Vera - 01.08.1999, Qupperneq 17
>1
HÖFÐI
Stóll úr húsgagnalínu
sem Þórdís hannaði
sérstaklega fyrir Höfða
Reykjavíkurborgar
greinina með erlendum fyrirlesurum. Sýningin
verður um miðjan október í Garðabæ, á nýju
torgi við Bæjarskrifstofur Garðabæjar."
Árið 2000 er svo fyrirhugað að halda stóra
sögulega hönnunarsýningu á Kjarvalsstöðum á
vegum Form (sland. Að því standa m.a. Reykja-
víkurborg og Hönnunarsafnið og verður sýn-
ingin í tengslum við verkefnið Menningarborg
2000. Þórdís nefnir einnig að nú er stefnt að
því að hefja hönnunarnám í Listaháskóla (s-
lands sem tekur til starfa næsta ár. Undirbún-
ingsnefnd er nú að vinna að skipulagningu, en
Þórdís var í annarri undirbúningsnefnd sem
starfaði í vetur. „Mér finnst þetta afar jákvætt
fyrir hönnun á íslandi," segir hún um þessa
væntanlegu deild.
„Það sem hefur aðallega breyst I greininni
undanfarið er að landamærin milli hinna vmsu
greina innan hönnunar eru að minnka. Að-
ferðafræðin við hönnun er svo svipuð. Hönnun
hefur verið tískugrein undanfarin ár, en hús-
gagna- og innanhússhönnun varð ekki algeng
hér á landi fyrr en á 6. áratugnum. Upphaflega
er hönnun afleiðing af iðnbyltingunni þegar
áhugi manna beindist að því að ekki var ein-
ungis nóg að hlutirnir virkuðu, þeir þuftu líka
að höfða til neytandans. Markaðurinn verður
að taka við hugmyndunum. Hönnun er þvl
alltaf breytileg og fer eftir því samfélagi sem
hönnuðurinn er í. Síðan er annað atriði sem
hefur mikil áhrif á hönnun og það er tæknin
og notkun á nýjum efnum. Ný efni og tækni
geta t.d gefið hönnuðinum tækifæri til þróa
og forma sínar villtustu hugmyndir."
Hvernia er að vera hönnuður á íslandi?
„Eins og staðan er í
dag skiptir engu
máli hvar menn eru
staddir," segir Þór-
dís. „Þaðer hægtað
senda og finna allar
upplýsingar gegnum
tölvur. Sem dæmi
um hvað hlutirnir
hafa breyst þá eru
um þrjú ár síðan ég
lagði teikniborðinu
-sem var rándýrt
þegar ég keypti það
en er nær verðlaust
núna -og I dag vinn
ég nær eingöngu á
tölvu. Það verður
k o n u r
í
ö n n n n
alltaf mikilvægara að nýta tæknina til að tjá
sínar hugmyndir. Það er tölvutæknin sem mað-
ur kemur til með að nota æ meira."
Þórdís hefur greinilega mikinn áhuga á
þeim möguleikum sem tæknin gefur og sýnir
blaðamanni forritið sem hún vinnur með. Þar
er m.a. hægt að skoða húsgögnin í þrívídd og
raða þeim niður i ákveðið rými. Við skoðum
húsgögnin sem hönnuð voru fyrir Höfða og
hvernig þeim er raðað niður.
„Maður getur fljótlega séð í tölvunni hvern-
ig hluturinn lítur út og hvernig hann virkar í því
umhverfi sem hann er hugsaður fyrir, síðan er
auðvelt að senda þessar hugmyndir til fram-
leiðenda á Netinu.Við erum ekki lengur bund-
in við markaðinn hér heima. Islenskur markað-
ur takmarkast svo af smæðinni að öll fram-
leiðsla verður mikið dýrari en raunverulega
þyfti að vera. Hvað varðar fagmennsku í hús-
gagnasmíði þá stöndum við vel og það er mik-
il þekking fyrir hendi, en smæð markaðarins
gerir framleiðsluna erfiðari og stundum alger-
lega útilokaða. Við höfum þó náð langt I sölu
á íslenskum skrifstofuhúsgögnum hér á landi.
Ég kynni hönnun mína mikið á húsgagnasýn-
ingum og markaðsset mig helst þannig núna.
Frá upphafi hef ég verið í hópi íslenskra hönn-
uða sem kalla sig EXIS og hefur verið að sýna
á Furniture Fair í Bella Center í Kaupmanna-
höfn. Þannig höfum við náð mörgum góðum
samböndum. Síðan sæki ég líka aðrar hús-
gagnsýningar. Það skiptir ekki lengur máli hvar
I heiminum maður er. Aðalatriðið er að hafa
góð tengsl og ná samböndum. Það er mikil-
vægt að koma sér á framfæri við rétta aðila á
réttum tíma. Það er líka visst happdrætti en
viðtal: Auður Aðalsteirisdóttir
VERA • 17