Vera - 01.08.1999, Blaðsíða 15
Þórdls segir að kannski fari bíllinn á fleiri sýningar á næsta ári.
raun mín fyrstu kynni af hönnun og þau komu
mér á óvart. Þessi reynsla hvatti mig llka til að
nýta fleiri möguleika I náminu en þá sem voru
í boði innan hverrar deildar í MHl. Til dæmis
tók ég video- og Ijósmyndakúrs ásamt grafík-
inni úti ( Barcelona og kynnti mér starfsemina I
iðnhönnunarskólum þar. Hönnunin og smíðin
á bílnum var margra mánaða brjáluð vinnutörn
og náin samvinna ólíkra einstaklinga en um-
fram allt var þetta stókostlega skemmtileg
reynsla." Þórdls segist óákveðin með hvaða
stefnu hún taki. Þó sé hún ákveðin I að fara út
I framhaldsnám. „Hönnun virðist eiga sterk
ítök I hópnum. Til að mynda verða Guðrún
Margrét og Sigríður I iðnhönnunardeildum I
Barcelona I vetur og Jón Örn og Guðmundur
munu hefja nám I Danmarks Design I haust."
Er ísland góður vettvangur fyrir
skapandi vinnu á borð við þessa?
„Sú staðreynd að við unnum bjöllubllinn hérna
á Islandi hefur tvlmælalaust skipt sköpum fyrir
verkefnið, en við nutum margvlslegra styrkja
og aðstoðar frá stofnunum og fyrirtækjum.
Það er einstakt á Islandi að hægt sé að labba
inn I fyrirtæki með óraunhæfa hugmynd eins
og okkar virtist þá og fá á augabragði alla þá
hjálp sem maður leitar eftir og meira til. Islend-
ingar eru jákvæðir gagnvart framtaki og nýjum
hugmyndum. Lltið þjóðfélag hefur bæði kosti
og galla og þrátt fyrir allt og allt virðast nýút-
skrifaðir myndlistarnemar eiga sér þá ósk
heitasta að koma sér út fyrir landsteinana."
leiddu vöru. Þarna kom sterkt fram frelsið sem
nemendur hafa til að ímynda sér markhópinn.
Lögð var áhersla á andlega meðvitund íbúans
gagnvart hlbýlum sínum og umhverfi. Hægt
var að bægja frá sér raunsæjum staðreyndum
um veraldlega sinnaðan hugsanagang „kaup-
enda". Þessi draumsýn ungra hönnuða á farar-
tækjum framtíðarinnar er mjög áhugaverð."
En hvað með framhaldið, er það rétt að
stórfyrirtæki á borð við Saab, Volvo og
Mercedes Benz hafi sýnt áhuga á fram-
leiðslurétti?
„Fyrsta hálfa árið fórum við á fjórar sýningar til
viðbótar og áhugi fólks var mikill. Bílaverk-
smiðjurnar sem þú nefndir fengu m.a. upplýs-
ingar um bílinn. Hvorki við né skólinn gerðum
ráð fyrir framhaldsllfi hjá bllnum eftir keppnina
og við vorum þvl frekar óskipulögð við að
halda utan um þetta. Ég og Sigríður höfum
verið við nám I Barcelona I vetur og eftir ára-
nnót fór öll orkan hjá helmingi hópsins I að
sinna útskriftarverkefnum slnum. Einhverjar
óljósar umræður eru þó komnar I gang á ný
varðandi þátttöku I sýningu árið 2000. Þá þurf-
um við að lappa svolítið upp á litlu bjölluna
okkar því að fyrir utan það að hafa staðið
óhreyfður I hálft ár þá lenti hann I ýmis konar
hnjaski á svaðilförum sínum á milli sýninga. Við
Jón Örn erum svo að spá I að viðra bllinn I róm-
antískum lautar- og haustlitaferðum."
Tekur skólinn ekki þátt í að
fylgja verkefninu eftir?
„Engar ákvarðanir um það hvort verkefninu
verði fylgt eftir hafa verið teknar I samráði við
skólann. Myndlista- og handíðaskólinn hefur
nú lokið störfum fyrir fullt og allt og Listahá-
skólinn tekur við I haust. Stefnan er að loka-
niðurstaða um aðild skólans að hugmyndinni
verði komin á hreint fyrir haustið."
Þórdís bætir því við að löngu sé orðið tlma-
bært að myndlistarnám á (slandi verði metið á
háskólastigi. „Maður er að Ijúka fjögurra ára
námi að loknu stúdentsprófi án þess að hljóta
viðurkennda gráðu. Það er leiðinlegur vitnis-
burður um viðhorf (slendinga til myndlistar-
náms. Einnig er verið að vinna að þvl að koma
á fót iðnhönnunardeild innan nýju stofnunar-
innar og auka samgöngur á milli deilda. Þetta
er reyndar allt á tilraunastigi en ég held að
þessar breytingar verði mjög til bóta."
Hvað hefur þessi
reynsla gefið þér
sem listamanni?
„Þetta er mjög dýr-
mæt reynsla og mun
lærdómsrlkari en eins
og hálfs árs hefð-
bundið nám hefði
verið. Þetta voru I