Vera - 01.08.1999, Qupperneq 33

Vera - 01.08.1999, Qupperneq 33
fengu vitneskju um baráttuaðferðir í öðrum löndum og hugmyndir um hvernig best væri að framkvæma hlutina heima fyrir. Kvennalist- ar voru því angi af miklu stærri hreyfingu hér í Reykjavík og þarna voru á ferð konur sem vissu allt um feðraveldið. Þær voru ekki með neitt hálfkák heldur voru þær mjög vissar um hvað bæri og þyrfti að gera, þ.e. að ná völdum og hefjast svo handa við að breyta heiminum." I ritgerðinni kemur Auður að því hvers vegna konurnar náðu ekki háleitustu mark- miðum sínum eftir að hafa lagt grunn að vel- ferðarþjóðfélagi, en horfið aftur úr bæjarstjórnum eftir að hafa náð góðum árangri í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum uppúr aldamótum. Það var t.d. ekki fyrr en árið 1982 að konur náðu aftur sama hlutfalli í borgar- stjórn Reykjavíkur og árið 1908, eða um 50 árum áður. I allan þennan tíma dró sérstaklega mikið úr fjölda kvenna í bæjar- stjórnum á íslandi miðað við mörg önnur lönd þar sem þeim fækkaði einnig um langa hríð. Auður skoðar hvernig stofnanir breyttust en bætir þó við að breytingar á stofnunum dugi ekki alltaf sem skýríng. Einstak- lingar skipti líka máli: „Núna eru þrjár konur ráðherrar og það gerðist án nokk- urra breytinga á þeim stofnunum sem koma ís- lenskum sjórnmálum við. Þetta var einfaldlega háð ákvörðun þeirra sem ráða. Brotthvarf kvenna í nær hálfa öld úr bæjarstjórnum er því rakið til síns heima í ritgerðinni því stofnanirn- arsem lutu stjórnmálunum höfðu ekki breyst," segir Auður og rekur aukna samkeppni í stjórnmálum, meiri völd bæjarstjórninni til handa og hraðar breytingar þegar Reykjavíkur- þorp verður bær framkvæmdanna og stétta- stjórnmál verða til, en útskýrir einnig að aukin samkeppni um völd útskýri ekki af hverju kon- urnar hurfu af vettvangi. „Bæði framboðsöfl þess tíma, þ.e. borgara- öflin og verkalýðshreyfingin, tóku ákvörðun um að hafa konur ekki með á framboðslistum. Þar sem eldri kvennaframboðskonurnar voru orðnar þreyttar og Bríet Bjarnhéðinsdóttir sömuleiðis, varð heldur ekkert úr sérstökum kvennalistum. Og þá komum við aftur að per- sónum því að Bríet, sem var leiðtogi meðal kvenna almennt, tók persónulega ákvörðun árið 1916 að styðja ekki kvennalista eftir að hafa gengið í Heimastjórnarflokkinn árið áður. Hún hvatti konur í blaði sínu til þess að sinna kalli tímans og ganga ( aðra flokka og það dró nnjög mikið úr kvennaframboðshugsun og hennar ábyrgð var því mikil. Stjórnmálafræðin hefur hins vegar verið mjög upptekin af því að nota ópersónulegar útskýringar sem snúa að stofnunum. Kannski finnst okkur annað óþægilegt. Við erum alin upp í því að forðast samsæriskenningar, og það er vel, en það er nauðsynlegt að horfa bæði á stofnanir og ein- staklinga. Stundum verðum við einfaldlega að líta til einstaklinga til að finna útskýringar og komumst þá ekki hjá því að draga einstakt fólk til ábyrgðar. Það skiptir öllu máli hvað póli- tíkusar gera. Ef svo væri ekki skipti auðvitað engu máli hverja við kysum. Þá gætum við allt eins sent inniskóna okkar á þing." En aftur að kvennarannsóknum. Verður einhver til að kenna sjórnmála- fræðinemum um konur og stjórnmál þar sem þú ert hætt kennslu? „Námskeiðið verður kannski lagt niður þó ég viti það svo sem ekki. Hannes Hólmsteinn Giss- urarson hefur hins vegar lagt það