Vera - 01.02.1999, Síða 44
Dóra Líndal Hjartardóttir
efst Kvennalistakvenna á
Vesturlandi
Dóra Líndal er fædd á Akranesi 9. ágúst 1953.
Hún gekk hefðbundna skólagöngu á Akra-
nesi og tók gagnfræðapróf frá Gagnfræða-
skóla Akraness. Fram til 1973 stundaði hún
ýmis störf á Akranesi en árið 1974 hóf hún á-
samt manni sínum félagsbúskap á Vestri-
Leirárgörðum með tengdaforeldrum sínum.
Næstu 20 árin vann hún við landbúnaðarstörf
ásamt heimilisstörfum. Hún gekk fljótlega í
Búnaðarfélag Leirár- og Melahrepps og sat
um skeið í stjórn, tók einnig þátt í störfum
kvenfélagsins Grein um tima.
Eftir 20 ára störf við landbúnað var skrokk-
urinn farinn að láta sig og þá fann Dóra sér
nýjan vettvang - tónlist. Hún byrjaði að kenna
við Tónlistarskóla Borgarfjarðar og í Heiðar-
skóla og árið 1989 hóf hún nám i tónmennta-
kennaradeild við Tónlistarskólann i Reykjavík
og lauk þaðan kennaraprófi 1992. Sama
haust gerðist hún tónmenntakennari við
grunnskólana á Akranesi og starfar nú við
Grundaskóla. Hún hefur einnig unnið sem
kórstjóri með barnakóra og kvennakórinn
Ym, og með kór eldri borgara á Akranesi um
skeið.
Stuttu eftir að Samtök um kvennalista voru
stofnuð hóf Dóra að starfa með þeim, m.a.
við fjáröflun og kosningaundirbúning. i síð-
ustu kosningum skipaði hún 6. sæti listans.
Eiginmaður Dóru er Marteinn Njálsson
bóndi og húsasmiður og eiga þau þrjú börn;
Njál Líndal kennaranema, Ómar Lindal tann-
læknanema og Karenu Líndal sem er að Ijúka
10. bekk frá Heiðarskóla í Leirár- og Mela-
hreppi.
Styrkjum fjölskylduna
Samfylkingin hefur á stefnuskrá sinni marga
þætti sem höfða til mín. Eftir að hafa starfað
sem grunnskólakennari í sjö ár hef ég séð margt
í hegðun barna sem beint má rekja til of mikillar
vinnu foreldra.
Það er sorglegt að heyra að börn á leikskóla-
aldri skuli greind sem efni í afbrotamenn og ekk-
ert gert til að hjálpa þessum einstaklingum til að
fóta sig í lífinu. Hvernig er staða okkar þegar
meðferðarstofnanir fyrir þörn og unglinga eru yf-
irfullar og biðlistar eftir plássi? Höfum við þá haft
tækifæri til að veita þeim alla þá ást og um-
hyggju sem þau eiga rétt á?
Ég vil beita mér fyrir því að 6 - 8 stunda vinnu-
dagur sé nægjanlegur til viðunandi framfærslu
einstaklinga og Parna þeirra, því ég tel fjölskyld-
una vera mikilvægasta kjarnann í samfélagi okk-
ar og að fjölskyldan þurfi að vera meðlimum sín-
um raunverulegt skjól. Okkur er skylt að sam-
ræmi milli heimilis og atvinnu sé í jafnvægi með-
an börnin þurfa á okkur að halda og því tel ég að
12 mánaða fæðingarorlof sé ekki spurning held-
ur eðlilegt, því eins og máltækið segir „lengi býr
að fyrstu gerð.” Einnig þurfa foreldrar að geta
skipt á milli sín fæðingarorlofinu.
Bæta þarf stöðu barnafólks í formi skatt-
greiðslu, t.d. með því að hafa fjölþrepa skattkerfi
í tekjuskatti. Einnig er framfærslukostnaður mis-
mikill eftir því hvar á landinu þú býrð, m.a. þarf
að jafna húshitunarkostnað um landið þannig að
allir sitji við sama borð.
Eins og við vitum þurfa þeir sem ætla að
mennta sig yfrleitt að sækja nám til Reykjavíkur
eða Akureyrar með ærnum kostnaði. Þarna tel
ég að efling fjarnáms komi til greina og þarf að
styrkja þá stefnu sem þegar er hafin. Heilbrigð-
isþjónustuna þarf að bæta um allt land svo að
heilu byggðalögin standi aldrei frammi fyrir þeim
vanda að enginn læknir sé á svæðinu. Leið til að
tryggja þessa stefnu er að bæta samgöngur um
landið, bæta atvinnulífið, efla menninguna og
jafna framfærslukostnað.
Landbúnaður hefur lengi átt í erfiðleikum og
bændur haft lítil laun fyrir sína miklu vinnu, því
þó krónurnar telji kannski hátt þá er of mikið
sem fer til baka í kostnaðarliði, s.s. áburðar-
kaup, fóðurbæti og margskonar þjónustu við
búið. Mér finnst afar jákvæður sá áhugi sem er
fyrir lífrænni ræktun í landinu og á ísland að vera
framsækið á því sviði með því að styðja vel
þessa framleiðslu og auka sölu hennar á erlend-
um mörkuðum. Einnig er aukning á ferðamönn-
um til landsins jákvæð en þá þarf að huga að því
hvort við látum ferðamenn greiða aðgang að
þjóðgörðum okkar líkt og gert er í öðrum lönd-
um.
Það er hægt að efla atvinnu með öðrum hætti
en að setja niður stóriðju hingað og þangað um
landið. Því landið okkar ísland er perla sem okk-
ur ber að gæta fyrir komandi kynslóðir og því
megum við ekki breyta svo ásjónu þess að það
líkist spúandi dreka.
Leiðrétting
í síðasta tbl. Veru urðu þau leiðu mistök að rangur aukalitur var prentaður á átta síður blaðsins.
Kom það sérlega bagalega út á bls. 56, í inngangi að grein um ferð Brautargengiskvenna til ír-
lands . Eru hlutaðeigandi beðnar velvirðingar á mistökunum, svo og allir lesendur sem eflaust hafa
átt í vandræðum með að lesa texta á Ijósbláum grunni. Aukaliturinn átti hins vegar að vera vín-
rauður.
44