Vera - 01.04.2004, Page 21
Karllægur húmor eykur völd
og virðingu
Það er Ijóst að mikil völd eru í því
fólgin að geta látið kennarann og all-
an bekkinn gleyma stað og stund
vegna óborganlegs innskots. í
rannókn sem gerð var á stráka- og
stelpuorðræðu í unglingabekk kom
fram að í rökræðum sem drengjum
reyndist í óhag reyndu þeir að gera
grín að andmælandanum eða draga
athyglina frá umræðuefninu með að-
gerðum sem kveiktu hlátur bekkjar-
ins. Þeir gátu því notað húmor sem
stjórntæki en stelpurnar gerðu það
siður (Baxter, 2002). I sömu rannsókn
kom fram að stelpurnar veittu
drengjunum mun oftar stuðning í
umræðum heldur en þeir sýndu
þeim. Það er líka búist við því að þær
séu góðir hlustendur (Swann og
Graddol, 1995) og við því fá þær já-
kvæð viðbrögð frá kennurum og
samnemendum. Hin ráðandi orð-
ræða í skólanum virðist styrkja stráka
meira sem mælendur en stelpur sem
styðjandi áhorfendur og því er nauð-
synlegt að stelpur læri hvernig eigi að
STAÐA SÓLÓISTANS EÐA TRÚÐSINS ER EKKI AUÐVELDLEGA Á LAUSU
FYRIR STELPUR OG EF ÞÆR HREPPA ÞÁ STÖÐU ER AFAR ERFITT AÐ
HALDA HENNI. ÞVÍ MÁ SEGJA AÐ HIN ALDAGAMLA KVENLEIKAORÐ-
RÆÐA GETI VERIÐ HAMLANDI FYRIR STELPUR í AÐ VERA MJÖG VIRK-
AR í OPINBERUM SAMRÆÐUM OG TRÚÐSLÁTUM
verjast slíkri ráðandi orðræðu (Baxter,
2002). Staða sólóistans eða trúðsins
erekki auðveldlega á lausu fyrirstelp-
ur og ef þær hreþpa þá stöðu er afar
erfitt að halda henni (Gordon, Hol-
land og Lahelma, 2000). Því má segja
að hin aldagamla kvenleikaorðræða
geti verið hamlandi fyrir stelþur í að
vera mjög virkar í opinberum sam-
ræðum og trúðslátum.
Einnig er vert að spá í gildismatið.
Hverjir ákveða hverju sinni hvað er
fyndið? Hvert er innihald þess sem
hinir ráðandi kalla húmor? Er það á
einhvern hátt karllægara og því auð-
veldara fyrir drengi að samsama sig
ráðandi hugmyndum um góðan
húmor. i bekkjunum sem ég hafði til
skoðunar veltust stelpur um af hlátri í
bekknum en það var alltaf í einka-
samtölum og því sjaldnast varpað
fram í bekk (BRM, 2003). Gæti ein af
ástæðum þessarar vanvirkni á opin-
berum vettvangi verið sú að þærfái á
einhvern hátt öðruvísi viðbrögð en
drengirnir? Eru þau viðmið á ein-
hvern hátt karllæg sem við notum til
að meta frammistöðu kvenna í
fyndni? Þetta eru allt verðugar spurn-
ingar sem ég vil að þið lesendur góð-
ir veltið fyrir ykkur um leið og þið tak-
ist á við uppeldi og menntun ung-
dómsins. Það er mikilvægt að skoða
þetta mál svo við þorum og getum
öll verið svolítið fyndin :), út á við, ekki
síst þar sem það eykur á völd okkar
og virðingu.
Heimildaskrá er á www.vera.is
ALLTAF NYBAKAÐ OG SMURT
þess virði að skreppa í Hamrabrogina eða á Dalveginn
DALVEGI 4, SÍMI 564 4700 • HAMRABORG 14, SIMI 554 4200
vera / 2. tbl. / 2004 /