Vera - 01.04.2004, Síða 22
/ UNGT FÓLK OG JAFNRÉTTI
»Alma Joensen er forseti Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð skóla-
árið 2003-2004. Frá því skólinn var stofnaður, árið 1966, hafa fimm konur
gegnt þessu embætti að Ölmu meðtalinni en 33 karlar. Það gera 15% konur en
85% karlar en það er einmitt svipað hlutfall kynjanna og birtist í fjölmiðlum.
VERA ræddi við Ölmu um félagslífið í menntaskólum, kosningabaráttu, fegurð-
arsamkeppnir og vinsældir.
*
Auður m. „Ætlarðuað
Leiknisdóttir eyðileggja skólann?"
„Mér finnst stundum eins og fólk vilji
hafa stráka í þessu embætti, ekki bara
strákarnir heldur stelpurnar líka. Þeg-
ar ég fór í framboð hafði strákur verið
forseti í átta ár og fólk þekkti ekki
annað. Það var ýmsu fleygt og ég
heyrði setningar eins og: „Stelþa í for-
setanum! Það á eftir að eyðileggja
skólann." Það voru tveir strákar sem
buðu sig fram á móti mér og annar
þeirra var bara að grínast með það.
MÉR FINNST FEGURÐARSAMKEPPNI FRAM-
HALDSKÓLANNA ÝTA UNDIR ÁFRAMHALD-
ANDI FLOKKADRÆTTI, BRENGLUÐ GILDI 0G í
RAUN HEFTA ÞROSKA FÓLKS
Hinn varð svo að draga framboð sitt
til baka og þá stóð ég nánast ein eftir.
Valið stóð því á milli þess að kjósa
stelpu eða strák sem meinti ekkert
með framboði sínu. Ég var kosin en
það var talsvert um auða seðla og ég
fann að fólk var óöruggt. Eftir að ég
tók við embættinu hef ég samt lítið
orðið vör við óánægju eða slíkt."
Kosningar fyrir næsta skólaár eru
nýafstaðnar í MH og tveir voru í kjöri
til forseta, stelpa og strákur. „Þau
voru bæði mjög jöfn í skoðunum og
alveg jafnhæf, þannig að ég vissi að
þetta gæti farið á báða vegu, en með
litlum mun. Strákurinn vann og kom
munurinn mér gífurlega á óvart.
Sumir sögðu mér að þeir hefðu kosið
strákinn af þvi að það var stelpa í fyrra
- fá smá fjölbreytni! Þetta þótti mér
undarlegt, það hafa aldrei verið tvær
stelpur í röð. Reglan virðist vera tíu
strákar og svo ein stelpa sem tekur af
skarið. Ég hef líka heyrt svipaðar sög-
ur úr öðrum skóla þar sem mjög
frambærileg stelpa fór í framboð en
fékk aðeins um 20% atkvæða. Það er
eins og fólk sjái bara ekki fyrir sér
stelpu í forsvari fyrir nemendafélag-
ið."
Kynhlutverk
innan nemendafélaga
Þegar halda á úti skemmtanalífi fyrir
1000 manna nemendafélag þarf
nemendastjórnin oft á tíðum að hafa
samskipti við ýmis fyrirtæki. „Við fór-
um oft á fundi hjá stórum fyrirtækj-
um, ég og tveir strákar, framkvæmda-
stjóri og gjaldkeri úr stjórninni. Það
22 / 2. tbl. / 2004 / vera