til, a.m.k. einu sinni, að fá að kenna námskeið í stjórn- málafræði um konur. Hver veit nema hann komi með eitthvert skemmtilegt innlegg?" segir Auður. Aðsókn karla í tímana sem fjalla um konur og stjórnmál og kvennafélagsfræð- ina, sem Auður hefur líka kennt, hefur aukist og um karla og kynjafræði segir Auður: „Það þarf að sjálfsögðu ekki sérstakt kyn til að gera góðar kvennarannsóknir. En á sama tíma og það má ekki gera þá kröfu að allar fræðikonur hafi áhuga á konum sem rannsóknarefni, þá sýnir reynslan að karlmenn hafa sjaldan áhuga á konum sem fræðilegu viðfangsefni. Þess vegna er auðvitað best að kona kenni um kon- ur. Því þrátt fyrir að oft sé of mikið gert úr ólíkri sýn kynjanna þá gerir mismunandi reynsla okk- ur mjög ól(k, sem kemur stundum afgerandi fram í hugmyndum okkar." En hvernig standa íslenskir háskólar sig í kvennarannsóknum að þínu mati? „Að bera saman t.d. skandinavíska háskóla og Háskóla íslands er tvennt ólíkt. I Svíþjóð er far- in samþættingarleiðin og umfjöllun um konur felld inn í allt námsefni. Almennt er það stefna allra háskóla að hvert námskeið skuli hafa les- efni um konur. I Noregi er þetta á svipaðri leið en í Danmörku var valin sú leið að stofna rann- sóknarstofur í kvennafræðum og hafa sér námskeið um konur. Við höfum hins vegar ekki tekið neina stefnu hér á landi nema að koma upp valnámskeiðum hér og þar innan námsgreina, búa til 30 einingar í kynjafræði úr því og stofna svo Rannsóknarstofu í kvenna- fræðum sem hefur svo gott sem ekkert rann- sóknarfé," segir Auður og bætir við að auk þess hafi stjórnmála- fræðingar gott af því að kynnast öðrum fræðaheimum: „Fem- inísk stjórnmálafræði kallar á að fara út fyrir viðfangsefni sem snúa að ríki, bæjum og stjórn- sýslu. Kvennahreyfingar eru tví- mælalaust pólitískar hreyfingar." En hvar má koma auga á ís- lensku kvennahreyfinguna í dag? „í dag lítur fólk kannski helst til Kvennalistans og hugsar um ör- lög hans en kvennahreyfingin er ennþá til þótt hún sé ekki leng- ur fjöldahreyfing, hún birtist okkur bara öðruvísi. Konur eru t.d. skipulagðar innan stjórnmálaflokkanna og við höfum margs konar starfsemi kvenna á mismunandi vettvangi." Hvaða kvennarannsóknir standa uppúr í þínum huga? „Sú bók sem hafði mest áhrif é mig sem fræði- manneskju á sviði kvennafræða var bók Carol Gilligan In a different voice sem kom út árið 1982 og er þekkt bók innan kvennafræðanna frá þeim tíma sem feminískar rannsóknir voru að mótast. Berit Ás, „móðir" Kvennalistans, skrifaði reyndar líka með svipuðum hætti áður, árið 1975 í Skandinavíu. Bók Gilligan var auð- vitað barn síns tíma og sumt missagt og jafn- vel ofsagt í henni, eins og gengur þegar fólki liggur mikið á hjarta, en hún olli straumhvörf- um á sínum tíma innan kvennafræða og kvennarannsókna. I henni, sem og í skrifum Berit Ás, var lögð áhersla á reynsluheim kven- na. í fyrsta lagi að hann væri til og í öðru lagi að hann væri merkilegur sem rannsóknarefni. Fram að þeim tíma hafði hin opinbera jafnrétt- isbarátta snúist meira um að afneita kynjamis- mun, því það var það sem þurfti á þeim tíma. En eftir það var sem sé snúið til baka, aftur til hinna gömlu kvenréttindakvenna sem bentu á að reynsluheimur kvenna væri merkilegur og ástæða þess að konur ættu að fá kosninga- rétt." VERA • 33

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.