Vera - 01.08.1999, Blaðsíða 40
misrétti kynjanna. Það væri söguleg
stund og gott fordæmi. Það væri alveg
bráðsniðugt.
Ég hef borið þetta barn með
nokkrum konum undir belti, síðan í
Kirkjubæjarklaustri um miðjan mars.
Núna í júní tók hópurinn sem mestan
áhuga sýndi á málinu að funda. Konurnar sem mættu á undirbún-
ingsfundi eru þessar í stafrófsröð: séra Anna Sigríður Pálsdóttir,
séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Guðrún
Ása Grímsdóttir, Hanna Steinunn Þorleifsdóttir, Helga E. Jónsdótt-
ir, Inga Huld Hákonardóttir, Kristín Ástgeirsdóttir, Ragnheiður Þor-
láksdóttir, Vilborg Davíðsdóttir. Ég hef verið ritari hópsins.
Draumurinn minnti á helgisögu
Draumurinn minnti á helgisögu allan tímann. Ég hef haft það á til-
finningunni að sterkari kraftar væru að
verki en þeir kraftar sem í nokkrum
kerlingum búa. Nöfn okkar fjögurra
sem lögðumst í snjóinn á Klaustri undir
norðurljósunum - að dreyma Maríuset-
ur - eru táknræn eins og í helgisögu. Á
mikilfenglegustu norðurljós sem við
höfum séð horfðum við saman, tvær
Goð-rúnir Ása, helgari nöfn finnast ekki
í norrænunni, og Vilborg sem á kelt-
nesku þýðir sú sem hjálpar. Ég er sú
sem elskar Þór. Þess vegna sló Þór mig
með hamri sínum daginn eftir og sendi
þá hugmynd niður um hvirfilinn að
draumi um nútímasetur kvenna á
Klaustri mætti breyta í kröfu. Þór sló
með hamrinum þessari hugmynd í
hausinn á mér af því að ég hef unnið að
ritun kristnisögu, orðið fyrir miklum
áhrifum af kvennasögu Ingu Huldar og
hef gert heimildaþátt um Jón Sigurðs-
son, svo ég þekki söguieg rök hans fyr-
ir kröfugerð. Erindin sem við hlustuð-
um á í tvo daga á Klaustri gerðu sögu
staðarins svo lifandi að Halldóra abbadís reið um hérað með
sveinum sínum og nunnur hennar skrifuðu bækur. Eftir sátu tvenn
rök forn og merkreignir klausturs má ekki afnema, og kirkjan á
sífellt að vera í endurskoðun.
Hví eignast konur ekki gamalt setur með nýjum formerkjum?
Eins konar nútímaklaustur fyrir allar hugmyndir kvenna? Við höf-
um ekki skynjað fullveldið og öll þau tækifæri sem fullveldi gefur
okkur. íslendingar eiga lítið lýðveidi og geta látið allskonar
drauma rætast. Það hefur bara skort á að okkur hafi dreymt nógu
djarfa drauma! Mér leið eins og skrifað væri í gegnum mig þegar
ég reit frumdrögin að hugmynd um Maríusetur undir lok þingsins
á Klaustri. Kjarkurinn til að standa upp og þakka fyrir þingið og
viðra hugmyndina var ekki minn. Það voru einhver mögn sem
studdu mig.
Guðrún Ásmundsdóttir stakk upp á því í rútunni á leiðinni
heim frá Klaustri að hittast hér í Viðey. Seinna áttaði ég mig á því
að fyrir helgisögulega hendingu var
Viðey rétti staðurinn til þessa fundar.
Herskipið sem hingað kom til að sölsa
klaustrin undir kóng lagði hér við Við-
ey og ribbaldarnir ráku munkana hér
nakta úr rúmunum og út úr húsum fyr-
ir 450 árum. Þetta er ein af þessum merk-
ingarþrungnu tilviljunum. Núna, sem við hittumst hér, eru fyrir
álíka tilviljun aliir prestar landsins, og kvenprestar þar með taldir,
að ljúka prestastefnu á Kirkjubæjarklaustri. Urður, yfir-örlaga-
norn, er að stríða okkur. Hún situr niðri við Urðarbrunn og
skemmtir sér. Setur presta að Kirkjubæjarklaustri og okkur hér
samtímis. Auður Eir er ásamt séra Önnu Sigríði Pálsdóttur á
Klaustri nú að kynna drauminn um Maríusetur fyrir prestum af
öllum kynjum. Urður örlaganorn við Urðarbrunn hagaði því
þannig að þessi hugmynd kemur fram um leið og konur unnu
stórsigur á Alþingi. Urður hagaði því
þannig að nýi kirkjumálaráðherrann
okkar er kona. Hér eru mögn að verki.
Nýju þingkonurnar okkar 22 fengu
sömu drög að opinberri stefnuskrá um
Maríusetur í hendur og þið sem hér
eruð. Kristín Ástgeirsdóttir sendi okkur,
áður en hún fór á kvennaþing í Tromsö
þar sem hún situr nú, hugmyndir um
framhald málsins. Hún ræddi þar þá
möguleika að leggja málið fyrir þingið
eða ríkisstjórnina. Fljótlegra væri að
senda erindið til ríkisstjórnarinnar því
að í sjálfu sér þyrfti ekki annað en
ákvörðun ríkisstjórnar til að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd. Þetta tel ég
bestu lausnina því að okkur liggur á.
Með því að tengja hugmyndina alþjóð-
lega kvennaþinginu í haust fær hún svo
mikla vigt. Ég legg því til að við sem
aðhyllumst drauminn um Maríusetur
setjum nöfnin okkar á blað og stofnum
með því óformlegt félag í eitt kvöld án
allra skuldbindinga. Samþykkjum opin-
bera stefnuyfirlýsingu og sendum Sólveigu Pétursdóttur dóms- og
kirkjumálaráðherra. Ég samdi stutt ávarp til hennar svohljóðandi:
Til Sólveigar Pétursdóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra:
Innilega til hamingju með þitt mikilvœga nýja embœtti.
Nokkrar konur afhenda þér hugmynd um stofnun Maríu-
seturs í þeirri von að þér líki hugmyndin nógu vel til þess
að viðra málið í ríkisstjóminni. Stjórnvöld gœtu sagt frá
stofnun Maríuseturs, með loforði um fjárhagslegan stuðn-
ing, á alþjóðlega kvennaþinginu hér í október og lýst því
yfir að til þess verði stofnað til þess að bœta fyrir sögulegt
misrétti kynjanna. Bótahugmynd Maríuseturs gceti vakið
heimsathygli og orðið þjóðinni til sóma.
Það væri stórkostlegt ef að stjórnvöld
gætu sagt frá stofnun Maríuseturs,
með loforði um fjárhagslegan stuðning,
á alþjóðlega kvennaþinginu hér í haust,
sem dregur heimspressuna hingað vegna
þátttöku forsetafrúar Bandaríkjanna,
Hillary Clinton.
4 0 • V E R A