Vera - 01.02.1999, Qupperneq 51

Vera - 01.02.1999, Qupperneq 51
Feministi fer á bíó Anna Ólafsdóttir Björnsson L. Vinterbergs og Valdísar Kvikmyndafiátíð er lokið en gestirnir héldu áfram að narta í afgangana dagana á eftir því vinsœlustu myndir hátíðarinnar voru sýndar áfram um sinn. Meðal þeirra mynda sem náðu hvað mestum vinsældum varVeislan (Festen) eftir Danann Thomas Vinterberg. Hún er ein sú ferskasta og áhugaverðasta sem hingað hefur rekið í langan tíma. Myndin hlaut dóm- nefndarverðlaunin í Cannes á sfðasta ári. Hún er gerð eftir forskrift þeirri sem kölluð er Dogma 95 og Lars von Trier hefur einkum verið talsmaður fyrir. Vinterberg Þau tíu atriði sem leikstjórar Dogma myndanna hafa að leiðar- Ijósi fela flest ( sér að myndirnar virka „raunverulegri” en hin venjuiega Hollywood-framleiðsla, kvikmyndavélin er í höndun- um á tökumanninum sem eltir gjarnan leikarana, þeir eru í eig- in fötum, fátt er um „fiff” og blekkingar kvikmyndanna og allt þetta leggur að sjálfsögðu gríðarmikinn vanda á herðar klipp- aranum. Valdís Óskarsdóttir sá um klippingu Veislunnar og vinnur þar hreinlega þrekvirki, svo lipurlega líður þessi undar- lega mynd áfram. Þótt leikararnir séu vissulega bæði eftir- minnilegir og hæfir eru það þó leikstjórinn og klipparinn sem móta þessa mynd öðrum fremur og gera hana að þeim dýrgrip sem hún er. Það hlýtur að þurfa geysilega góða yfirsýn og aga til að gera góða mynd sem er jafn ólgandi fjörug og Veislan en jafnframt með jafn sterka undiröldu. Og það hefur einfaldlega tekist. burðarásina í gegnum persónu hans og skoða þær þreytingar sem eiga sér stað og allt það vonda og góða sem brýst fram eftir því sem líður á veislukvöldið. Aðrir hafa þó á vissan hátt þyngri (eða alla vega þyngslalegri) hlutverk á herðum og leik- ararnir eiga það sammerkt að skila fantagóðum leik. Það er sama hvort litið er á afmælisbarnið, Helge, sem Henning Moritzsen kemur óþægilega vel til skila, systurina Helene sem Paprika Steen leikur, yfirkokkinn eða veislustjórann, myndin er full af litlum senum þar sem hvert þeirra fyrir sig skilar sérlega skemmtilegum leik. Hreyfiaflið í myndinni er, þrátt fyrir mikið sprell og fjör, orðin - þung og máttug orð sem notuð eru til háskalegra skylminga. Sá sem á fyrsta orðið (og síðasta) er eldri bróðirinn Christian, en Ulrich Tomsen sem leikur hann kom til íslands í tilefni sýningarinnar. Hann hefur vandasamt hlutverk með höndum og skilar því vel eins og aðrir leikarar en túlkun hans á Christian er dálítið sérstæð. AIvarlegt efni og ágeng fmmsetmng Það er ekkert verið að tvínóna við að koma boðskap myndar- innar á framfæri. Því hefur verið fleygt að hann sé nánast tugg- inn ofan í áhorfandann og má það til sanns vegar færa. Ekki veitir af, því Vinterberg er mikið niðri fyrir og ræðst gegn kúg- un, feluleik og ömurlegum glæp sem einungis þrífst í skjóli af- neitunarinnar. Það sem gerir skilaboð myndarinnar svo áhrifa- rík er bæði sú ágenga framsetning sem Vinterberg velur og ekki síður hryllilega fyndin lýsing á afneitun nánast allra í um- hverfinu sem kjósa það frekar að dansa „konga” með níðing- inn í broddi fylkingar en að horfast í augu við það sem hann hefur gert. Rammi myndarinnar er heljarmikil fjölskylduveisla í tilefni sextugsafmælis vel stæðs heimilisföður I notalegu dönsku sveitinni, sem kannski er ekkert svo notaleg þegar allt kemur til alls. Gestirnir streyma að, uppkomin börn, foreldrar afmælisbarnsins og allir fínu vinirnir. Smá spenna í loftinu, en það er jú eðilegt, eða hvað? Systkinin eru í lykilhlutverkum í myndinni og eru hvert öðru eftirminnilegri. Yngri bróðirinn Michael (Thomas Bo Larsen), sem virðist alltaf vilja gera gott úr öllu en ferst það reyndar afskaplega misvel, er líklegast sá sem grípur athyglina helst. Það er dálítið merkilegt að lesa at- Skiptir Dogma 95 máli? Margir hafa spáð því að Dogma 95 sé bóla sem eigi eftir að ganga sér til húðar á skömmum tíma. Því er ennfremur haldið fram að aðferðin hafi ekki haft úrslitaáhrif á áhrifamátt kvik- myndarinnar Veislunnar. Ég neyðist til að vera því ósammála, því ég held að sá brýni boðskapur sem Vinterberg er að djöfl- ast við að koma á framfæri skili sér einmitt svo vel vegna að- ferðarinnar sem notuð er. Og mér sýnist á viðtölum við Vinter- berg að hann ætli ekkert endilega að láta staðar numið í við- leitni sinni við að fara nýjar slóðir. „Við (Dogma-leikstjóramir) erum í uppreisn gegn mestöllu því sem gert er í kvikmynda- gerð. Flestar myndir eru fyrirsjáanlegar og listrænt geldar.” Hann hefur líka lýst því yfir að hann sé í uppreisn bæði með formi og efnistökum sínum. Og sé þetta það sem koma skal í þessari viðleitni er vonandi að hann fái tækifæri til að halda áfram enn um sinn. Thomas Vinterberg er ungur leikstjóri og virðist ólgandi af sköpunargleði. Hann flíkar því gjarnan að hann sé afsprengi uppeldisins sem hann fékk í hippakommúnu utan við Kaupmannahöfn. Nú er hann kallaður gulldrengurinn, eftir verðlaunin I Cannes. Kannski svolítið þversagnakennt, en það er varla verra.

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.