Vera - 01.08.1999, Blaðsíða 45

Vera - 01.08.1999, Blaðsíða 45
um og náðu ekki kjöri, svo og fjóra kosninga- stjóra fyir borgar- og bæjarstjórnarkosningarn- ar 1998. Nú hafa fyrstu niðurstöður úr viðtöl- unum verið kynntar, þó lokaniðurstöðurnar liggi ekki enn fyrir. Verkefnið var að mestu leyti unnið sem eigindleg rannsókn, en hún felst í því að tekin eru ítarleg viðtöl við viðmælendur og unnið úr þeim eftir ákveðinni aðferð. Ásdís G. Ragnarsdóttir verkefnisstjóri tók öll viðtölin og segir hún að það að sami aðilinn taki öll viðtölin tryggi ákveðna samfellu í verk- efninu, þrátt fyrir að ekki hafi verið notaður fastur spurningalisti. Ásdís leitaði hins vegar eftir svörum við ákveðnum spurningum og hefur m.a. notað textaforrit til þess að leita eft- ir því hversu oft tiltekin viðhorf og orðasam- bönd koma fram. Ásdís, sem hefur lesið mikið um þetta efni og víða leitað fanga, segir ekki vera til fordæmi að svona rannsókn. Þó að áður hafi verið gerðar rannsóknir sem tengjast þessu efni, þá viti hún ekki til þess að áður hafi verið rætt við bæði karla og konur f rannsókn sem þessarri. Rannsóknin sjálf er eingöngu unnin á (s- landi, en í samstarfi við aðila bæði í Færeyjum og á fslandi. Þannig er dr. Gertrud Áström, sem starfar við Stokkhólmsháskóla, einn matsaðila og í verkefnisstjórn. Auk hennar eru þau Auður Styrkársdóttir, Svanur Kristjánsson, Hildur Jónsdóttir jafnréttisráðgjafi Reykjavíkur- borgar, Drífa Sigurðardóttir, stjórnmálafræð- ingur, Brynhildur Sch. Thorsteinsson sálfræð- ingur og Erna Arnardóttir félagsfræðingur í verkefnisstjórn.. Mjúkir ungir menn og neikvæðir hægri menn „Það var mjög mikil gerjun í pólítíkinni þegar ég var að taka þessi viðtöl í janúar núna í ár. Þá stóðu einmitt yfir prófkjör fyrir alþingiskosn- ingarnar og margir viðmælendanna tóku mik- inn þátt í þeirri baráttu," segir Ásdís og heldur áfram. „Allir viðmælendurnir tóku mér mjög vel. Þau sem ég ræddi við voru bæði opinská og heiðarleg og það var mjög gaman að ræða við þetta fólk. Þar var enginn munur á þvl hvort ég talaði við karla eða konur, þau tóku mér bæði jafn vel. Karlarnir höfðu áhuga á málinu, en það er ekki þar með sagt að þeir væru tilbúnir að víkja úr sæti til þess að hleypa konu að. Það sem kemur fram í þessum viðtöl- um er spariandlitið. Fólk segir það sem því finnst að eigi að segja. Það er bara mannlegt. Fordómarnir koma frekar með, svona óvart. Ég þarf því mikið að lesa á milli línanna." Meðal þess sem Ásdís leitaðist eftir að fá fram var skoðun viðmælendanna á þvl hvaða eiginleika þeir karlar og þær konur sem ætla sér að ná langt I stjórnmálum þurfi að hafa til að bera. Meðal þess sem nefnt var I þvl sam- bandi var sjálfstraust, sem ekki kemur á óvart, en einnig visst kæruleysi. „Þú verður svolítið að treysta á sjálfan þig," sagði einhver, annar við- mælendanna sagði að konur væru mun sam- viskusamari en karlar, sá þriðji sagði: „Konur kunna ekki að yppta öxlum," og enn annar bætti því við að konur gætu síður tekið því að gera mistök. Þetta er meðal þess sem kemur fram I bæklingi sem Skref fyrir skref hefur gef- ið út um verkefnið. Það kemur kannski ekki á óvart að konur séu samviskusamari en karlar og spurning hvort það sé ekki kostur, en kannski mætti eitthvað á milli vera, konurnar vera kærulausari og karlarnir samviskusamari. Ásdís segir að sér virðist ungu mennirnir oft jafnvel meira á mjúku nótunum og vera meiri feministar heldur en sumar kvennanna. „Það er jafnvel meiri munur eftir kynslóðum, heldur en á milli kynjanna," segir hún og bætir því við að hún sé farin að kynnast fleiri og fleiri karl- mönnum sem séu feministar. En það var fleira athyglisvert sem kom fram í viðtölunum. „Svo eru aðrir sem tala um að völdin séu að færast frá pólítískt kjörnum full- trúum. Ákvarðanirnar séu í raun teknar annars staðar," segir Ásdís sem vill þó ekki draga úr þeim áföngum sem náðst hafa og bendir á að nú hafi íslenskar konur loks rofið glerþakið. Þar á hún við að nú eru konur loksins orðnar yfir 30% þingmanna, en gjarnan er miðað við það hlutfall þegar talað er um hversu margar kon- ur þurfi að vera til þess að hafa raunveruleg áhrif. Þarf stjórnmálamaðurinn fyrirvinnu? „I viðtölunum kom einnig fram sú skoðun að stjórnmálastarf sé ekki vellaunað starf," segir Ásdís. Þetta á kannski sérstaklega við sveitar- stjórnarstörfin, en fyrir þau er greitt eins og þau séu hlutastörf þó að í raun sé oft um fullt starf og vel það að ræða. I þessu sambandi bendir Ásdís á að fæstar þeirra kvenna sem sitja ! borgarstjórn vinni annarsstaðar og bætir því við að sumir viðmælenda hennar hafi talað um að það þyrfti góða fyrirvinnu til þess að geta tekið fullan þátt í sveitarstjórnarmálum. Mikill munur sé þó á pólitíkinni í Reykjavlk ann- ars vegar og á landsbyggðinni hins vegar. „Fyr- ir norðan talaði fólk í öllum flokkum um að erfitt væri að fá konur og þá sérstaklega ung- ar konur á lista," segir hún. Þetta þýðir þá væntanlega að ekki þyki lengur boðlegt að bjóða fram lista þar sem eru fáar eða engar ungar konur? „Já," segir Ásdís „og kosningastjórarnir tala svolítið um seljanlega lista. Þar skiptir til dæmis ímynd fólks máli. Imynd og traust. Fólk þarf að vera fremur hefðbundið (útliti og klæðaburði." <&> • • OKU $KOMNN IMJODD Þarabakka 3 109 Reykjavík. Kennsla til allra ökuréttinda, almennt ökupróf og bifhjólapróf. Aukin ökuréttindi á leigubíl - höpferðabíl - vörubíl, og vörubíl með tengivagn. Nýtt námskeiö hefst alla miðvikudaga Góð kennsluaðstaða, frábærir kennarar. Fagmennska í fyrirrúmi, leitið upplýsinga. Sími 567-0300 4 5 V E R A •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.