Agi htli er glaður og þakkar þolgæði skólans.
Hann ætlar að hætta við að skrópa i prófunum.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
Öryggi í fjármálum er mikilvægt til þess að fjölskyldan
geti áhyggjulaus notið lífsins. Greiðsluþjónusta
Sparisjóðanna léttir þér fjármálavafstrið, gluggabréf
heyra sögunni til og þú hefur mun betra yfirlit yfir
fjármálin.[Þú fjetur vaiið milli þriggja leiðaT)
Greiðsluþjónustu Sparisjóðanna:
[ Greiðsludreifing: Við gerum greiðsluáætlun fyrir árið og
þú borgar jafnar mánaðarlegar greiðslur.
Stakargreiðslur:]Sparisjóðurinn greiðir fasta reikninga,
s.s. hitaveitu-, fjölmiðla- og rafmagnsreikninga.
Greiðslujöfnun:| Komi til þess að greiðslur einstakra
mánaða séu hærri en inneign þín lánar Sparisjóðurinn
mismunmn.
Greiðsluþjónusta Sparisjóðanna]er þægileg og örugg leið
til að ná jafnvægi í fjármálum þínum og heimilisins.