Vera - 01.02.1999, Síða 31
*
2,2% viðbótarsparnaður
Um síðustu áramót ákvað ríkisstjórnin að hvetja til
viðbótar lífeyrissparnaðar og heimila launafólki að
fá 2% launanna skattfrjáls ef þau yrðu greidd í líf-
eyrissjóð. Um leið var samþykkt að launagreiðend-
ur greiddu 0,2% viðbótariðgjald í sjóð launa-
mannsins, sem er 10% ávöxtun, en ríkið greiddi
fyrirtækjunum það til baka með lægra trygginga-
gjaldi.
Mikill þrýstingur hefur verið á launafólk að
Góður SjÓður fyrir þá sem hafa val
Söfnunarsjóður lifeyrisréttinda er lifeyrissjóður þeirra sem
ekki hafa fullnægt tryggingarskyldu sinni með aðild að öðrum
lífeyrissjóðum og þeirra sem geta samkvæmt lögum valið sér
lifeyrissjóð. Þvi getur breiður hópur greitt til sjóðsins t.d. ein-
yrkjar. í samræmi við nýsett lög um skyldutryggingu lífeyris-
réttinda og starfsemi lifeyrissjóða ber sjóðnum að innheimta
iðgjöld af þeim sem af einhverjum ástæðum hafa ekki greitt i
neinn lífeyrissjóð né tilgreint í skattframtali. Sjóðurinn mun
innheimta iðgjöldin á grundvelli upplýsinga sem skattayfirvöld
veita sjóðunum um fjárhæð greiddra launa og þar með ið-
gjaldastofn. Sigurbjörn Sigurbjörnsson framkvæmdastjóri
Söfnunarsjóðsins sagði frá möguleikunum sem bjóðast hjá
sjóðnum.
5öfnunarsjóður lífeyrisréttinda var stofnaður með lögum frá Alþingi
árið 1974. Hann er sjötti stærsti lífeyrissjóður landsins með eignir til
greiöslu lífeyris um 15 milljarða króna I árslok 1998. Róttindi sem
sjóðfélögum bjóðast eru einhver þau bestu sem samtryggingarsjóðir veita
án ábyrgðar vinnuveitenda. Mikil áhersla hefur verið lögð á að halda
rekstrarkostnaði í lágmarki og að ná traustri og góðri ávöxtun á eignir.
Vegna þessa hetur tekist að ná fram auknum réttindum til handa sjóðfé-
lögurn. í ársbyrjun 1997 voru t.d. róttindi til ellilífeyris aukin um 18%" seg-
ir Sigurbjörn.
Sigurbjörn leggur áherslu á sterka samtryggingardeild sjóðsins sem
tryggir allt í senn róttindi til örorku-, elli-, maka- og barnalífeyris án þess
að greiða þurfi fyrir einstaka hluta sérstaklega. Myndar deildin traustan
grunn að ævilöngum lífeyri til sjóðfélaga. Mikilvægt er að allir búi við slík-
ann grunn, ekki sist konur sem gera má ráð fyrir að lifi almennt lengur en
karlar. Til viðbótar traustum grunni hefur verið sett á stofn hjá sjóðnum
séreignardeild sem tekur við viðbótarsparnaði sjóðfélaga. Er hún alger-
lega fjárhagslega aðskilin öðrum rekstri. Samið hefur verið eftir útboð á
fjárrnálamarkaði við Búnaðarbanka íslands Verðbróf um ávöxtun viðbótar-
'urbjörn hjd Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda
sparnaðarins. Er sá samningur hagstæður sjóðnum og þar með sjóðfé-
lögum. Ávöxtun íjárins fer eftir ákveðnum fyrirfram settum reglum.
„Megin styrkur Söfnunarsjóðsins er að traustur rekstur sjóðsins hefur
leitt til þess að endurgreiðslur til sjóðfólaga I formi lífeyris eru góðar í sam-
anburði við aðra samtryggingarsjóði" segir Sigurbjörn. „Samkvæmt lög-
unum um starfsemi lífeyrissjóða er sjóðunum gert skylt að tryggja sjóðfé-
lögum a.m.k. 56% a< meðalmánaðarlaunum sínum I ævilangan, mánaðar-
legan lífeyri, svo fremi sem greitt hefur verið til sjóðs I 40 ár og lífeyristaka
hefst við 70 ára aldur. Sambærilegt hlutfall hjá Söfnunarsjóðnum er 84%.
Réttindastuðullinn er 1,8% á ári af þeim mánaðarlegu launum sem greitt
er til sjóðsins. Makalífeyrir er einnig mikilvægur hjá sjóðnum en Söfnun-
arsjóðurinn greiðir makalífeyri lengur en flestir aðrir sjóðir, eða til æviloka
eftlrlifandi maka, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Petta skiptir miklu
máli og er mikilvægt fyrir alla sem eru fjárhagslega háðir viðkomandi sjóð-
félaga. Þar er ekki eingöngu um hjón eða sambúðarfólk að ræða heldur
lika þá sem eiga með sér sannanlegt fjárfélag og það getur t.d. verið ógift
systir sjóðfélaga."