Vera - 01.08.1999, Page 38

Vera - 01.08.1999, Page 38
söo-urleo' krctfcx kvennct Á Jónsmesswmi sigldu rúmlega 70 konur út í Viðey til skrafs og ráðagerða. Tilgangurinn var að styðja hug- mynd um stofnun frœðaseturs fyrir konur sem verið hafði á kreiki síðan í mars. Hugmyndin kviknaði á þingi um kristnisögu á Kirkjubœjarklaustri þegar fjórar konur lögðust í snjóinn og nutu dásemda norður- Ijósanna. Þeim fannst þœr heyra ákall stíga upp úrjörð- inni en þama stóð forðum annað tveggja nunnu- klaustra hér á landi. Húrra fyrir konum sem gangast við því sem þœr heyra! Sagan barst milli kvenna sem vildu hlusta, og út í Viðey skrifuðu 65 konur undir áskorun til ráðamanna þjóðarinnar sem afhent var Sólveigu Pétursdóttur dóms- og kirkjumálaráðherra. Á fundi með ráðherra kynnti Björg Einarsdóttir sagnfrœðingur hugmynd um að hœgt væri að nýta Löngumýri í Skagafirði til frœðaseturs fyr- ir konur en það hús er í eigu kirkjunnar. Ráðherra vís- aði málinu til biskups og Löngumýramefndar. VERA birtir hér ræðu Þórunnar Valdimarsdóttur, sagnfrœðings og rithöfundar, sem hún flutti í Viðeyjar- kirkju á Jónsmessu. Þórunn er ein af upphafskonum hugmyndarinnar en hún var ein þeirra sem horfði upp í himininn á Kirkjubœjarklaustri. Hinar voru: Guðrún Ásmundsdóttir, Guðrún Ása Grímsdóttir og Vilborg Davíðsdóttir.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.