Vera - 01.08.1999, Síða 6

Vera - 01.08.1999, Síða 6
 SÓLA Bkki .bara vinna beldnr ogl í í S S t íl 1 álixigamál P P o Erla Sólveig Oskarsdóltir, húsgagna- og iðnhörriuður r „Ég hef alltaf haft ofboðslegan áhuga á öllu í kringum mig. Húsgögn eru eins og skúlptúr, þau geta mótað umhverfi sitt og staðið sjálfstætt. Ég nýt þess að vinna við þetta," segir Erla Sólveig Óskarsdóttir, húsgagna- og iðnhönnuður. Erla Sólveig lærði í Danmörku í Danmarks Designskole og útskrifaðist það- an af iðnhönnunarbraut árið 1993. Síðan þá hefur hún starf- að sjálfstætt og kallar stofuna sína ÓSKARS design. Húsgögn hafa sjálfstætt líf Erla Sólveig hefur nær einvörðungu verið í hús- gagnahönnun. „Þegar ég kom heim gerði ég leikmynd við bíómyndina Skýjahöllin. Það var gaman að prófa en það átti ekki við mig. I leik- mynd lítur allt út fyrir að vera eitthvað annað en það er, en það sem er skemmtilegt við að gera húsgögn er að þetta eru hlutir sem lifa nokkurs konar sjálfstæðu lífi. Ég hef líka próf- að að vinna eitt verkefni við innanhússhönnun. Svo hef ég hannað plastflöskur undir matarolíu fyrir Sól hf. og olíur fyrir Olís. I þeim verkefnum fer maður að sjá allt aðra hluti og tekur eftir fleiri hlutum í umhverfi sínu." Lífsstíll og áhugamál Erla Sólveig segir að reksturinn hjá sér hafi gengið hægt en bítandi.„Það er ekki óeðlilegt að það líði 10 ár frá námslokum og þar til fyr- irtækið er komið í fullan gang og maður verð- ur að vera tilbúinn að vinna í nokkuð mörg ár kauplaust. Þetta er ekki bara vinna, heldur lífsstíll og áhugamál," bætir Erla Sólveig við. „Það er bara fjölskyldan og vinnan sem komast að. En það er ólíkt auðveldari róður núna en bara fyr- ir fjórum árum. Verkefnin hlaða utan á sig. Ef eitthvað gengur vel vilja fleiri vera með," segir Erla Sólveig og er nokkuð bjartsýn á framtíð fyrirtækisins. Erla Sólveig hefur mestmegnis verið að hanna fyrir erlend fyrirtæki, Brune í Þýskalandi og Hansen & Sorensen í Danmörku. Hún bend- ir þó á að baststólarnir sem við sitjum á hafi á tímabili verið framleiddir hjá GKS. „Yfirleitt vinn ég fyrst hugmyndina og leita svo að samstarfsaðila til að framleiða hana. Það er sjaldgæfara í húsgagnahönnun að mað- ur sé beinlínis beðinn um að skila hugmyndum og fái borgað fyrir það. Ég bý til frumgerðir og kynni þær á sýningum. Svo smám saman kynn- ist maður fleiri framleiðendum og getur þá haft beint samband við fleiri. Ég tek þátt í sýn- ingum á hverju ári og hef hingað til séð um það sjálf," segir Erla Sólveig en hún er í EXIS, hópi hönnuða sem fara saman á sýningar í Kaupmannahöfn. „Við berum sjálf kostnað af öllu í tengslum við sýningarnar en öflum okkur styrkja hjá fyrirtækjum og sjóðum. Það er gíf- urleg vinna í kringum þetta og þetta er of- boðslega dýrt. Dýrast er að gera frumgerðirnar en enginn sjóður hefur viljað styrkja það og það hefur staðið okkur dálitið fyrir þrifum." Erla Sólveig fer á sýningu í Kaupmannahöfn 26. ágúst. „Núna eru það Hansen og Sorensen sem sýna stólinn Jaka en þeir framleiða hann eftir minni hönnun." Fékk silfurverðlaun á NeoCon í Chicago Hansen & Sorensen sáu frumgerð af stólnum Jaka á sýningu hjá Erlu Sólveigu árið 1997 og er fyrirtækið að hefja sölu á honum núna. Bandariska fyrirtækið Bernhardt flytur hann inn til Bandaríkjanna og kynnti stólinn á NeoCon sýningunni i Chicago í júní siðastliðn- um. Þetta er stærsta húsgagnasýning i Banda- ríkjunum fyrir fyrirtækjamarkað. k o n u r í ti S n n n n - E r I a S 6 I v e i g Ó s k a r s d ó l t i r 6 • VERA

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.