Vera - 01.02.1999, Síða 32

Vera - 01.02.1999, Síða 32
nýta sér þessa sparnaðarleið en margir hafa ekki tekið ákvörð- un um hvort þeir velja hana. Algengt er að aðeins um fjórðung- ur sjóðfélaga hafi sótt um þennan viðbótarsparnað. Frá ára- mótum hafa baeklingar streymt inn um bréfalúgurnar frá lífeyr- issjóðum og verðbréfafyrirtækjum með litprentuðum myndum af hressu og ánægðu eldra fólki í heimsreisum eða við uppi- byggileg tómstundastörf. Hver vill ekki vera heilbrigður og á- nægður í ellinni? Vandinn er bara að velja hvernig við tryggjum það best. Útreikningur lífeyris - stig Hér er dæmi um útreikning lífeyris miðað við 60.000 króna mánaðarlaun árið 1996 (90.000 núna) sem í flestum sjóðum gefur 1,5 stig á ári. Gert er ráð fyrir að sjóðfélagi hafi byrjað að greiða í lífeyrissjóð 25 ára. Ef hann verður öryrki eða fellur frá við 34 ára aldur eru réttindi hans framreiknuð til 67 ára aldurs og miðast réttindi hans þá við 54 stig eftir sérstökum reglum um útreikning. 32 Lífeyrissióður verzlunármanna er stærsti sjóðurinn Elíti hjd Llfeyrissjóði verzlunarmanno Lífeyrissjóður verzlunarmanna er stærsti lifeyrissjóður landsins með eignir upp á 60 milljarða króna. Sjóðurinn var stofnaður árið 1956 og er skráður fjöldi sjóðfélaga rúmlega 84.000. Á árinu 1998 greiddu yfir 34.400 manns til sjóðsins sem unnu hjá tæplega 4.500 fyrirtækjum. Aðild að sjóðnum eiga félagar í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur og fleiri verslunarmannafélögum, en einstaklingum sem starfa á sviði verslunar og viðskipta er einnig heimilt að greiða i sjóðinn, sem og sjálfstæðum atvinnurekendum. Nýlega var stofnuð séreignardeild hjá sjóðnum sem tekur við viðbótar- framlagi sjóðfélaga. Elin Valdís Þorsteinsdóttir lögfræðingur og innheimtu- stjóri svaraði spurningum Veru um lifeyrissjóðinn. 5amtryggingasjóðir, eins og Lífeyrissjóður verzlunarmanna, byggja á jafnréttishugsun, þar sem ekki er gerður greinarmunur á kyni greiðanda eða hvenær á lífaldrinum greiðslurnar berast. Nýju líf- eyrissjóðalögin styrkja lífeyriskerfið í landinu, sem hefur verið byggt upp á síðustu áratugum, því með lögfestingu þeirra er ríkisskattstjóra fengið eftirlit með því að allir launamenn leggi sitt af mörkum til þessarar sam- tryggingar, þ.e. með 10% lágmarksiðgjaldi af heildarlaunum," segir Elín Valdís. Segir hún það nýmæli í lögunum að sjóðfélagi geti nú ákveðið á grundvelli samkomulags, að skipta lífeyrisréttindum eða ellilífeyris- greiðslum milli sín og maka eða fyrrverandi maka. Þetta á við um hjón, sambúðarfóik og fólk í staðfestri samvist og tekur ákvæðið gildi 1. maí n.k. „Skipting lífeyrisréttinda er mikilvæg ef kemur til skilnaðar, sérstak- lega fyrir þann aðila sem hefur haft minna tækifæri til þess að mynda eign í lífeyrissjóði, t.d. heimavinnandi konur. Slíkt hefur stöku sinnum verið gert hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Vegna sterkrar stöðu sjóðs- ins voru lífeyrisréttindi sjóðfélaga aukin þ. 1. júlí 1997, þ.e. ellilífeyrir var hækkaður um 11,8% og barnalífeyrir um rúm 30%. Þá kom inn nýr möguleiki í makalífeyri og getur maki látins sjóðfélaga nú valið um að fá greiddan makalífeyri samkvæmt verðbættri inneign sjóðféiagans svo lengi sem hún endist, ef það gefur hagstæðari niðurstöðu en hefðbund- inn makalífeyrir. Hefðbundinn makalífeyrir er alltaf greiddur í minnst tvö ár en lengur ef eitthvað af eftirfarandi atriðum á við: eftirlifandi maki er fæddur fyrir árið 1945, yngsta barn sjóðfélaga er yngra en 23 ára, mak- inn er öryrki. Makalífeyrisreglurnar eru annars ekki einfaldar og þarf því að skoða hvert einstakt tilfelli sérstaklega," segir Elín Valdís.

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.