Vera - 01.08.1999, Side 43

Vera - 01.08.1999, Side 43
D A G B O K N eftir ÚI f h i I d i Dagsdóttur leikur í bleiku Milli þess sem ég kaupi mér bleik föt hér í hirmi bleiku tískuborg London, les ég afskaplega áhuga- verða bók um mikilvægi klæðnaðar í kvikmyndum. Þar er fjallað um hvernig kvikmyndin notar sér klæðaburð til þess að skapa persónunni stöðu og hlutverk og í raun persónuleik. Persónur í bíó- myndum eru stöðugt að klæða sig uppá, klæða sig í annarra föt og dulbúast. Þessir fataleikir hafa ekki þótt ýkja merkilegir, en þó hefur umræðan um umbúnað kvikmynda aukist, jafnframt þvf sem áherslan í kvikmyndalestri færist frá hinu talaða orði til myndmálsins. En þessi bók helgar sig sérstaklega konum í kvikmyndum og því virðist sem enn sé áherslan sú að föt og tíska tilheyri kvennahelmingi samfélagsins (hver sá sem hann er) eða að föt séu sérkvenlegt málefni. Þessi áhersla á kvenleika klæðnaðar kemur fram í fyrirsögn á grein um búningamynda- þætti sem sýndir eru á BBC sumarið 1999. „Ertu með tíðaverki?" er spurt í Time Out 16.-23. júní 1999. „Af hverju ekki að prófa dágóðan skammt af raunverulegu drama?" Greinarhöfundur heldur áfram að tala um hvað allir séu orðnir þreyttir á þessum búninga og korseletta myndum sem hafa verið að drekkja sjónvarpinu síðan Pride and Predju- dice þættirnir slógu ( gegn. í staðinn fyrir alla þessa fyrirtíðaspennu mynda sem byggðar eru á skáldsögum býður Time Out lesendum að leggja augun við tíða-staðreyndir I þættinum Aristokratar, þyggðum á raunverulegum systrum frá átjándu öld. ^essi furðulega jafna virðist gera ráð fyrir því að þar sem hin opinbera saga hefur útilokað konur þá hljóti a'lt kvenlegt að vera söguleg truflun, jafnvel einskonar blóðsúthelling á mannkynssögunni. Þarna er tveimur tegundum af fordómum skellt í eina sæng, enda eru þeir par; en það eru fordómar gagnvart þeim kvenlega anda sem löngum hefur þótt svlfa yfir vötnum tfðar- andamynda og gagnvart því vandamáli nefndra mynda að vera ekki nógu raunveru- ( legar eða sögulega réttar eða eitthvað. Slíkur sögulegur réttur er náttúrulega réttur hinnar karllegu söguskoðunar (hver svo sem hún er) og því eru það augljóslega allar þessar rugl- •ngslegu konur sem skemma fyrir. Þessi furðu- iega jafna virðist gera ráð fyrir því að þar sem hin opinbera saga hefur útilokað konur þá hljóti allt kvenlegt að vera söguleg truflun, jafnvel einskonar blóðsúthelling á mannkyns- sögunni. Þess vegna var það sérlega sætt að sjá hinn þreytta gagnrýnanda Time Out bjóða upp á kvennaþátt sem sögulega réttan, enda á hann dálítið erfitt með að sortéra út hvað eru „réttar", systur og hversvegna. Helsti munur- inn á systrunum í sögu Jane Austen og - systrunum í Aristokrötum skildist mér vera sá að meðan Austen konurnar urðu að fylgja reglum samfélagsins sem skáldsagnapersónur þá máttu aristokratasysturnar brjóta þær því þær voru mannkynssögupersónur. Skrýtið, ég hafði alltaf séð þetta fyrir mér þveröfugt. Bretar hafa kannski meiri rétt en aðrir til að vera þreyttir á tíðarandamyndum, því þeir gera þær svo vel og svo mikið af þeim að fyrir marga er England land tíðarandans, rómantísk og krónísk fyrirtíðaspenna, þar sem teboð, stíf- ir kragar og korselett eru daglegt brauð. En það afsakar ekki þá vinsælu stefnu að for- dæma búningamyndir með því að tengja þær sérstaklega konum og kvenleika og kvenlík- ama. Sú tenging virðist vera rökrétt framhald af áherslunni á búninga í búningamyndum, þar sem búningarnir eru táknbærir sem slíkir og bera uppi sjálft tímabilið eða tíðarandann. Föt og tíska eru kvenleg málefni, eins og áður er sagt. En hvað þýðir þetta svo alltsaman fyrir kon- urnar, hvaða stöðu hefur konan í og gagnvart þessum myndum? Það að tíðamynd- irnar eru oft að leggja áherslu á kvennasögu er ( sjálfu sér ánægju- legt, og því má heldur ekki gleyma að þessar myndir hafa gefið fjölmörgun leikkonum tæki- færi til að marka sér spor í kvikmyndasögunni. Einnig má segja að á margan hátt beri þessar myndir með sér ákveðna vakningu á eða end- urkomu hefðbundins „kvenleika" en sú vakn- ing endurspeglast um þessar mundir nokkuð skærlega ( þeirri bleiklituðu tískubylgju sem nú flæðir yfir tlmarit og torg. „Kvenlegir" litir og „kvenleg" form, háir hælar og yfir og allt um kring eru blúndur og blóm. Kvenleiki af þessu tagi hefur ekki alltaf verið vinsæll meðal femínista og því hlýtur þetta að vekja upp ákveðnar spurningar um stöðu konunnar í dag svo og stöðu femínismans. Er aftur verið að fanga konur i föt sem hefta þær og hamla þeim í daglegu lífi og starfi og skipa þeim nið- ur á eldhúsbekki? Ég held einhvern veginn ekki. Það sem þessi tlska býður uppá er i raun auknir möguleikar konunnar til að leika sér með og leika þennan kvenleika, alveg eins og konurnar í fyrirtíðamyndunum eru að leika sér í kvenlegum búningum og hlutverkum fyrri alda. Þessi ýkti kvenleikur, sem óhjákvæmilega fylgir bleika litnum (og blúndunum), gerir ein- mitt að undirstrika hvernig kvenleikinn er alltaf leikur, grímuleikur eða búningaball. Hinn æðis- gengni barbíbleiki litur vekur fremur hlátur en alvöru og þannig er kvenleikinn óþægilega sýnilegur, en ekki þessi fínlegi hversdagsleiki sem hann á að vera. Um leið og kvenleikinn er dressaður upp ( bleikt verður hann að ein- hverju öðru, einhverju sem Barbí hefði aldrei getað dottið í hug. VERA • 43

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.