Vera - 01.08.1999, Side 18

Vera - 01.08.1999, Side 18
 : O P ?= O mikilvægt er að vinna taktfast að þessum mál- um. Mér finnst aðalatriði að vera alltaf virk í mínu stafi." Hver hönnuður hefur sína sýn Húsgagnahönnun og hönnun hefur verið stétt karlmanna en landamæri kvenna og karla eru ekki jafn skýr nú," segir Þórdís þegar hún er spurð hvernig staða kvenna sé innan stéttar- innar. „Ég held líka að sífellt fleiri konur séu að fara í þetta starf." Hún tekur þó fram að hún sé ekki hlynnt því að fjalla um starfið út frá kynferði og taka konur til hliðar sem sérstakan hóp. „Ég finn ekkert fyrir því að það sé öðru- vísi fyrir mig innan stéttarinnar þó ég sé kona. Ef maður stendur fyrir því sem maður er að gera og vinnur faglega er alveg jafn mikið mark tekið á konum og körlum. Það má vera að það sé einhver munur á hvernig konur vinna. En það er vinnulagið sem skiptir máli og það er afar persónubundið. Hver og einn hönnuður hefur sína sýn. Konur hanná kannski öðruvísi, það má vera," segir Þórdís hugsandi. „Ég er til dæmis sögð hafa ákveðið innsæi á teiknistofunni, sem samstarfsmenn mínir kalla kvenlegt innsæi, en ég kalla þetta nú bara al- menna skynsemi, sem og það er," segir Þórdis og hlær. Ögrandi verkefni nauðsynleg Þórdís segir að sjálfstæði reksturinn hafi geng- ið ágætlega. „Það er aðeins erfiðara að vera með sjálfstæðan rekstur svo ég reyni að blanda starfinu með því að vinna með öðrum á teikni- stofu af og til. Það er líka gott að geta haft möguleika á að vera í samstafi við aðra í fag- inu því það er nauðsynlegt að eiga gagnrýnar samræður með góðu fólki. Verkefnin skapar maður sér að hluta til sjálfur. Sumt kemur upp í hendurnar á manni en annað að eigin frum- kvæði." Þórdís segir ekkert eitt verkefni standa upp úr af þeim sem hún hefur unnið. „Maður byrj- ar á verkefni og hellir sér út í það og fer að vinna að lausnum. Það er þó gaman að fá að takast á við eitthvað sem er erfiðara og meira krefjandi en síðasta viðfangsefni. Það er nauð- synlegt að fá ögrun til að geta þróað eitthvað. Ég hef mikið verið í stólum, ég er stundum með í huga að reyna önnur efni og gæti hugs- að mér að hanna annnað en stóla til fjölda- framleiðslu. Maður er alltaf í þróun sjálfur og upplifir hlutina og umhverfi sitt sífellt breyti- lega." - i -ys-'U Skeifunni 6 simi: 568 7733 www.epal.is 22 ný gluggatjöld frá Kvadrat. Fjöldi lita! Með þvífallegasta sem Eyjólfur hefur séð og kallar hann ekki allt ömmu sína íþeim efnum! Gott verð, falleg hönnun og sérviska Eyjólfs 18 • VERA

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.