Vera - 01.08.1999, Síða 54
Tónlistarhátíðir eru gamalt fyrirbæri og sum-
ar hverjar fyrir löngu orðnar árlegur viðburð-
ur víða um heim. Þekktustu rokkhátíðir í Evr-
ópu eru líklega þær í Hróarskeldu og Glaston-
burry sem eiga sér u.þ.b. 30 ára sögu við sífellt
vaxandi vinsældir. Þessar hátíðir eru auðvitað á
sama staðnum ár eftir ár, en til er annað form
rokkhátíða, farandhátíðin. Þá er háttur sígaun-
anna hafður á, sem sagt ferðast með allt draslið
um héruð, búðum slegið niður hér og þar og
haldin hátíð. Lilith Fair kallast sú rokkfarandhá-
tíð sem vinsælust var í Bandaríkjunum í fyrra.
Áður en Lilith varð til var Lollapaloosa hátíðin
frægust. Það rokkferðalag var farið fjögur sumur,
upp eftir að Lilith kom til sögunnar.
síðast 1997, virðist sem sagt hafa gufað «
Lilith Fair hátíðin er runnin undan rifjum kanadísku tónlistarkonunnar Söruh McLachlan,
en ekki þótti þessi hugmynd hennar góð þegar hún nefndi við yfirmenn hjá plötufyrirtæki
sínu að hana langaði að fara í tónlistarferðalag um Bandaríkin með hóp tónlistarkvenna
- sem sagt farandhátíð með konum í tónlist. Þrátt fyrir úrtölur framkvæmdi Sarah þessa
hugmynd sína og hratt henni af stað sumarið 1997, ekki með látum, en við sífellt meiri vin-
sældir og þátttöku eftir því sem á leið, þannig að beint lá við að leggja aftur í'ann sumarið
1998. Þegar sú vertíð var gerð upp kom í Ijós að Lilith Fair hafði fengið besta aðsókn af slík-
um stórviðburðum í Bandaríkjunum, nema hvað mig minnir að hinn gamalgróni rokkari
Ozzie Osbourne hafi gert það næstum eins gott á sínu ferðalagi. Og auðvitað lagði Sarah
McLachlan aftur af stað með kvennahersínguna spilandi í sumar. Þær gerðu víðreist um
Bandaríkin og Kanada og til stóð að þær kæmu til Evrópu líka, en vegna skipulagsmála
urðu þær að fresta því til næsta árs. Þar til að því kemur má kynna sér tónlistina sem fram
hefur farið á vegum Lilith Fair með þvf að nálgast geisladiska sem gefnir hafa verið út í
þrennu lagi.
Fyrsta lagasafnið frá Lilith Fair kom út í fyrra, 25 lög á tveim diskum, í einu hulstri, með
lögum frá sumrinu 1997. í júnf kom út annað og þriðja safnið, hvort tveggja með lögum
hljóðrituðum á ferðalaginu 1998, en sem sagt hægt að kaupa annan diskinn í einu, sem
hvor um sig inniheldur 14 lög. Sumar tónlistarkonurnar á Lilith Fair diskunum eru þekktar
og rótgrónar sem tónlistarmenn, aðrar lítið sem ekki, en margar hafa orðið þekktari vegna
þátttöku sinnar og á það nú einmitt við um forsprakkann, Söruh McLachlan. Af öðrum sem
koma fram á þessum diskum má nefna Sinead O'Connor, Suzanne Vega, Emmylou
Harris, Bonnie Raitt, Queen Latifah, Shawn Colvin, Natalie Merchant, lesbíska dúó-
ið Indigo Girls, lesbíska kvennatríóið Lucious Jackson, kanadísku hljómsveitina Cowboy
Junkies sem hvorki er lesbísk né kvennahljómsveit, því að sem betur fer eru Lilith Fair kon-
ur víðsýnar og sveitir skipaðar báðum kynjum eru velkomnar á sviðið svo lengi sem ein kona
með lykilhlutverk er innanborðs.
Margot Timmins er sem sagt gjaldgeng á Lilith Fair með bræðrum sfnum og vini í Cow-
54 • VERA