Vera - 01.08.1999, Page 49

Vera - 01.08.1999, Page 49
Púkinn Smásaga eftir Thelmu Ásdísardóttur Ég varð einu sinni fyrir ofbeldi. Hræðilegu ofbeldi. Ég var grátt leikin og illa farin. Það versta var samt að ofbeldismaðurinn skildi eftir púka inní mér. Andstyggileg- an púka sem hann tróð beint inní fallegt hjarta mitt. Þá hélt ég að hjarta mitt væri ekki fallegt lengur því það var fullt af þessum ljóta púka. Ég var ringluð og vissi ekki hvað ég átti að gera. Ofbeldismaðurinn var farinn en púkinn var á þessum stað og vildi fá að segja eitthvað. Hann hafði mikið að segja en vantaði rödd. Svo að ég gaf honum mína. Það hefði ég kannski ekki átt að gera en það var eina leiðin sem ég rataði þá. Og púkinn tók til óspilltra málanna. Hann hafði alltaf nóg að segja. Hann gagnrýndi allt sem ég gerði og honum tókst alltaf að benda mér á allt sem miður fór. Ekkert var nógu gott fyrir hann, það var sama hvað ég vandaði mig mikið, hann gerði ætíð stólpa- grín að mér og hló þessum ískrandi, illgirnislega hlátri sínum. Hann sagði að ég væri ljót og vond persóna. Hann sagði að líkami minn væri svo afskræmdur að ég ætti ekki að láta eðlilegt fólk sjá mig. Stundum grét ég þegar hann lét sem verst en þá hlakkaði í honum og hláturinn ómaði hærra en nokkru sinni. Púkinn varð hluti af lífi mínu og eina leiðin sem ég kunni til að lifa með hann í hjartanu mínu var að samþykkja hann og allt sem hann sagði. Púkinn þóttist vera hluti af mér og ég leyfði hon- um að trúa því. Ó, hvað ég var eftirlát við þessa andstyggð. Og reyndar ruglaðist ég iðulega í ríminu. Hvað var ég að segja og hvað var hann að segja? Það er reyndar ekkert skrýtið, ég hafði gefið honum röddina mína. Svona leið langur tími. Þetta var tím- inn sem púkinn notaði til að tæta mig í sig og honurn gekk vel. Þangað til dag einn að ég tók ákvörðun. Ég tók þessa ákvörð- un af því að ég er lifandi. Ég ákvað að lifa áfram en ég ætlaði að hætta að vera fórnarlamb ofbeldismannsins og púkans. Það var eins og að klífa himinhátt fjall. Fjall sem var fullt af grjóti og hrika- legum skriðum. Oft hrasaði ég svolítið aftur niður en aldrei mjög langt. Ég stóð alltaf í fæturna aftur því upp skyldi ég fara. Púkinn skammaðist og reifst alla leiðina og vissulega hlustaði ég oft á hann. Mér fannst hann vera eins og þungur steinn í hjarta mínu sem æ erfiðara var að burðast með. Ég fann núna að púkinn var sko enginn hluti af ntér og hafði aldrei verið. En það var erfitt að sannfæra hann um það, hann heyrði nefnilega aldrei til mín. Hvernig gat ég talað inn í hjartað á mér? Púkinn fór létt með að tjá sig, ég talaði alltaf fyrir hann sem fyrr. Ég fann að hann var að hægja á ferð minni og ég vissi líka að ég kæmist aidrei alla leið með hann inní mér. Ég hugsaði ráð mitt og allt í einu vissi ég hvað ég gæti gert. Ég lagðist niður í grænt og fallegt gras og fyllti skilningarvit mín öll með lífinu. Þá fór ég með mína og leitaði inn í hof mitt. Þar fann ég sterkan vit og horfði á hann þar til hendur mínar urðu logagyllt- ar. Og ég fór inn í hjarta mitt og sá hvað allt var fal- legt, nema púkinn. Með sólina í höndunum reif ég púkann úr brjósti mínu og skildi aðeins eftir feg- urðina. Púkann setti ég upp á öxlina mína þar sem hann grenjaði af ótta við birtuna. Ég tók af honum mína rödd og hann neyddist til að nota sína eigin. Þegar ég opnaði augu mín næst, sá ég púk- ann í sinni réttu mynd í fyrsta sinn. Hann var lítill og horaður. Ræfilslegur og aumkunar- verður. Og ég fann að hann mundi ekki segja mér til framar. Hann reyndi nú samt, eins for- hertur og hann er. En ég svaraði honum fullum hálsi. Rödd mín var sterk og hljómfögur en hann skrækti bara eitthvað, samhengislaust og mjóróma. Nú leið mér vel. Upp frá þessu hefur púkinn hangið á öxl minni, hálfmeðvitundarlaus og rugl- aður. Hann röflar stundum eitthvað en þegar ég læt hann útskýra sig þá getur hann það ekki og þagnar. Púkinn má alveg vera á öxlinni því með sinni eig- in rödd segir hann ekki margt sem hlustandi er á. í hjarta mitt fær hann aldrei að koma framar, ég á það sjálf. Ég er víst falleg manneskja og ég er líka svolítill sigurvegari. 4 9 VERA •

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.